Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 35
NÆRMYND ÞÓRÓLFUR GÍSLASON KflUPFÉLAGSSTJÓRI
leiðir, myndar sér sjálfur skoðanir á mönnum og málefnum og
metur mikils heiðarleika og hreinskiptni en þolir illa að menn
fari á bak við hann.
Stjórnandi Þórólfur varð athafnamaður ungur, hafði mikinn
áhuga á öllum framkvæmdum og framförum og líf hans og
starf hefur snúist um það að ná árangri og sækja fram á við.
Hann hefur sérstakan áhuga á útgerð enda gerði hann sér
snemma grein fyrir því að auðinn sækja Islendingar í hafið.
Hann er hæfileikaríkur og metnaðarfullur og vill vinna fyrirtæki
sínu og héraði gagn en skeytir minna um sinn persónulega hag.
Hann er óragur og fylgir sínum hugmyndum stíft eftir. Hann er
frjór í hugsun og á auðvelt með að greina hismið frá kjarnanum,
þykir góður rekstrarmaður og kann á alla þræði, hvort sem það
fyrirtækið, stjórnkerfið eða fjármálaheimurinn. Hann hefur náð
gríðarlega góðum árangri með KS og dótturfyrirtæki þess og
hefur reyndar byggt stórveldi í Skagafirði. Þegar hann tók við
KS á sínum tíma byijaði hann á því að styrkja útgerð fyrirtækis-
ins og hefur það reynst happadrjúg stefna. Þórólfur hefur haft
lag á að velja með sér fólk og hefur verið óhræddur við að ráða
menn sem eru betri en hann sjálfur. Hann er vinsæll meðal
samstarfsmanna sinna, þykir treysta fólki vel og vera hvetjandi
og þægilegur í samstarfi. Jón E. Friðriksson, framkvæmdastjóri
FISK segir að alltaf sé hægt að treysta því að Þórólfur styðji
samstarfsmenn sína 100 prósent.
„Hann hefur þróast í brejhtu þjóðfélagi sem hinn klári „biss-
nessmaður" og náð miklum árangri í rekstri fyrirtækja og hvar
sem hann tekur á munar um hann,“ segir Guðni Ágústsson.
Þórólfur er almennt séð vinsæll innan fyrirtækisins en
óneitanlega eru skiptar skoðanir um hann á Sauðárkróki.
Skiptast menn þar í fylkingar og eru ýmsar kenningar á lofti
um það hvernig á þessu getur staðið. Sumir segja að maður
sem gegnir svona mikilli ábyrgðarstöðu geti ekki komist hjá
því að verða umdeildur. Aðrir telja hreinlega að hann sé mis-
skilinn, ekki síst vegna þess hve fáir þekki hann. Hann leyfi
ekki mörgum að njóta persónu sinnar en þeir sem þekki hann
beri honum vel söguna. I þriðja lagi má svo nefna að sumum
Skagfirðingum kann að þykja KS og dótturfyrirtæki svo sterk
að það standi öðrum fyrirtækjum fyrir þrifum. Jón telur að
Þórólfi sé kennt um ótrúlegustu hluti og hann sagður stjórna
ýmsu sem hann hefur ekki komið nálægt. „Menn gera óþarf-
lega mikið úr þessu og kenna honum um margt sem ekki á við
rök að styðjast,“ segir Jón. Þórólfur hefur alltaf gætt þess að
láta ekki flækja sér í þrætur og togstreitu.
Gallar Þórólfur er afskaplega dulur maður og lokaður og
mætti gjarnan le)ha persónu sinni að blómstra og gefa sig
meira að öðrum. „Menn halda að hann sé refur í sauðargæru
og eru hræddir við hann,“ segir Guðni. „Þeir halda að það sé
ekkert gaman að umgangast hann en það er ekki rétt. Hann
gefur ekki af sér rétta mynd. Hann er ekki mikið fyrir það að
vera á mannamótum og nýtur sín ekki í fjölmenni þannig að
þeir sem ekki hafa náð vinskap hans eru ragir við hann eða
hafa ekki álit á honum.“ Þórólfur er talinn langrækinn en getur
þó fyrirgefið það sem gert er á hans hlut. Hann er ekki mikið
fyrir það að skemmta sér og mætti bregða glensi meira fyrir
sig. Hann þykir helsti til of ráðríkur og afskiptasamur, vill
stjórna, hvort sem það er í fjölskyldunni, fyrirtækinu eða
flokknum. Hann er kaupfélagsstjóri af gamla skólanum þó að
hann hafi breytt KS í nútíma fyrirtæki.
Áhugamál Þórólfur er áhugamaður um þjóðmál og viðskipti
en vinnan er áhugamál hans númer eitt, tvö og þrjú. Hann er
flokksbundinn framsóknarmaður, eins og áður segir, og þykir
valdamikill innan flokksins. Þórólfur les bókmenntir, stundar
útiveru og íjallgöngur. Hann hefur haft gaman af stangveiði en
lítið stundað hana síðustu árin. Rennir þó stundum fyrir fisk úti
á sjó. Þau eru mjög samrýnd hjónin og fara saman til útlanda
einu sinni á ári. Þórólfur drekkur lítið áfengi, fær sér í mesta
lagi hálft léttvínsglas með mat.
Villir Æskufélagar Þórólfs eru Svavar Valtýsson, trystihús-
stjóri hjá Skinney-Þinganesi á Reyðarfirði, og Sigurgeir
Gunnarsson, sem er látinn. Þórólfur hefur mjög gott samband
við systkini sín og maka þeirra. Meðal skólafélaga hans má
nefna Olaf Friðriksson, skrifstofustjóra í landbúnaðarráðuneyt-
inu, Jón Pálma Pálsson, bæjarritara á Akranesi, og Aðalstein
Hákonarson, löggiltan endurskoðanda hjá KPMG í Reykjavík.
Helstu samstarfsmenn Þórólfs eru Jón E. Friðriksson,
framkvæmdastjóri FISK, Sigurjón R. Rafnsson, aðstoðarkaup-
félagsstjóri KS, og Agúst Andrésson, forstöðumaður Kjöt-
iðnaðar hjá KS. Þórólfur er einn helsti stuðningsmaður og
trúnaðarvinur Guðna Agústssonar landbúnaðarráðherra og
Finns Ingólfssonar, forstjóra VJS. Helgi S. Guðmundsson,
formaður bankaráðs Landsbanka Islands, er einnig einn af
hans nánustu félögum.
Af öðrum má nefna Vilhjálm Egilsson, alþingismann og
framkvæmdastjóra Verslunarráðs Islands, og Davíð Oddsson
forsætisráðherra en þeir Þórólfur eru þremenningar. BH
35