Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 60

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 60
Guðmundur Jónsson ásamt samstarfsfólki sínu. Þau eru arkitektarnir Þórður Bryngeirsson, Ingar Svinerud ogAne Forfang. Guðmundur Jónsson, arkitekt í Osló. Guðmundur lýsir rekstri arkitektastofu sem lífsstíl. Eigandinn er í vinnunni allan sólarhringinn - alltaf á þönum við að redda hlutunum. Guðmundur hefur einnig getið sér orð fyrir að setja upp sýningar. I Noregi eru þær orðnar 14 og flestar fastar. I Lille- hammer eru til dæmis sýningar um sögu Noregs og um vetrarólympíuleikana þar opnar almenningi allt árið. Þjóðarathygli Mest orð fer þó af ferðamannamiðstöðvum sem Guðmundur og hans fólk hefur hannað. Sonja Noregs- drottning opnaði í sumar flölsóttustu miðstöð landins í Geirangursfirði. Það var verk Guðmundar. Hann á líka þjóð- garðsmiðstöðina á Harðangursöræfum og nú er verið að reisa fyrsta stórhýsið af þremur í Rörvík í Norður-Þrænda- lögum. Upphaflega var Guðmundur fenginn til Rörvíkur að hanna sjóminjasafn undir nafninu Norveg - og mótaði það í skipslíki. Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra kastaði hornskríni þess húss í sjóinn í sumar. Eftir að hönnun Norveg var lokið tók Guðmundur að sér að bæta við skrifstofubyggingu undir nafa- inu Systurskipið. Bygging þess húss er nú langt á veg komin. Og hönnun hótels á sama stað er að ljúka. Þetta þrefalda verk- ethi er hið stærsta sem Guðmundur hefur tekist á við. Við hönnun sína lætur Guðmundur hugmyndafræðina og notagildið ráða mestu. Hann hugsar minna um stílbrigði. í Rörvík eru það tengslin við haf og útgerð sem ráða útlitinu. Ferðamannamiðstöðin í Geirangursfirði er í spjótslíki - geir þýðir spjót. Guðmundur byrjar venjulega á hugmynd sem tengist sögu staðarins, náttúru eða nafni. Skýjum Ofar rneð gín og tónik Verkin sem koma frá stofu Guðmundar eru frumhönnuð af honum en hann hefur að jafnaði haft þrjá til sex arkitekta sér til aðstoðar við fullvinnslu verkanna. Sjálfur er hann mikið á ferðalögum. Hann fer á sex vikna fresti til íslands og segir reyndar að sér láti best að hanna hús á fartölvuna sína sitjandi í Flugleiðavél skýjum ofar með gin og tónik sér við hlið! Guðmundur er íslendingur sem náð hefur að byggja upp eigin rekstur í öðru landi. Hann hefur fundið sinn kima í húsagerðinni, og hefur náð að festa sig í sessi sem einn fremsti hönnuður landsins á sínu sviði. Guðmundur leggur þó áherslu á að þessi rekstur er fallvaltur. Bygging húsa er mjög háð sveiflum í efnahagslífinu. Guðmundur lýsir rekstri arkitektastofu sem lífsstíl. Eig- andinn er í vinnunni allan sólarhringinn - alltaf á þönum við að redda hlutunum. Erlendar aðstæður Guðmundur segir að það skipti sig miklu máli að fara reglulega til Islands enda sé hann íslendingur í húð og hár. Kostirnir við að vinna í útlöndum eru þó þeir að verkefnin eru fleiri og stærri, úrvalið meira og samkeppnin frískari. Okostirnir við að vinna í landi eins og Noregi er að skrif- ræðið er oft þyngra í vöfum en á Islandi; afgreiðsla mála tekur lengri tíma. Og Guðmundur bendir á fleiri atriði. Norskt þjóðfélag er einnig fastara í skorðum en íslenskt og skil milli þjóðfélags- stétta skýrari. „Ég á engar rætur í norsku samfélagi einfaldlega af því að ég er „útlendingur". Hér skipta ljölskyldutengsl miklu máli. Það skiptir öllu að hafa gengið í réttan menntaskóla og að hafa alist upp í góðu hverfi - að þekkja rétta fólkið. Og að stunda það sem í Ameríku kallast „networking" og felst í að byggja upp persónuleg tengsl við rétt fólk í réttum stöðum. Ég hef verið svolítið bláeygður á þessu sviði.“ S5 „Ég á engar rætur í norsku samfélagi einfaldlega af því að ég er „útlendingur“. Hér skipta fjölskyldutengsl miklu máli. Það skiptir miklu máli að hafa gengið í réttan menntaskóla og að þekkja rétta fólkið.“ 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.