Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 94

Frjáls verslun - 01.10.2002, Page 94
LÍFEYRIS iPARNAÐUR Dæmi: Hjón hafa skipt með sér áunnum ellilífeyrisréttindum. Við andlát, t.d. eiginkonu sem hefur lakari lífeyrisréttindi en eiginmaðurinn, getur eiginmaðurinn borið skertan hlut, þ.e. minni ellilífeyri og slakari makalífeyri. Þetta snýst hins vegar við ef eiginmaðurinn fellur fyrr frá. Skiptingin skal aðeins taka til áunninna réttinda meðan hjú- skapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða mun standa. Skipting ellilífeyrisréttindanna getur verið með eftirfarandi hætti: • I fyrsta lagi er heimilt að skipta samtímagreiðslu ellilifeyris, þ.e. þeim greiðslum sem nú fara fram. • I öðru lagi er hægt að skipta áunnum ellilífeyrisréttindum. • I þriðja lagi er um að ræða skiptingu þeirra ellilífeyrisrétt- inda sem munu ávinnast eftir að samkomulag um skipting- una hefur verið gert. - I ljós hefiir komið að hjón notfæra sér í litfum mæli skiptingu lífeyrisréttinda sem heimiluð er samkvæmt ákvæðum áður- nefndra laga frá 1997. Hvernig stendur á þvi? „Það er ákaflega erfitt að gera sér grein fyrir því af hverju hjón eða sambúðaraðilar notfæra sér ekki þann rétt að skipta ellilíf- eyrisréttindum sínum. Skiptingin getur varðað ellilífeyrisréttindi í nútíð, fortíð og framtíð. Ákvæði laganna eru nokkuð flókin og ekki allt sem sýnist í þeim efnum og e.t.v. er upplýsingagjöf líf- eyrissjóðanna ekki nægjanleg. Þegar á annað borð er verið að skipta áunnum ellilífeyrisrétt- indum, er algengast að hjón, sem eru að skilja, skipti ellilífeyris- réttindum sínum sem áunnist hafa í hjúskap. Báðir aðilar þurfa þó að samþykkja skiptinguna og er hún þá endanleg. Almenna reglan er sú að hjón eða sambúðaraðilar eiga hvorki að hagnast né tapa á því að skipta ellilífeyrisréttindum sín- um. Við skiptingu áunninna ellilífeyrisréttinda ber þó að huga vel að makalífeyrisréttindum beggja hjónanna. Viðbótarlífeyrissparnaður Dæmi: Einstaklingur með 150.000 kr. á mánuði leggur til hliðar 4% í við- bótarlífeyrisparnað eða 6.000 kr. á mánuði... Hann fær strax 2.312 kr. sem lækkun á staðgreiðslu skatta vegna skattfrestunar... Til viðbótar greiðir síðan launagreiðandinn 2,4% af 150.000 kr. mánaðarlaunum eða 3.600 kr. á mánuði... Viðkomandi einstaklingur greiðir því í viðbótarlífeyrissparnað 3.688 kr. á mánuði [6.000 kr. - 2.312 kr.L. En sú fjárhæð, sem færð er mánaðarlega inn á séreignarreikning hans, getur hins vegar numið allt að 9.600 kr. Inneignin er fjármagnstekju- og eignaskattsfrjáls en greiddur er tekjuskattur af útborguninni... Við andlát maka, t.d. eiginkonu, sem skipt hefur áunnum elli- lífeyrisréttindum og hefur lakari lífeyrisréttindi en eiginmaður- inn, getur eiginmaðurinn borið skertan hlut, þ.e. minni ellilifeyri og slakari makalifeyri. Þetta snýst hins vegar við ef eiginmaður- inn fellur fyrr frá. Þá fær konan betri ellilífeyrisréttindi og heldur góðum makalífeyrisréttindum vegna fráfalls mannsins. Hér skal áréttað að í þessu dæmi er gert ráð fyrir því að karlar ávinni sér almennt betri lifeyrisréttindi en konur, en dæmið snýst við ef svo er ekki. Nauðsynlegt er því að huga vel að áunnum lífeyrisréttindum beggja aðila við skiptingu ellilifeyrisréttindanna. Ekki er hægt að skipta þegar áunnum ellilífeyrisréttindum, ef talið er að heilsufar dragi úr lifslíkum sjóðfélaga." Sameiginleg lífeyrisréttindi við skilnað Við tökum hér dæmi um hjón sem eru 55 ára og að skilja, annar aðilinn er með líf- eyrisréttindi hjá rikinu en hinn með bróðurpart lifeyrisréttind- anna hjá séreignasjóði. Einnig ef annað hjóna deyr á undan maka. Hvernig er farið með lífeyrisréttindi þeirra ef þau hafa gert samning sín á milli? í þvi dæmi er skoðað tilvikið um 55 ára hjónin. Ef sá sem deyr fýrr er með mikil lífeyrisréttindi hjá ríkinu í sameignarsjóði - erfast þau réttindi án þess að um það hafi ver- ið gerður sérstakur samningur? En ef sá sem deyr er með digr- an séreignasjóð? Erfir makinn þá allan sjóðinn þótt gerður hafi verið samningur þar um eða aðeins hluta af honum sem er tíl skiptanna? „Eingöngu er um að ræða skiptingu ellilifeyrisréttíndanna. Hjónin halda áunnum örorku- og makalífeyrisréttíndum sínum,“ segir Hrafn. „Dæmið er hins vegar nokkuð snúið þegar kemur að séreignarsjóðunum. Ef sjóðfélaginn sem á séreign og sem hefúr skipt ellilífeyrisréttindum sínum, verður fyrir orkutapi eða fellur frá, greiðist öll séreign hans út samkvæmt ákveðnum reglum. I slíkum tilvikum flytjast ellilífeyrisréttindin ekki yfir til makans. Að þessu þarf að huga sérstaklega. Rétt er að ítreka að skiptíng ellilífeyrisréttinda milli hjóna er Tíu ástæður fyrir viðbótarlífeyrissparnaði 1. ISgjöldin eru frádráttarbær frá tekjuskatti. (Tekjuskattinum frestað.) 2. Allt að 2,4% mótframlag frá rtki og vinnuveitanda. 3. Séreign sem erfist. 4. Enginn fjármagnstekjuskattur. 5. Enginn eignaskattur. 6. Enginn erfðaskattur. 7. Ekki aðfararhæft við gjaldþrot. 8. Ekki áhrif til lækkunar vaxta- eða barnabóta. 9. Áhrifaríkur reglubundinn sparnaður. 10. Hægt er að hefja töku lífeyrisins við 60 ára aldur. (Tekju- skatturinn er greiddur við útgreiðslu.) 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.