Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 85

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 85
SILKIFYRIRTÆKI í BRETLflNDI_ m silki að halda tryggilega utan um reksturinn og fara ekki of óðslega.“ Núna metur Ragna sem svo að hún þurfi kannski að bæta við tveimur starfsmönnum, en að öðru leyti er útþenslunni náð. Hún álítur að dreifingarnetið sé orðið nógu stórt og gott nú þegar hún er komin með dreifingaraðila í Tokýó og París og verður innan skamms komin með vörur sínar á þau sýningarsvæði í Bandaríkj- unum sem skipta máli. „Ég held að viðskiptin í Bandaríkjunum eigi eftir að taka vel við sér.“ Ragna ásamt nokkrum starfsmanna sinna. Hugh Grant kom í sýningarbúðina okkar í Chelsea Harbour með hönnuðinum Silki 09 lystisnekkjur Silki og lystisnekkjur er blanda, sem hefur gagnast Chase-Erwin vel undanfarið. Fyrir Jjórum árum fór lystisnekkjulýrirtækið Sunseeker að nota silkiáklæði, -púða og -rúmteppi frá Chase-Erwin í sýningarbáta sína. Það mæltist svo vel fýrir hjá snekkjukaupendum að Ragna hefur hannað sér- staka linu sem kallast „Yacht Club“, sérstaklega miðaða við liti og efni, sem henta vel í báta. Þessi lína er ein sú vinsælasta hjá Sunseeker. Þegar Ragna sá myndir í Séð og heyrt nýlega af Sunseeker-snekkju í íslenskri eigu þótti henni sniðugt að sjá að þar voru öll efnin frá íýrirtækinu hennar. „Fyrirfram hefði ég ekki haldið að silkiefnin hentuðu í báta, en þau koma mjög vel út. Það mæðir reyndar ekki mikið á þeim, þvi svo svona bátar eru mest notaðir til að halda í þeim veislur. í höfn sofa flestir eig- endurnir á hótelum." Kjarninn í fyrirtækinu er nú 600-650 tegundir af silkiefnum og silkiblöndum, en undanfarið hefur Ragna einnig farið út í að útvega óeldfim efni, sem er víða orðin krafa um á hótelum. Það var fyrir íslenskt hótel, sem hún útvegaði fyrst slikt efni og þá reynslu hefur hún svo nýtt sér erlendis. Ragna hefur frá upphafi sjálf hannað efnin og segist hafa mest gaman af þeirri hlið. Með úrvalsstarfsfólk, allt konur nema lagermanninn, getur hún núorðið einbeitt sér að hönnuninni. „I fyrstu sýnishornamöppunum var allt mögulegt, en nú erum \tið farin að vanda okkur miklu meira í því að setja möppurnar saman þannig að allt fari vel saman. I sumar komum við með 70 ný efni á markaðinn og þau passa öll saman.“ Hugh Grant, David Bowie og Madonna Þegar um hótelinnréttingar eins og á Dorchester, Renaissance Cbancery Court og öðrum glæsihótelum er að ræða getur Ragna virt fyrir sér árangurinn. En iðulega eru efnin notuð í heimili stór- og smá- stirna úr tónlistar- og kvik- myndaheiminum og oft veit sínum. David Bowie hefur líka fengið efni hjá okkur. Stórstjörnur eins og Madonna fá allt sent heim. Ragna ekki einu sinni hveijir viðskiptavinirnir eru. „Ég veit um nokkra viðskiptavini af þessu tagi. Hugh Grant kom í sýningar- búðina okkar í Chelsea Harbour með hönnuðinum sínum. David Bowie hefur lika fengið efni hjá okkur. Stórsljörnur eins og Madonna fá allt sent heim. Við höfum selt henni nokkrum sinnum. George Harrison var alltaf að gera eitthvað nýtt og spennandi heima hjá sér áður en hann lést,“ segir Ragna og bætir þvi við glettnislega að vissulega væri gaman að sjá hvernig efnin væru notuð á svona heimilum. Ragna er áberandi afslöppuð þegar hún ræðir umsvifin undanfarin ár og það hljómar eins og það hafi verið auðvelt og streitulaust að ná þangað sem hún hefur náð. „Þetta hefur vissu- lega verið mikil vinna, en það er alltaf gaman að koma í vinnuna og við reynum að gera okkur þetta eins auðvelt og við getum. Við skiptum bara við fáa framleiðendur, sem við vitum að standa sig. Ég gæti ekki gert þetta allt ein og ég er með ein- stakan hóp með mér. Við erum eins og saumaklúbbur og þarna vinna gamlar vinkonur mínar með mér. Ein er fyrrverandi au-pair hjá mér. Undirstöðuatriðið er algjör nákvæmni og persónuleg en um leið alþjóðleg þjónusta. Við erum tilbúnar til að leggja okkur endalaust fram til að koma til móts við viðskiptavinina.“ SH Ragna Erwin, sem upphaflega hét Ragnhildur Pálsdóttir, var hlaupa- drotting heima á Islandi og Islandsmeistari t greininni. Núna á hún og rekur þekkt silkifyrirtœki í Bret- landi.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.