Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 78
Ingi Þór Jakobsson er innanhússarkitekt og eigandi
Sjöundi ágúst er dagur sem flestir
Islendingar muna eftir, þegar
stórbruni varð í Fákafeninu. Hús-
gagnaverslunin EXO var eitt þeirra
fyrirtækja sem lenti í brunanum
þennan umrædda dag. „Eg var búinn
að byggja upp fyrirtækið frá grunni,
setja æru mina og ijármuni undir í
rekstrinum og það var mér því mikið
og tilfinnanlegt áfall að lenda í þessu,“
segir Ingi Þór Jakobsson í EXÓ.
Ingi Þór er innanhússarkitekt og eigandi EXÓ
EXO hefur alltafstaðid fyrir hús-
gögn, sófa, sófaborð, borðstofuborð,
stóla, skápa og fyrirtœkjahúsgögn en
á siðustu árum höfum við verið að
taka inn veggljós, loftljós og útiljós.
Eftir ísak Örn Sigurðsson Myndir: Geir Ólafsson
Hann
stofnaði verslunina fyrir 10 árum síðan og hefur lagt áherslu á
nútímahönnun, gæði og góða þjón-
ustu. Verslunin er í 600 fermetra hús-
næði í Fákafeni. Ingi Þór hefur fært út
kvíarnar og opnað aðra EXÓ-verslun í
Osló sem hefur fengið mjög góðar við-
tökur hjá Norðmönnum.
„Eg bognaði verulega við áfallið en
brotnaði aldrei. í stað þess að leggjast
alveg niður ákvað ég að standa upp
aftur og gera mitt besta við endur-
skipulagningu þó að bruninn hafi
verið það alversta sem ég hef nokkurn
tíma lent í. Við vorum nýbúnir að taka
inn mikið af húsgögnum frá Spáni en
misstum þau öll í brunanum. Við
ákváðum að bretta upp ermar og
byijuðum frá grunni og tókum inn
nýjar línur og strauma. EXÓ hefur
alltaf staðið fyrir húsgögn, sófa, sófa-
borð, borðstofuborð, stóla, skápa og
fyrirtækjahúsgögn en á síðustu árum
höfum við verið að taka inn veggljós,
loftljós og útiljós. Eftir brunann
ákváðum við að bæta inn borðbúnaði
en það er okkar mat að hann hafi
vantað. EXÓ býður nú upp á verulega
breidd í nútímahönnun og tel ég að
búðin sé enn betri eftir brunann en
áður. Búðin er í dag mjög fersk og
allar vörur nýjar með nýjustu línum og
nýjustu hönnun. Uppbygging búðar-
innar er létt og leikandi eins og við
sjáum framtíð EXÓ fyrir okkur,“ segir
Ingi Þór.
I samræmi við breytingar hefur
verið tekin ákvörðun um að breyta lógói verslunarinnar eins og
sést glögglega á ljósmyndinni hér á síðunni. H3
EXÓ er í Fákafeni og er eitt þeirra fyrirtækja sem lenti í stórbrunanum 7. ágúst sl.
78