Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 45

Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 45
Þróunarklasar íslensks þekkingarþjóðfélags RANNIS hefur stutt nymyndun fyrirtækja og mörg þekktustu hátæknifyrirtæki landsins hafa fengi styrki frá RANNÍS. Margra ára rannsóknauinna liggur iðulega að baki nýsköpunar tækni- fyrirtækja. STJÚRNUN „Klasa“-hugmyndafræðin hefur rutt sár til rúms í uísindapóli- tískri stefnumótun. íslendingar eiga ýmsa möguleika til að þróa framúrskarandi uísinda- og nýsköpunarstarf á fyrir- framskilgreindum suiðum - „klösum“. VÍSINDI Náttúru- og umhuerfisuísindi Líf- og heilbrigðisuísindi Huguísindi Félagsuísindi TÆKNI Efnistækni Líftækni Upplýsingatækni Mannuirkjatækni Framleiðslutækni Orkutækni Rannsóknaverkefni verða að fyrirtækjum RANNÍS hefur stutt nýmyndun fyrirtækja og mörg þekktustu hátækni- fyrirtæki landsins hafa fengi styrki frá RANNÍS. Allmörg dæmi eru um að fyrirtæki hafa sprottið uppúr rannsóknarverkefnum sem RANNÍS hefur stutt. Þar má nefna Marel hf., Vaka - DNG hf. og Stjörnu-Ddda. Fyrirtæki eins og Fiskeldi Eyjafjarðar, Máki og Stofnfiskur eru byggö á margra ára rannsóknavinnu sem tæplega hefði verið hægt að fjár- magna án stuðnings frá RANNÍS. Jafnvel líftæknifyrirtækin á mann- erfðasviðinu, UVS og DeCode, byggja á grunni áratuga rannsókna í líf- og læknavísindum sem sjóðir RANNÍS og forverar þeirra hafa stutt. Alþjóðleg útrás - hluti af sóknarstefnu RAIMIMÍS „Við gerum miklar kröfur til styrkumsókna og samkeppnin í sjóðum RANNÍS er hörð. Það hefur aftur skilað sér í aukinni hæfni og reynslu vísinda- og tæknisamfélagsins hér til að sækja í erlenda rannsókna- sjóði. íslenskir aðilar hafa á síðustu árum sýnt mjög góðan árangur á alþjóðlegum vettvangi eins og í rammaáætlun ESB eða banda- rlskum vísindasjóðum þar sem vísinda- og tæknistyrkir fara til þeirra sem þjóða fram bestu verkefnin," segir Vilhjálmur. Þrátt fyrir góðan árangur á erlendum vettvangi eru nú blikur á lofti. Erlendis eru jafnt og þétt gerðar auknar kröfur um stærð alþjóðlegra verkefna sem kallar á að íslenskir aðilar ráðist í stærri og fjárfrekari rannsókna- og nýsköpunarverkefni. Þar er flöskuhálsinn fjárhagslegt bolmagn fyrir- tækja og stofnana. Fjármagn í rannsóknir þarf að auka Stærstu sjóðirnir í umsjá RANNÍS eru Vísindasjóður og Tæknisjóður sem hafa samtals rúmlega 400 milljónir króna til úthlutunar á ári. Ráð- stöfunarfé sjóðanna hefur ekki vaxið undanfarin ár þrátt fyrir stóraukin RANNÍS Laugavegi 13 • 101 Reykjavík Sími: 515 5800 • Fax: 552 9814 www.rannis.is • rannis@rannis.is umsvif íslendinga í vísindum og rannsóknum. Nú er svo komið að RANNÍS getur einungis styrkt lítinn hluta bestu verkefnanna sem sótt er um styrki til. ,,Við höfum ítrekað bent stjórnvöldum á mikilvægi þess að auka fjármagn til rannsókna og nýsköpunar enda hefur reynslan sýnt að þeir fjármunir skila sér margfalt til baka f aukinni velmegun," segir Vilhjálmur. Hann er vongóður um að frumvarp rikisstjórnarinnar um ný- skipan rannsóknamála, sem boðað er á haustþingi, muni fela í sér að auknu fé verði veitt í rannsóknir. Menningararfurinn látinn í askana Með tilkomu þekkingarfyrirtækja og skarpari sýnar á nauðsyn þess að varðveita sögu og menningu þjóðarinnar var einsýnt að þörf var á auknu fjármagni. RANNÍS hefur yfir að ráða sjóði til að styrkja verkefni á sviði upplýsingatækni og umhverfismála sem ríkisstjórnin leggur í um 100 milljónir á ári í sex ár, 1999-2004. „Þar erum við að styðja fyrirtæki í upplýsingageiranum og ekki síst vinnu þar sem saman koma ríkisstofnanir og fyrirtæki í einkaeigu. Má nefna vinnu við hugbúnað og notendaviðmót fyrir gagnagrunna eins og þann sem Raqoon ehf. er að þróa með Árnastofnun vegna fornrita, gagnagrunninn Sarp um fornleifar og þjóðmenningu, sem Hugvit - GoÞro-Landsteinar eru að þróa með Þjóðminjasafni, og gagnagrunn um íslenska náttúru sem Náttúrufræðistofnun, Orkustofnun og fleiri rannsóknastofnanir eru að þróa í samvinnu við Verkfræðistofuna Hnit," segir Vilhjálmur. Margir njóta góðs af Fornleifastofnun Islands er sjálfseignarstofnun ungra fornleifafræðinga. RANNÍS hefur stutt við bakið á þeim og í kjölfarið hafa orðið ýmsar breytingar og nýtt líf hefur færst í fornleifarannsóknir hér á landi. „Eitt af því sem við höfum lagt áherslu á, er að tengja saman atvinnulífið og rannsóknir. Það hefur tekist mæta vel og ekki síst á sviði fornleifarannsókna og þjóðmenningar þar sem ferðamannaiðnaðurinn hefur haft beinan hag af vinnunni sem fram hefur farið. Erlendir og inn- lendir ferðamenn sækja í að skoða sögu landsins og þannig nýtur atvinnulífið góðs af rannsóknum fornleifafræðinga, sagnfræðinga, bók- menntafræðinga og annarra sem skoða þjóðararfinn," segir Vilhjálmur. „Þetta gerist auðvitað líka hjá fyrirtækjum í fjölmiðlun, útgáfustarfsemi og öðrum myndum menningargeirans sem nýta sér og birta rann- sóknaniðurstöður í margvíslegu formi. Þessi skemmtilega tenging grunnvísinda við atvinnulífið er nokkuð sem lítill gaumur er gefinn. Tengsl atvinnulífsins og svonefndrar hátækni er miklu augljósari."BQ 45

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.