Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 37
HEIMUR HF. UTGflFfl
w
Ut er kominn hjá Heimi hf. geisladiskurinn Þóra og Björn
þar sem hjónin og söngvararnir Þóra Einarsdóttir og
Björn Jónsson flytja margar af helstu söngperlum
Islands og Evrópu. Þau taka lög eftir Schumann, Richard
Strauss, Grieg og Siebelius, svo dæmi séu tekin, en eftir
ferðalag um Þýskaland, Frakkland og Norðurlöndin enda þau
á íslandi með lögum eftir tónskáldin góðkunnu Sigfús
Einarsson, Pál Isólfsson og Bjarna Böðvarsson.
flhrif á islensh tónskáld Evrópsku lögin á disknum voru
valin með það í huga hvaða áhrif þau hefðu haft á íslensk tón-
skáld. íslensk tónskáld urðu oft fyrir áhrifum af samtíðar-
mönnum sínum, sérstaklega meðan þau voru í námi erlendis.
Þar sem flest íslensk tónskáld lærðu í Skandínavíu og Þýska-
landi eru það þýsk, norræn og frönsk tónskáld sem verða
fyrir valinu á disknum Þóra og Björn.
Um þessar mundir eru Þóra og Björn sjálf búsett í Wies-
baden, Þýskalandi. Þó þau séu ung að árum hafa þau bæði
fengið tækifæri til að spreyta sig við hlutverk í óperuhúsum
innanlands og erlendis og fengið mikið lof. I dómi hins virta
breska dagblaðs The Times lét gagnrýnandi þau orð falla um
Þóru að söngur hennar í Falstaff væri „töfrum líkastur“ (e.
magical). í Morgunblaðinu sagði um Björn á tónleikum í
Hjónin og söngvararnir Þóra Einarsdóttir og Björn Jónsson flytja
tnargar af helstu söngperlum Islands og Evrópu á nýjum geisladiski
sem Heimur hf. gefur út.
Guildhall School of Music and Drama í London. Eftir langa
dvöl erlendis segjast þau nú betur skilja hvernig búseta
erlendis hafi haft áhrif á íslensk tónskáld.
f/leíinur hf'úb Mjjan(jem/ac/(\sn:
Flytja helstu söngperlur
Islands og Evrúpu
Salnum: „Hefur létta og lýríska tenórrödd sem nýtur sín sér-
lega vel í ítölskum bel canto söng ... flölbreytt litbrigði ...
Björn hefur mikla mýkt og hraðinn var frjálslega mótaður ...
glæsilegur söngur og mikil útgeislun.“
Um diskinn segja þau: „Það var draumur okkar að gefa út
disk saman - lögin hafa ekki einungis það sameiginlegt að
hafa haft áhrif á fremstu tónskáld íslands; þau eru einnig öll
stemningarlög, margir af uppáhaldssöngvum okkar saman á
einum disk.“ Sannkallaðar söngperlur Islands og Evrópu. [E
Draumurinn uppfylltur Margt er á dagskrá hjá
Þóru og Birni. Um þessar mundir er Þóra fastráðin
hjá óperuhúsinu í Wiesbaden en Björn hefur víða
starfað sem söngvari, á Bretlandseyjum, í Svíþjóð
og Þýskalandi og ferðast nú á milli staða og syngur
við margvísleg tækifæri. Bæði lærðu söng við
Óperuhúsið í Wiesbaden í Þýskalandi.
Þóra og Björn búa í Wiesbaden ásamt syni sínum, Einari.
Myndir: bj
37