Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 104
AGORA - netkasning mbl.is
Gísli S. Brynjóljsson, kynningarstjóri hjá Skýrr: „Á nœsta ári œtla ég
að fara til Frakklands og lœra alþjóðaviðskipti við skóla sem heitir
ESC Grenoble og taka þar mastersprófí alþjóðaviðskiptum."
Mynd: Geir Olafsson
rúmlega 500 gestir mættu í
afmælið sem var haldið í
nýju glæsilegu húsnæði
fyrirtækisins að Ármúla 2.
Þar fýrir utan var gefin út
bók um sögu fyrirtækisins
og upplýsingatækninnar á
íslandi í 50 ár. Eftir afmælið
tók við undirbúningur
AGORA sýningarinnar sem
var spennandi og krefjandi
verkefni. Ekki skemmdi fýrir
að í tengslum við sýninguna
var Skýrr valið í netkosningu
„fremst meðal jafningja" af
lesendum mbl.is. Sýningin
tókst vel og þúsundir manna
komu við á básnum okkar og
kynntu sér þjónustuna.“
Gísli er af Suðurnesj-
unum, nánar tiltekið Vatns-
leysuströndinni. Eftir grunn-
skóla hóf hann nám við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja og
lauk stúdentsprófi af hag-
fræðibraut.
„Eg var fljótur að átta mig
á því að áhugasviðið lægi á
sviði auglýsinga og markaðs-
mála. Eg var þess vegna
ákveðinn í að fara í háskóla-
nám í markaðsfræðum og
fannst Tækniskólinn bjóða
upp á sérhæft nám sem
hentaði mér mjög vel. Eg tók
iðnrekstrarfræðina af mark-
aðssviði og bætti svo við mig
einu ári í viðbót og tók B.Sc. í
alþjóðamarkaðsfræði. Þetta
var skemmtilegur tími og ég
fýrirtæki sérhæfir sig í
geymslu á skjölum sem eru
ekki í fullri notkun en þurfa
að vera til staðar, s.s. skila-
greinar lífeyrissjóða, almennt
bókhald fýrirtækja o.s.frv.
Það var síðan í apríl 2000 sem
ég réði mig til Skýrr.“
Þó svo að Gísli sé búinn
að vera í námi meirihluta lífs-
ins segist hann alls ekki orð-
inn mettur og ætlar að fara til
Frakklands og taka masters-
próf í alþjóðaviðskiptum í
byrjun ársins 2003. Skólinn
heitir ESC Grenoble og er í
samnefndri borg við rætur
frönsku Alpanna. Þetta er
einkaskóli sem leggur
áherslu á viðskipti og tækni
og hefur getið sér gott orð í
Frakklandi og Evrópu.
„Golfið hefur verið mitt
aðaláhugamál undanfarin ár
en því miður hafði ég ekki
eins mikinn tíma og ég hefði
viljað seinasta sumar til að
spila,“ segir Gísli. „Knatt-
spyrna hefur líka alltaf
skipað háan sess í mínu lífi
og á þar IA hug minna allan
en ég fylgist einnig með
ensku knattspyrnunni og þá
helst Liverpool.
Eg reyni að ferðast eins
mikið og ég get og fór sl.
sumar í fyrsta skipti hringinn
í kringum landið með unn-
ustu minni, Sigríði Önnu
Arnadóttur. Það var mjög
Gísli S. Brynjólfsson, Skýrr
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
að er mjög gott að
starfa hjá Skýrr,“ segir
Gísli S. Brynjólfsson
sem verið hefur sölustjóri
kerfisleigu og rekstrarþjón-
ustu Skýrr sl. þrjú ár en hann
gegnir nú starfi kynningar-
stjóra fyrirtækisins.
„Þar sem fyrirtækið er
með mjög ijölbreytt úrval af
vörum og þjónustu er starfið
mjög íjölbreytt og skemmti-
legt. Eg sinni flestu því sem
snýr að kynningamálum, s.s.
skiplagningu á blaðamanna-
fundum, sýningum og ráð-
stefnum og sé um fréttahlut-
ann á www.skyrr.is ásamt því
að koma að gerð auglýsinga-
efnis í samvinnu við viðkom-
andi sölustjóra innan Skýrr.
Þetta ár hefur verið mjög við-
burðaríkt og sögulegt fyrir
Skýrr hf. Fyrirtækið er
stofnað 28. ágúst 1952 og
varð því 50 ára á þessu ári.
Því var náttúrlega fagnað
með viðeigandi hætti og
er mjög ánægður með að
hafa valið þessa leið. Með
náminu vann ég yfirleitt hjá
Islenskum aðalverktökum á
Keflavíkurflugvelli, þar sem
ég sinnti hinum ýmsu
störfum. Einnig vann ég eitt
sumar hjá Happdrætti
Háskólans og var það
skemmtilegur tími. Árið
1999, strax eftir námið, réði
ég mig sem markaðsstjóra
hjá fyrirtæki sem heitir
Gagnageymslan ehf. og starf-
aði hjá því í rúmlega ár. Þetta
skemmtilegt og í raun hálf
kjánalegt að hafa ekki farið
þetta áður miðað við það
hversu oft ég hef ferðast til
útlanda. Mér fannst þess
vegna alveg seinustu forvöð
að skella sér hringinn því
ekki gerir maður það á
næsta ári. Ég reikna nú fast-
lega með því að við notum
tækifærið á meðan við búum
í Frakklandi og ferðumst
víða um Evrópu, þar sem
Grenoble er mjög miðsvæðis
í Vestur-Evrópu.“S!]
104