Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 89

Frjáls verslun - 01.10.2002, Side 89
FYRIRTÆKIN A NETINU A lysing.is er hœgt að skoða lánamöguleika og reikna út mánaðargreiðslur. Svo er hægt að fylla út rafræna um- sókn og senda. Marel.com er einstaklega viðamikill vefur sem greinist niður eftir dótturfélögum og iðnaði, t.d. fiski, kjöti eða kjúklingi eftirþví á hverju gesturinn hefur áhuga. Verðlaunavefir Tvö fyrirtœki, Lýsing og Marel, hafa fengið verölaun fyrir starfsemi sína á Netinu; Lysing.is fyrir besta útlitið ogMarel.com sem besti fyrirtœkjavefurinn. Full ástæða er til að spyrja: Hvað erpað sem gerir pessa vefi svona góða? Við reynum að svara pessari spurningu hér á eftir. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur www.lysing.is Lýsing rekur einfaldan en sérlega skýran og fallegan vef á slóðinni http://www.lysing.is. Fjöldi mynda prýðir vefinn, myndirnar eru skýrar og góðar og litagleðin er í fýrirrúmi án þess að það verði einum of þjappað eða hallærislegt. Ágætis skipulag virðist vera á vefnum. Upplýsingar um allar ijár- mögnunarleiðir eru greinargóðar og einfaldar í ffamsetningu, hvort heldur um einkabíla, atvinnutæki eða atvinnuhúsnæði er að ræða. Vefurinn má segja að sé sérstaklega notendavænn þvi að Lýsing býður m.a. upp á notkun reiknivélar þannig að við- skiptavinir geta reiknað út mánaðargreiðslur og þannig fundið út hvað hentar þeim best. Svo geta þeir fyllt út rafræna umsókn og sent. Vefurinn er því óvenjulega notendavænn og ekki bara um þjóðskrána að ræða. Halldóra Katla Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Lýsingar, segir að nýi vefurinn hafi farið í loftið í apríl á þessu ári en upp- lýsingarnar séu svipaðar þvi sem þær voru áður. Hann hafi hlotið góðar viðtökur miðað við hvernig fyrirtæki er um að ræða. Vefurinn er í stöðugri vinnslu og alltaf verið að betrumbæta hann þó að ekki séu fréttirnar uppfærðar daglega. Það markist þó af því að viðskiptavinir geti t.d. séð þar stöðu sína hverju sinni. Rúmlega 3.500 gestir komu á vefinn í síðasta mánuði og voru flettingarnar tæplega 18 þúsund.BH www.marel.com Marel rekur einstaklega viðamikinn en snyrtilegan og góðan vef á slóðinni http://www.marel.com. Vefurinn er svolitið kassalaga í útliti en bjartur og léttur og mikið af myndum, t.d. af framleiðsluvörum fyrirtækisins. Vefurinn er mjög vel skipulagður, jafn viðamikill og hann er, og gefur einkar greinargóðar upplýsingar um fyrirtækið, bæði starf- semi þess innanlands og erlendis, þátttöku þess á erlendum vettvangi, framleiðslu og svo síðast en ekki síst upplýsingar um starfsmannastefnu og starfsmenn. Þetta verður því góður heildarpakki fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða vefinn og kynna sér fyrirtækið. Asgerður Jóhannsdóttir, ritstjóri hjá Marel, kveðst m.a. hafa skoðað vefi erlendra stórfyrirtækja til að fá upplýsingarnar á vefnum sem best hannaðar, t.d. með tilliti til markhópa fyrirtæk- isins. Vefurinn er iðnaðarmiðaður og geta gestir valið um kjöt, fisk eða kjúkling eftir því á hvaða sviði þeir starfa. Viðbrögðin hafa verið góð. 98% viðskiptavina Marels eru erlendis og því er vefurinn á ensku. Hvert dótturfyrirtæki hefur sitt svæði og þvi er inngangspunkturinn bara einn, marel.com, og þaðan greinist vefurinn svo eftir dótturfélögum. Upplýsingastreymi til fiárfesta hefur verið aukið með sérstöku svæði fyrir þá. 12-14 þúsund gestir komu inn á vefinn í síðasta mánuði, flettingarnar voru um 20 þúsund talsins. Verið er að undirbúa íslenska útgáfu. S3 VIÐSKIPTI • TÖLVUR ■ FERÐALÖG ■ VÍN - WWW.HEIMUR.IS 89
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.