Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 64
Bryndís telur sig ekki hafa orðið vara við samdrátt á verslun
fyrir jólin í ár. „Það er aukning hjá okkur það sem af er þannig
að við erum nokkuð kát hér á bæ. Jólaverslunin byrjaði með
látum hjá okkur á sprengidag í byrjun nóvember þar sem
margir gerðu góð kaup. Aukningin hjá okkur bendir til þess að
fólk sé aðeins fyrr á ferðinni. Er það ekki lenska að allir reyna
að komast hjá stressinu sem það lenti í í fyrra og stefna á að
hefja undirbúning fyrr en áður? Það er kannski að takast nú.
Okkur finnst áberandi hve hagsýnt fólk er og leggur sig fram
við að velja nytsamar jólagjafir.“
fllltaf einhverjir sem versla erlendis Bryndís telur engan vafa
á því að samdráttur hefur orðið í verslunarferðum Islendinga
til annarra landa. „Við heyrum margar skemmtilegar sögur frá
okkar viðskiptavinum þar sem þeir hafa lýst ánægju með til-
komu Debenhams til íslands. Þeir þurfi ekki lengur að versla
erlendis þar sem flestallt fæst hér heima og meira til, en njóta
þess í stað að vera í fríi, borða góðan mat og slaka á. En það eru
alltaf einhveijir sem munu versla erlendis. Astæðuna tel ég
vera þá að þeir gefa sér tíma því að þeir eru í frii, en tel einnig
að það sé af því að þeir halda að þeir séu að gera betri kaup -
ekki endilega að þeir séu að gera það,“ segir Bryndís. SH
Sigurveig Lúðvíksdóttir, eigandi Kúnigúnd við Laugaveg: „Efviðskiptavinunum finnst vöruúrvalið gott og þjónustan í lagi - þá kemurfólk til
að versla - sama hvort það er í Smáralind, Kringlu eða við Laugaveg. “
Sigurveig Lúðvíksdóttir, eigandi Kúnigúnd:
Laugavegurinn samkeppnisfær
Sigurveig Lúðvíksdóttir, eigandi verslunarinnar Kúnigúnd-
ar að Laugavegi 53, telur að virk samkeppni eigi sér stað
milli verslunarkjarna á höfuðborgarsvæðinu, en vill þó
meina að Laugavegurinn sé fjarri því eftirbátur annarra í þeim
efnum.
„Samkeppni milli Smáralindar, Kringlu og Laugavegar er
auðvitað til staðar. Annað væri óraunverulegt að tala um. En
hitt er annað mál hvernig menn vilji standa að því að koma
vöru sinni á framfæri," segir Sigurveig. Verslun hennar,
Kúnigúnd, var til sautján ára við Skólavörðustíginn, en fluttist
um set niður við Laugaveg um sl. páska.
„Eg vil meina að ef húsnæði og aðbúnaður hvers konar er
góður og viðskiptavinunum finnst vöruúrvalið vera gott og
þjónustan í lagi - þá kemur fólk til að versla - sama hvort það er
í Smáralind, Kringlu eða á Laugavegi. Eg hef verið í verslunar-
rekstri í 20 ár, alltaf í miðbænum og get með sanni sagt að ég
hef aldrei haft betri verslun en núna á Laugaveginum. Ég er í
nýju húsnæði sem er bjart og rúmgott og það er greinilegt að
viðskiptavinirnir kunna vel að meta vöruúrvalið hjá mér.
Jólaverslunin hjá mér er farin af stað á svipuðum tíma og
undanfarin ár og hvað mína verslun áhrærir, þá finn ég ekki
fyrir samdrætti. Ég get ekki ennþá merkt að fólk hafi minna
fé milli handa. Jólavörurnar hjá mér seljast sem aldrei fyrr og
fólk gleðst yfir því að versla á Laugaveginum í björtu og stóru
húsnæði."
Sigurveig telur að í dag fari færri íslendingar í verslunar-
ferðir til útlanda eins og svo algengt var fyrir nokkrum árum.
„Mín tilfinning fyrir verslunarferðum til útlanda er að það fólk,
sem fer í helgarferðir, er ekki endilega að fara til að versla
heldur til að eiga skemmtilega stund í framandi umhverfi. Eins
er mín tilfinning fyrir verslunarferðum til útlanda sú að ekki sé
farið eins mikið og undanfarin ár,“ segir Sigurveig. [E
64