Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 34
Þórólfur ásamt samstarfsmönnum sínum. Frá vinstri: Sigurjón R. Rafnsson, aðstodarkauþfélagsstjóri, Jón E. Friðriksson, framkvæmdastjóri
FISK, Þórólfur og Olafur Sigmarsson, forstöðumaður verslunarreksturs KS.
Æska Þórólfur átti skemmtilega æsku við dæmigerðar að-
stæður í íslensku sjávarþorpi á sjötta og sjöunda áratug síðustu
aldar. A þessum árum var mikið líf á Austfjörðum, sérstaklega
á sumrin þegar síldveiði var mikil og ijölbreytt atvinnulíf. Faðir
hans rak útgerð og síldarsöltun, heimilið var virkt og umsvifin
mikil. Hann fór ungur að vinna í síld, aðeins 10-11 ára, og vakti
þá í síldartörnum eins og fullorðna fólkið. Hann lék sér mikið
úti við og ærslaðist með krökkunum en sýndi snemma áhuga
á athafnalífinu. Faðir hans veiktist alvarlega þegar Þórólfur var
12 ára og átti við veikindi að stríða upp frá því. Þessi veikindi
settu sitt mark á æsku- og unglingsár Þórólfs því að hann varð
mjög virkur í fyrirtæki föður síns og var i rauninni sá sem
stýrði því þó að auðvitað væri það gert í samráði og samvinnu
við hin systkinin. Móðir Þórólfs hafði hinsvegar minni áhuga á
fyrirtækinu. Hún stundaði útivist, las bækur, skrifaði sögur og
orti ljóð. Mikill gestagangur var á heimilinu.
Menntun Þórólfur gekk í barna- og unglingaskóla á Reyðar-
firði, sem var undir stjórn Helga Seljan, síðar þingmanns. Hann
lauk gagnfræðaprófi í Reykjavík 1969, lagði stund á nám í
ensku í Englandi sumarið 1974 og lauk stúdentsprófi frá Sam-
vinnuskólanum á Bifröst í skólastjóratíð séra Guðmundar
Sveinssonar árið 1976. Skólahaldið á Bifröst var menningarlegt
og Jjölbreytt á þessum árum og bæði uppbyggilegt og þrosk-
andi á allan hátt.
Ferill Þórólfur byrjaði ungur að vinna, stundaði síldarsöltun á
sumrin frá 12 ára aldri á síldarplani föður síns, og gekk í öll störf
sem þurfti. A námsárum sínum vann hann við almenna fisk-
vinnslu, byggingavinnu og starfaði í tvö sumur sem mælinga-
maður hjá Vegagerð ríkisins. Þórólfur varð kaupfélagsstjóri við
Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn sumarið 1976. Hann hefur
stýrt Kaupfélagi Skagfirðinga frá 1988.
Félagsstörf Þórólfur tók þátt í leikriti og lék fótbolta með ung-
mennafélaginu Val á Reyðarfirði á unglingsárum en tók að öðru
leyti ekki mikinn þátt í félagsstörfum. Hann er alinn upp á póli-
tísku heimili. Faðir hans var sjálfstæðismaður og móðir alþýðu-
bandalagskona. Sjálfur var hann ákveðinn sjáifstæðismaður fram
eftir aldri en hann er flokksbundinn framsóknarmaður í dag. Fé-
lagar hans eru sammála um að hin pólitísku trúskipti hafi orðið
meðan hann var í Samvinnuskólanum og hefur Fijáls verslun
heimildir fyrir því að hann hafi gengið í Framsóknarflokkinn
skömmu eftír samvinnuskólapróf, sennilega þegar hann bjó á
Þórshölh. Þórólfur hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Framsóknarflokldnn á landsvísu, m.a. setið í miðstjórn og kjör-
dæmisstjórn flokksins, en ekki skipt sér neitt af pólitikinni heima
í héraði og hefur þá fyrst og fremst hagsmuni fyrirtækisins í
huga. Hann hefur einnig setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og sam-
taka, t.d. í stjórn Osta- og smjörsölunnar, í bankaráði Búnaðar-
banka Islands, stjórn Samtaka verslunar og þjónustu, fulltrúaráði
Samtaka atvinnulífsins og stjórn Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði. Hann hefur einnig leitt nefnd á vegum landbúnaðarráð-
herra um framtíð Hólaskóla, svo að dæmi séu nefnd. Þórólfur er
stjórnarformaður Vátryggingafélags Islands.
Persóna Þórólfur er dagfarsprúður, hægur og rólegur maður
sem litið fer fyrir í daglegri umgengni, yfirvegaður, jafnlyndur og
skapgóður. Hann er afskaplega hlédrægur, hleypir ekki öllum að
sér og er afar varfærinn gagnvart fólki. Hann er ekki mjög ræð-
inn við fyrstu kynni og ræðir aldrei einkamál sín, bara viðskipti,
þjóðmál og stjórnmál. Honum er lýst sem alvörugefnum manni,
sem taki sjálfan sig og starf sitt mjög hátíðlega og er vandur að
virðingu sinni. Hann er sagður hafa verið mikill húmoristi og ær-
ingi á yngri árum en sífellt bólar minna á húmornum með árun-
um. „Það er eins og hann hafi misst húmorinn frá sér. Það er
ekki fyrr en við hittum einn nágranna minn sem Þórólfur fer í
sama gírinn og í gamla daga. Hann vitnar stundum í þetta og ég
gæti best trúað því að hann sakni þessa tíma,“ segir Sigurður
Baldursson, mágur hans og vinur. Þórólfúr þykir góður drengur
og traustur vinur, maður sem stendur við orð sín. Hann lifir fyrir
vinnuna og er sífellt með starfið í undirmeðvitundinni. Hann er
maður leikfléttunnar, klókur, hefur góða yfirsýn og ákveðnar
skoðanir og segir skoðun sína skýrt. Hann veit hvað hann vill og
hvernig það verður að veruleika. Hann hugsar viðskipti og póli-
tík eins og skák, leggur leikfléttuna niður fyrir sig og hugsar
hlutina út í ystu æsar. Hann hefur lengi stefnt að því að ná völd-
um í íslenskum viðskiptum. Hann hefur tengiliði inn í marga
stjórnmálaflokka og vill hafa ítök í mönnum. Þórólfur beitir
aldrei hroka heldur er mjúkur og þægilegur og frekar meyr en
þegar hann er beittur þrýstingi eða þarf að veija sig þá verður
hann harður og erfiður viðureignar. Guðni segir að hann geti
breyst þegar hann keyrir mál í höfn, þessi hlédrægi maður verði
þá harður og ákveðinn. Að sögn Helga S. Guðmundssonar,
formanns bankaráðs Landsbankans, fer Þórólfur sínar eigin
34