Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 59

Frjáls verslun - 01.09.2002, Page 59
Elín segir starfsmenn Búnaðarbankans almennt ánægða með að starfa í miðbœnum, en mörg stærrifyrirtæki hafi að vísu kosið að flytja höfuðstöðvar sínar þaðan. „Hvað sem stórum úthverfum líður, býr miðborgin yfir ákveðnum sjarma. “ Stóri „litli“ bankinn Búnaðarbankinn hefur verið þekktur sem einstaklingsbanki og er það auðvitað áfram. Núna vekur bankinn ekkert síður athygli vegna stóraukinna viðskipta sinna við fyrirtæki, en Búnaðarbankinn hefur t.d. komið að öllum helstu samein- ingum og eigendaskiptum íslenskra fyrirtækja á þessu ári. Fyrir vikið kynni einhver að orða það svo að hann væri núna „stóri litli bankinn“, segir Elín. Tvöfaldast á þremur árum „Við fórum í gegnum stefnumót- unarferli iyrir nokkr u og eitt af því sem þar var lögð áhersla á var að kynna það hversu mikið bankinn hefur breyst á skömmum tíma. Við höfum náð góðum árangri í fyrirtækjaþjónustu og vegur það þyngst í mikilli stækkun bankans en hann hefur tvöfaldast að stærð frá árslokum 1999. Við höfum t.d. komið að öllum helstu sameiningum og eigendaskiptum íslenskra fyrir- tækja það sem af er ársins og útlán til fyrirtækja eru nú stærsti hlutur útlána bankans." Elín segir það óneitanlega kost hversu stuttar boðleiðir eru innan bankans og að stærð hans hái ekki þróuninni eða því að fólk eigi greiðan aðgang hvert að öðru. „Það er ekki alltaf best að vera stærstur en auðvitað spilar það inn í að við erum með höfuðstöðvar okkar hér á einum stað og höfum borið gæfu til að eignast hér frábært húsnæði á besta stað í bænum og hér eru allir þeir sem koma að þjónustu við stærstu fyrirtækin og þeirri fyrirtækjaþjónustu sem ekki fer fram í útibúum bankans. Það er sérlega góður starfsandi hér sem er ekki aðeins mikilvægt fyrir starfsmenn heldur viðskipta- vinina líka. Andrúmsloftið er ftjótt og óformlegt og iðulega koma bestu hugmyndirnar á óformlegum fundum okkar hér á skrif- stofunni minni þar sem sumir sitja þess vegna uppi á borðum ef því er að skipta.“ í hópi fimm vinsælustu heimasíðna „Við höfum veríð að byggja markvisst upp rafræna bankaþjónustu og heimasíðan okkar er hluti af því ferli, en hún er í hópi fimm vinsælustu heimasíðna landsins." segir hún. „Markmiðið er tvíþætt. Annars vegar að gera viðskiptavinum okkar kleift sinna sínum bankaviðskiptum hvenær sem þeim hentar óháð opnunartíma bankans og hins Búnaðarbankinn á núna rúmgott húsnœði sem nœrfrá Austurstrœti til Tryggvagötu og hefur á undanfórnum árum fjárfest í auknu húsnæði firir höfuðstöðvar bankans. vegar að auka hraðann í bankaviðskiptum. Það hefur að mínu viti tekist mætavel. Við erum mjög framarlega í tæknimálum og höfum verið að bjóða lausnir sem ekki hafa þekkst áður. Nær- tækast er að nefna nýjung í gjaldeyrisviðskiptum þar sem við- skiptavinurinn getur sjálfur afgreitt gjaldeyrisfærslur í gegnum Bankalínuna alla leið inn á viðskiptareikning erlends lánadrott- ins.“ Búnaðarbankinn á rúmgott húsnæði sem nær frá Austur- stræti til Tryggvagötu og hefur á undanförnum árum íjárfest í auknu húsnæðisiými fyrir höfuðstöðvar bankans. „Göngu- brúin, sem tengir saman húsnæði bankans beggja vegna Hafnarstrætis, er táknræn fyrir ört vaxandi umsvif bankans og við Hafnarstræti 5 er fyrirtækjasvið og verðbréfasvið staðsett. Það er mikil samkeppni á ijármálamarkaðnum og við eigum von á að hún fari vaxandi.“ SQ 59

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.