Frjáls verslun - 01.09.2002, Side 43
Sjávarútvegurinn er fjárfestingafrek grein þar sem miklu
skiþtir að nýta vel aflaheimildir, skiþ og vinnslubúnað, og
hagræða í landvinnslu. Fyrirsjáanlegt er að störfum í
landvinnslu fari ört fœkkandi næstu fimm árin, þráttfyrir
aukna samþjöþþun með hagræðingu og sérhæfingu fyrir-
tœkjanna. Sþurningin er sú hvaðan störfin koma sem
uþþ á vantar.
ryg<
anna tveggja mun gerast hratt ef hún verður. Ekki
er þó víst að hún yrði átakalaus enda munu t.d.
forráðamenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum hafa tekið harða afstöðu gegn henni. „Við
yrðum ekki hlynntir sameiningu þessara fyrir-
tækja. Við viljum samkeppni þarna á milli. Mér
þykir líklegt að þróunin yrði sú að mörg sjávar-
útvegsfyrirtæki færu að leita fyrir sér með sölu
sjálf ef af þessu yrði,“ segir Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar.
Af þessari yfirferð er ljóst að sameiningarferlið
í sjávarútveginum er komið í gang og má búast við
frekari tíðindum á næstu vikum og mánuðum.
Samþjöppunarkostir eru enn margir og fjöldi
smærri útgerða hefur haldið sjálfstæði sínu,
hvernig svo sem framhaldið verður. En það er ekki
bara um blokkamyndun að ræða. Sjávarútvegur-
inn er ijárfestingafrek grein þar sem miklu skiptir
að nýta vel aflaheimildir, skip og vinnslubúnað, og
hagræða í landvinnslu. Fyrirsjáanlegt er að störf-
um í sjávarútvegi fari ört fækkandi og mun þeim,
sem hafa lifibrauð sitt af sjávarútvegi, sennilega
fækka talsvert næstu fimm árin. Stóra spurningin
er sú hvaðan störfin koma sem upp á vantar. Þó að
stefna sjávarútvegsfyrirtækjanna skipti miklu máli
er staðreyndin sú að ekki er nægur fiskur í sjónum
fyrir blómlega útgerð í öllum plássum í landinu. S3
Öryggisskáparnirfrá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem eru í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
43
BEDCO & MATHIESEN Z. L\