Frjáls verslun - 01.10.2002, Síða 27
Jón Þór Hjaltason, eigandi J&K eignarhaldsfélags, Jón Helgi Guðmundsson íByko, ogAxel Gíslason, framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Sam-
vinnutrygginga.
kjölfar undirritunar kaupanna þótt greiðsla og afhending bréf-
anna verði í tvennu lagi. S-hópurinn greiðir 27,48% við undir-
skrift og 18,32% eigi síðar en 20. desember á næsta ári. Eignar-
hlutur ríkisins í bankanum eftir söluna verður 9%. Draga verður
í efa að ríkið geri kröfu um bankaráðsmann fram til 20. desem-
ber á næsta ári þegar það fær seinni skammtinn greiddan. IH
Hverjir fara í bankaráð Búnaðarbankans?
ví hefur verið haldið fram að í bankaráðið setjist þeir Þórólfur
Gíslason, fyrir hönd VIS, Hannes Þór Smárason, fyrir hönd
Kers, og einhver erlendur fulltrúi franska bankans. Jón Helgi
Guðmundsson situr þegar í bankaráði Búnaðarbankans en þar
var hann kjörinn eftir að Gilding sameinaðist Búnaðarbank-
anum í lok síðasta árs. Jón Helgi var einn af helstu foringjum
Gildingar ásamt þeim Þórði Magnússyni og Þorsteini Vilhelms-
syni, skipstjóra og íjárfesti í Ránarborg ehf. Fjárfestarnir í Gild-
ingu voru á meðal fimm aðila sem lýstu yfir áhuga sl. sumar á
að kaupa hlut ríkisins í Búnaðarbankanum. Þeim var hafnað. I
ljósi þess að Jón Helgi er kominn í S-hópinn má segja að hann
og Gildingarmenn séu núna að koma bakdyramegin að kaup-
unum. Gilding á um 10% eignarhlut í Búnaðarbankanum en
hægt er að eyrnamerkja yfir 20% eignarhlut þeim sem stóðu að
Gildingu. Þetta styrkir auðvitað völd Jóns Helga enn frekar
innan bankans og gerir hann líklegastan sem næsta banka-
ráðsformann.
Finnur oo Ólafur Ýmsir hafa haft á orði að fulltrúar S-hóps-
ins í Búnaðarbankanum geti allt eins orðið þeir Finnur Ing-
ólfsson, fyrir hönd VÍS, (en hann landaði samningnum við
einkavæðingarnefnd), Ólafur Ólafsson, fyrir hönd Kers, og
síðan erlendur fulltrúi franska bankans. Nema þá auðvitað að
Ólafur verði fulltrúi franska bankans og Hannes Þór Smára-
son komi inn sem fulltrúi Kers. Telja menn sig þar geta lesið
Kremlarlógíu út úr myndinni, sem birtist á baksíðu Morgun-
blaðsins eftir undirritun samkomulagsins hinn 16. nóvember
sl., þar sem þeir Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson héldu
af fundi einkavæðingarnefndar saman í bíl, glaðbeittir að sjá.
Flestir eru þó á því að Þórólfur Gíslason komi inn í banka-
ráðið sem fulltrúi VÍS, Hannes Þór frá Keri og fulltrúi franska
bankans verði útlendingur. Gangi þessi kenning upp verða
þeir tengdafeðgar Jón Helgi og Hannes báðir í bankaráði
Búnaðarbankans eftir kaupin. Þá hafa menn velt því mjög
fyrir sér hvort Þórður Magnússon, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Gildingar, sé ekki sömuleiðis kandídat í bankaráðið.
Þórður og Jón Helgi eru nánir vinir og situr Þórður m.a. í
stjórn Norvikur. Þórður var í nær tuttugu ár framkvæmda-
stjóri ijármálasviðs hjá Eimskip og sat fyrir hönd félagsins í
stjórnum ýmissa félaga, m.a. Fjárfestingafélagi Islands. Ef
Þórður kemur inn í bankaráðið sem Gildingarmaður er lang-
líklegast að Jón Helgi verði þá fulltrúi Kers í bankaráðinu.
Allir eru á því að Jón Helgi og Gildingarmenn séu að tryggja
sér tvo fulltrúa af fimm í bankaráðinu. Œ]
VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélag Samvi n nutrygginga
verða með þriðjung. Ker verður með þriðjung og franski bankinn Société
Genérale (þýska útibú hans) verður með þriðjung.
27