Frjáls verslun - 01.10.2002, Blaðsíða 72
aa^ 6eti*í
Heimilistæki
Heimilistæki ehf. er nýtt fyrirtæki á
gömlum grunni. Fyrirtækið tók
við rekstri verslunar Heimilis-
tækja í Sætúni í sumar og markmiðið
er að byggja upp öfluga og stóra sér-
verslun með góðri þjónustu, miklu
úrvali og lágu vöruverði. Úrval í versl-
uninni hefur verið aukið til muna, verð
lækkað og þjónusta aukin.
Heimilistæki er með umboð fyrir
íjölda þekktra vörumerkja og ber þar
helst að nefna Philips, Whirlpool,
Bauknecht, Kenwood, Nad, Sanyo og Casio. Ólíkt stór-
mörkuðum þá fær viðskiptavinurinn upplýsingar í versluninni,
verðlistar og bæklingar til reiðu og allar vörur merktar með
helstu upplýsingum til að auðvelda viðskiptavininum að finna
vöru við hæfi. Sölufólk er með áralanga reynslu í sölu á raf- og
heimilistækjum og kappkostar að veita framúrskarandi góða og
heiðarlega þjónustu. Þær vörur sem eru auglýstar eru til, og þær
seldar eins og aðrar vörur en ekki notaðar til að lokka fólk inn og
selja svo dýrari og lakari vörur eins og orðið er algengt í dag.
Það eru fimm nýjungar sem ber hæst að nefna þessi jólin og
gætu heillað þá sem vilja allt það nýjasta og flottasta.
Heimilistæki ehf. er nýtt fyrirtæki
á gömlum grunni. Fyrirtœkið tók
>ið rekstri verslunar Heimilistækja
í Sætúni i sumar. Það eru fimm
nýjungar sem ber hæst að nefna
þessijólin.
Efdr Isak Örn Sigurðsson
skjánum nafn á lagi og flyljanda, ein-
faldri ijarstýringu og hátölurum með
wOOx bassa sem tryggir mjög góðan
hljómburð. Að auki er hægt að tengja
stæðuna við tölvu og spila MP3 lög
beint af tölvunni og síðast en ekki síst
að tengja tölvuna við Netið og fá aðgang
að íjölmörgum útvarpsstöðvum um
allan heim. Stæðan er mjög auðveld í
notkun og barnaleikur að finna útvarps-
stöð við sitt hæfi og hægt að velja
tegund tónlistar sem verið er að leita að.
DVD-Spilari með upptöku DVD-tæknin heldur áfram innreið
..... riwn—iMna—sinni, og
hefur salan á
DVD-spilur-
jj um aukist
gífurlega á
undanförnum mánuðum. Philips er leiðandi á þessu sviði og
komnir með á markað DVD-spilara með upptöku. Nú er fyrst
möguleiki á að losa sig alveg við gamla myndbandstækið og
taka upp á DVD. Diskana má svo spila í hvaða DVD-spilara
sem er.
Ný breiðtjaldssjónvörp fra Philips Fyrir þá sem eru að leita
að hámarks myndgæðum þá eru
32“ og 36“ Pixel Plus sjónvörpin
frá Philips málið. Tæknin byggir á
að fjölga línum og punktum á
skjánum sem gerir myndina skýr-
ari og skarpari en í öðrum sjón-
vörpum á markaðnum í dag. 32“
Philips Pixel Plus fékk hin eftir-
sóttu EISA verðlaun fyrir
skömmu sem besta sjónvarp Evr-
ópu 2002-2003 en verðlaunin eru
þau virtustu sem veitt eru ár hvert af samtökum fagtímarita.
Tækin eru með breiðtjaldsformi og því sniðin fyrir framtíðina
og tilvalin sem miðjan í vönduðu bíókerfi í stofunni. Hægt er að
fá tækin með innbyggðu heimabíókerfi.
Ný hljómtækjasamstæða sem hægt er að tengja við Netið
Philips var að koma með á
markað nýja hljómtækjasam-
stæða, Streamium Mci-200,
þá fyrstu í heiminum sem
hægt er að tengja við netið.
Streamium stæðan er búin
öflugum 2xl00w magnara, vönduðu
útvarpi, Geislaspilara sem spilar MP3 diska og sýnir á
Amerískir ísskápar með evrópskri hönnun Whfrlpool, stærsti
framleiðandi heims á eldhústækjum, þvottavélum og skyldum
vörum, er kominn með á markað nýja línu af amerískum
ísskápum sem passa inn í íslenskar innréttingar á meðan hefð-
bundnir amerískir ísskápar eru dýpri en flestar innréttingar.
Skáparnir eru vel búnir, með klakavél og köldu vatni og fást í
6 útfærslum í hvítu, svörtu og stáli. Einnig er hægt að fá skápa
til innbyggingar þar sem setja má aðra plötu framan á skápana
í stíl við innréttingu.
Philips Sensotec rakvélin notuð af James Bond Philips eru
þekktir fyrir framúrskarandi rakvélar, þar
sem góður rakstur er í fyrirrúmi. Heimilis-
tæki eru með á boðstólum ijölmargar gerðir
svo að allir ættu að finna rakvél við sitt hæfi.
Sú allra nýjasta var að koma á markað og er
þar á ferðinni ný Sensotec rakvél, svo að
meira að segja James Bond getur lagt gömlu
góðu sköfunni! Rakvélin er búin öllu því
besta frá Philips og nýtt „Comfort Control“
býður upp á að stilla raksturinn eftir þörfum
hvers og eins. Philips Sensotec rakvélin
kemur í vandaðri gjafaöskju og er tilvalin
jólagjöf fyrir athafnamanninn sem vill aðeins
það besta.B!]
72