Frjáls verslun - 01.10.2002, Qupperneq 105
Ingvar Kristinsson, framkvœmdastjóri Landsteina: „Hjá Iðntœknistofnun fékk ég mikla starfsreynslu og tók þátt í mikilli uþþbyggingu stofhunar-
innar en hún kom sér rækilega á kortið sem leiðandi í vöruþróun og verkefnastjórn. “ Mynd: Geir Olafsson
Ingvar Kristinsson,
Landsteinum
Efdr Vigdísi Stefánsdóttur
Sem framkvæmdastjóri
Landsteina leiði ég 60
manna hóp af vel mennt-
uðum og dugmiklum starfs-
mönnum á hugbúnaðarsviði,"
segir Ingvar Kristinsson. „Það
er mitt að vera leiðtogi hóps-
ins en þar sem þetta fólk er allt
mjög sjálfstætt og agað í
vinnubrögðum sínum, er mitt
starf ef til vill frekar að sækja
inn á ný svið og ákveða hvert
við ætlum að stefna og hvaða
verkefni við ætlum að vinna
hveiju sinni. I þessum hóp er
fólk með allt að 15 ára starfs-
reynslu á hugbúnaðarsviði en
meðalstarfsaldur eða reynsla
er um 10 ár.“
Landsteinar hafa um árabil
unnið viðskiptalausnir með
Navision hugbúnaði en ný-
lega var skipt um heiti á
Navision og heitir hugbúnað-
urinn nú Microsoft Business
Solution.
„Við höfum frá upphafi
starfað \dð að búa til lausnir
íýrir smásölu- og heildsölu-
verslanir og þangað sækjum
við meginhlutann af okkar við-
skiptum í dag.“
Ingvar lærði vélaverkfræði
við Háskóla íslands og útskrif-
aðist þaðan árið 1985. Hann
fór til framhaldsnáms í Þýska-
landi þar sem hann lærði vöru-
sljórnun og markaðsfræði en
strax efhr að hann kom heim
fór hann að vinna hjá Iðn-
tæknistofnun þar sem hann
var næstu níu árin á eftir.
„Hjá Iðntæknistofnun fékk
ég mikla starfsreynslu og tók
þátt i mikilli uppbyggingu
stofnunarinnar en hún kom
sér rækilega á kortið sem
leiðandi í vöruþróun og verk-
efnastjórn. I dag býr Iðtækni-
stofnun að þvi að vera með
einstaka reynslu og þekkingu
og nýtir hana í þágu sam-
starfsaðila sinna.
Eg tók m.a. þátt í iýrsta
íslenska evrópusamstarfsverk-
efninu á vegum Iðntæknistofn-
unar og leidddi annað; þróun
„róbóta“ í sjávarútvegi, en það
var unnið í samstarfi við Mar-
el. Það var m.a. sú þekking
mín sem leiddi mig inn í hug-
búnaðargeirann seinna."
Ingvar hætti hjá Iðntækni-
stofnun í ársbyrjun 1995 til að
vinna hjá Silfurtúni, týrirtæki
sem bjó til vélar til að endur-
vinna pappír.
„Silfurtún var þarna að
taka sín fyrstu skref og það
var mikið af skemmtilegum
verkefnum framundan þegar
ég kom til starfa. Meðal ann-
ars seldi Silfurtún vélar til tjar-
lægra landa eins og Kóreu og
Afríku en það skapaði reyndar
ákveðinn vanda vegna kostn-
aðar. Framleiðslan fékk lítinn
hljómgrunn hér á landi og illa
gekk að markaðssetja það.
Það lenti í vandræðum og ég
hætti í árslok 1996 og fór að
starfa hjá Hugviti, en ég hafði
hitt framkvæmdastjóra Hug-
vits, Ólaf Daðason, árið 1994
og kennt honum hvernig
sækja ætti peninga í Evrópu-
sjóði. Eg studdi Hugvit í gegn-
um umsóknarferlið og niður-
staðan var styrkur til að vinna
verkefni í árslok 1996, en þá
ákvað ég að fara yfir til Hug-
vits og leiða verkefnið sjálfur.
Það má segja að ég hafi síðan
unnið við hlið Ólafs meira og
minna í gegn um uppbygg-
ingu á Hugviti og GoPro
Landsteinum alveg þangað til
í febrúar á þessu ári, þegar ég
tók við framkvæmdastjóra-
stöðu hjá Landsteinum.“
Golf hefur löngum verið
talið skemmtilegt sport og það
er einmitt í miklu uppáhaldi
hjá Ingvari. ,Annars spila ég
líka bridge með félögum mín-
um og er svo í aðalstjórn
Hauka og það verður liklega
að teljast mitt aðaláhugamál,"
segir hann. „Eg ólst upp í
félaginu í gegnum körfubolta,
allt frá því að ég var 10 ára.“
Ingvar segist hafa það að
reglu að eyða helgunum með
ijölskyldu sinni, en hann á tvö
börn með eiginkonu sinni,
Steinunni Jóhannsdóttur,
hjúkrunarfræðingi og ljós-
móður. Við förum talvert mik-
ið í gönguferðir og njótum
þess að vera saman og ég læt
eiginlega ekkert trufla það,“
segir hann. „Mér finnst það
mestí ósiður að láta helgarnar
í vinnu og stend nokkuð fastur
á því og er bara heima hjá mér
með flölskyldunni.“3!l
105