Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 26
Tengdasonur Jóns Helga Guðmundssonar, Hannes Þór Smárason,
aðstoðarforstjóri Islenskrar erfðagreiningar, var ekki á hluthafafund-
inum en var kjörinn í stjórn fyrir hönd Norvikur.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskiþa og varaformaður stjórnar Kers, var
erlendis þegar hluthafafundurinn var haldinn. Hér tekur hann á móti
gestum á jólahátíð Samskipa á Kaffi Reykjavtk tveimur dögum síðar.
Jón Helgi hefur náð vðldum í Keri
Eftír kaup Norvikur á hlut Hesteyrar í Keri þykir ljóst að Jón
Helgi Guðmundsson, forstjóri Byko, hafi ekki aðeins náð
völdum í Keri heldur er hann orðinn oddviti S-hópsins við
kaupin á Búnaðarbankanum. Jafiivel er talið líklegt að hann
verði þar næsti bankaráðsformaður, en ekki Þórólfur Gíslason,
eins og Frjáls verslun hefur haldið fram til þessa. Enda kaus
Þórólfur að afsala sér völdum með sölu Hesteyrar á hlutnum í
Keri á 700 milljóna króna jÆrverði. Að vísu kaus Jón Helgi að
setjast ekki í stjórn Kers á hinum margumtalaða hluthafafundi
félagsins sem haldinn var á Grand Hóteli Reykjavík hinn 27.
nóvember sl. heldur lét hann tengdason sinn, Hannes Þór
Smárason, aðstoðarforstjóra Islenskrar erfðagreiningar, taka
stjórnarsæti Norvikur í stjórn Kers.
Það má velta því fyrir sér hvort nafnið S-hópur sé réttnefni
á hópnum þegar Jón Helgi Guðmundsson í Byko er kominn
inn í hópinn. Jón Helgi hefur ekki tengst neinum viðskipta-
blokkum til þessa og hann er þekktur fyrir að fara sínar eigin
leiðir í viðskiptum. Hann er þekktur fyrir að taka hvert mál
fyrir sig, láta engan segja sér fyrir verkum og vera á eigin for-
sendum í viðskiptum. Hann vill helst ekki vera öðrum háður.
Ekki fer á milli mála eftir hluthafafundinn á dögunum og þegar
ljóst var hvernig stjórnin skipti með sér verkum að honum
loknum að Jón Helgi vinnur núna í Keri í bandalagi með Ólafi
Ólafssyni, Kristjáni Loftssyni og sínum gamla félaga úr Byko,
Jóni Þór Hjaltasyni. Jón Helgi er einnig í oddaaðstöðu því hann
getur hæglega makkað með YÍS og Samvinnulífeyrissjóðnum
innan Kers ef í harðbakkann slær.
Feður þeirra Jóns Helga Guðmundssonar og Jóns Þórs
Hjaltasonar stofnuðu Byko og keypti Jón Helgi hlut Jóns Þórs
og ijölskyldu út fyrir nokkrum árum og fékk Jón Þór þá m.a.
flutningafyrirtæki þeirra, Jónar, út úr þeim viðskiptum. Jón Þór
sameinaði síðan það félag Samskipum. Jón Þór á um 3% í Keri
og er sá hlutur skráður undir eignarhaldsfélagi hans sem heitir
J&K eignarhaldsfélag.
Auðvitað snýst innkoma Jóns Helga í Ker fyrst og fremst
um kaup S-hópsins á 45,8% hlut ríkisins í Búnaðarbankanum.
Skrifað var undir samkomulag um kaup S-hópsins á bankanum
laugardaginn 16. nóvember sl. þótt endanlega verði ekki skrif-
að undir kaupsamninginn fyrr en í lok þessa árs að lokinni
áreiðanleikakönnun beggja aðila. S-hópurinn kaupir hlutinn í
Búnaðarbankanum á 11,9 milljarða króna. B3
Eignarhaldið innan S-hóDsins
w
Igrófum dráttum skiptist eignarhaldið innan S-hópsins á milli
þriggja hópa og kemur hver hópur með um 4 milljarða króna
til kaupanna. VIS, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhalds-
félag Samvinnutrygginga verða með þriðjung. Ker verður með
þriðjung og franski bankinn Société Genérale (þýska útibú
hans) verður með þriðjung. Hlutir Kers, Société Genérale og
Eignarhaldsfélags Samvinnutrygga verða undir eignarhalds-
félagi sem heitír Egla ehf. Það mun hafa verið Ólafur Ólafsson
sem fékk franska bankann inn í kaupendahópinn en bankinn
kom fyrst að málinu í sumar sem ráðgafi S-hópsins við kaupin.
Ef allt gengur samkvæmt áætlun þá fær S-hópurinn 3 menn
af 5 í bankaráði. Gera verður ráð fyrir því að það gerist strax í
26