Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 93
5PARNAÐUR
Ef einstaklingur leggur fyrir 4% af launum og fær til viðbótar
2,4% sem mótframlag launagreiðanda þá eignast hann til
viðbótar 375 krónur fyrir hverjar 625 krónur sem hann sparar
þannig að heildarsparnaðurinn verður 1.000 krónur.
skatta vegna skattfrestunar. Til viðbótar greiðir síðan
launagreiðandinn 2,4% af 150.000 kr. mánaðarlaun-
um eða 3.600 kr. á mánuði. Viðkomandi einstak-
lingur greiðir þvi í viðbótarlifeyrissparnað 3.688
kr. á mánuði (6.000 kr. - 2.312 kr.) en sú fjárhæð,
sem færð er mánaðarlega inn á séreign-
arreikning hans, getur hins vegar
numið allt að 9.600 kr. Inneignin er flár-
magnstekju- og eignaskattsfrjáls en
greiddur er tekjuskattur af útborguninni."
Hjón geta skipt lífeyrisréttindum sínum í lögum nr
129/1997 um skyldutryggingu lifeyrisréttinda
og starfsemi lífeyrissjóða eru mörg merk ný-
mæli, þar á meðal um heimildir sjóðfélaga til að
skipta ellilífeyrisréttindum. Tekið skal fram að
ekki er skylt að skipta ellilifeyrisréttindum milli
hjóna.
Skipting ellilífeyrisréttindanna tekur til
þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap,
óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.
Skipting ellilifeyrisréttinda skal vera
gagnkvæm, þ.e. hvort hjóna eða sambúð-
arfólks skal veita hinu sama hlutfall réttinda
sinna. Þess vegna þurfa báðir aðilar að skipta elli-
lifeyrisréttindum sínum. Heimilt er að framselja til
makans allt að helmingi ellilífeyrisréttindanna.
Ef sjóðfálaginn, sem á séreign og hefur skipt ellilífeyris-
ráttindum sínum með maka sínum, fellur frá greiðist öll
séreign hans út en ellilífeyrisréttindin flytjast ekki sjálf-
krafa yfir til makans. Uið fráfall er litið á séreign sem
hjúskapareign samkuæmt áliti Fjármálaeftirlitsins. Ekki eru
þó allir á eitt sáttir um að suo sé. Makinn á auðuitað fyrir
helminginn í hjúskapareigninni og erfir síðan þriðjunginn af
þuí sem eftir er á móti börnum sínum. Enginn erfðaskattur.
(Þ.e. börnin fá 2/3 af hjúskapareign þess foreldris sem
fellur frál. Pað er þuí spurning huaða gagn maki þess sem
á í séreignasjóði hefur af þuí að skipta lífeyrisréttindum
sínum. Á það getur þó reynt komi til skilnaðar.
í samtryggingarlíf eyrissjó ðum ávinna
menn sér ekki einhverja inneign eða
séreign sem erfist, heldur ávinna
sjóðfélagar sér ákveðin lífeyris-
réttindi. Falli sjóðfélagi frá fær maki
hans makalífeyri sem er ákveðið
hlutfall af Irfeyrisréttindum hins
látna og getur verið bundinn við
ákveðinn tíma, t.d. tvö ár.
93