Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 17
FORSÍÐUVIÐTflL ÁGÚST OG SVEINN VflLFELLS
„Heiðarleiki skapar traust í viðskiptum.
En það skiptir líka miklu máli að skipu-
leggja og vinna eins góðar áætlanir og
hægt er, skuldsetja sig aldrei meira en
maður þolir, taka aldrei meiri áhættu
en maður þolir að tapa. Þetta gefur
hægan vöxt en jafnan. Það hefur reynst
okkur vel,“ segir Ágúst.
Rekstur Steypustöðvarinnar, bygging Smára-
lindar, gullleit og fjárfestingar. Hula hefur hvílt
yfir starfsemi Valfells-fjölskyldunnar sem pó hefur
komiö víöa viö í athafna- og viöskiptalífi
pjóöarinnar.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Olafsson og fleiri
Ein stærsta steypustöð landsins, Steypustöðin ehf., hefur
skipt um eigendur og hefur nú hópur verktaka keypt 80
prósenta hlut Valfells-fiölskyldunnar í Basalti ehf. Basalt er
eignarhalds- og flárfestingarfélag sem á fjögur dótturfélög,
Steypustöðina, Steypustöð Suðurlands ehf., Vinnuvélar ehf.,
Steypi ehf. og átti að auki meirihluta í Einingaverksmiðjunni
ehf., sem kaupendur Basalts hafa nú selt Björgun og fleiri aðil-
um. Kaupverð er ekki gefið upp en ljóst er að Steypustöðin er
sterkt og vel stætt fyrirtæki, sem hefur ríflega 35 prósenta
markaðshlut og hefur séð um steypu í 35-40% húsa á höfuð-
borgarsvæðinu á liðnum áratugum. Sveinn Valfells, verkfræð-
ingur og viðskiptafræðingur, er fráfarandi framkvæmdastjóri
Steypustöðvarinnar og hafa hann og bróðir hans, Agúst Val-
fells kjarnorkuverkfræðingur, fyrrverandi stjórnarformaður
fyrirtækisins, samþykkt að segja frá Steypustöðinni, sögu
hennar og starfsemi, riija upp viðskipti föður síns, sem átti þátt
í því að byggja upp innlendan iðnað, og segja frá sínum eigin
viðskiptum í gegnum tíðina. En hyggjum fyrst að því hvernig
salan á Steypustöðinni kom til.
Fyrirmyndin frá Bandarikjunum „Ég hef verið framkvæmda-
stjóri Steypustöðvarinnar í 35 ár. Ef ég væri opinber starfsmaður
þá væri ég kominn á 95 ára regluna og gæti hætt á fullum eftir-
17