Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 6
RITSTJÓRNARGREIN
Er Kolkrabbinn dauður?
Þessi spurning hefur eðlilega brunnið á fólki vegna
frétta af stríðinu um Straum og að Landsbankinn og
Samson, með Björgólf Guðmundsson kaupsýslu-
mann í fararbroddi, ætli í gegnum Straum og Lands-
bankann að ná Eimskipafélaginu undir sig og þar
með tengdum félögum, ekki síst Flugleiðum. Erfitt er
að rökstyðja sig til þeirrar niðurstöðu að Kolkrabbinn
sé dauður. En hann er augljóslega orðinn áhrifaminni
og að fá á sig nýja ásjónu. Hann losaði að eigin frum-
kvæði í sumar um tengslin við Skeljung þótt sterk valdastaða
hans innan tyrirtækisins ræki hann ekki til þess. Þá hafði hann
frumkvæði að því að Landsbankinn og TM ykju hlutafé sitt í
Eimskipafélaginu iyrr í sumar og hefur eflaust hugsað þau félög
sem meðspilara. Breyttur Kolkrabbi virðist því meðvituð
ákvörðun hans; hann hefur haft eigin örlög í hendi sér.
Léleg arðsemi af kjarnastarfsemi Kolkrabbinn hefur verið skil-
greindur sem eignatengslin á milli Sjóvár-Almennra, Eimskipa-
félagsins, Skeljungs og Flugleiða. Hann er því í eðli sínu eigna-
tengsl, samspil eigna. Engu að síður er rætt um Kolkrabba-iyrir-
tæki og þau dafna misvel. Það hefur t.d. vakið athygli flestra í við-
skiptalífinu að Straumur hafi keypt markvisst í Eimskipafélaginu
og aukið hlut sinn um rúm 8% frá því í vor og orðið stærsti hlut-
hafinn. Menn hafa sagt sem svo: Hvað er Straumur að fara með
þessum kaupum þar sem Eimskipafélagið hefur haft litla arðsemi
af kjarnastarfsemi sinni i flutningum á undanförnum árum og
sömuleiðis hefur afkoman í sjávarútvegshluta iyrirtækisins ekki
verið neitt til að hrópa húrra fyrir vegna sterkrar stöðu
krónunnar? Má minna á að sjávarútvegurinn hefur heimtað
gengisfellingu á undanförnum mánuðum. Auðvitað hefur margt
mjög vel verið gert hjá Eimskipafélaginu á undanförnum árum
og félagið hefur skilað eigendum sínum góðum arði í gegnum
tíðina. En það má alltaf gera betur.
Kolkrabbinn snýst ekki bara um eignatengsl, heldur lika
ijárfestingar. Minnumst þess að Jjárfestar koma og fara þótt fúnk-
sjónir, eins og t.d. verslun, ijölmiðlun, flutningar og útgerð, hverfi
ekki. Það er gangur lifsins í viðskiptum að eignir
skipta um hendur. Markmið allra ijárfesta er að ná
hagnaði af ijárfestingum sínum, fara inn og út úr
íýrirtækjum á þeim tímapunkti sem þeir telja
arðbærastan og innleysa hagnað. Það er lika háttur
ijárfesta að dreifa áhættunni og vera ekki með of
mörg egg í sömu körfunni. Þess vegna eru til
almenningshlutafélög þar sem Jjárfestar láta
peningana sína vinna saman og tveir til þrír þeir
stærstu veljast til forystu. Enginn vafi leikur á að félagarnir í
Samson, langauðugustu menn þjóðarinnar og sterkasta viðskipta-
blokk landsins, geta keypt það sem þeir vilja í íslensku atvinnulifi
sé áhugi þeirra iýrir hendi. Flestir hafa túlkað margfræga yfirlýs-
ingu Björgólfs Guðmundssonar í flölmiðlum á þá leið að Lands-
bankinn sjái tækifæri í kringum Eimskipafélagið og Flugleiðir og
ætli sér að umbreyta þessum félögum og losa um hin margfrægu
eignatengsl sem kennd hafa verið við Kolkrabbann.
Fra völdum til Viðskipta Kolbrabbinn er miklu iýrirferðarminni
í viðskiptalifinu núna en hann var iýrir um fimmtán árum þegar
blokkirnar voru bara tvær, Kolbrabbinn og Sambandið. Á þeim
árum var raunhæft að tala um þær sem valdablokkir. Síðan hefur
það gerst að komnar eru fram á leiksviðið átta öflugar blokkir
ásamt mörgum öðrum sterkum ijárfestum og iyrir vikið hafa
áhrif hverrar blokkar minnkað og skilin á milli þeirra jafnvel orðið
óljósari. Eðlilegra er núna að nefna þær viðskiptablokkir. Þær
hugsa allar meira um arðsemi af viðskiptum fremur en völd. Frá
völdum til viðskipta - það er líklegast meginbreytingin í hnot-
skurn. Barnalegt væri þó að halda því fram að blokkirnar hugsi
ekkert um völd og eignatengsl lengur. Peningar búa til völd og
þeim iýlgja völd.
Kolkrabbinn er ekki dauður, en áhrif hans eru augljóslega
minni en áður. En ef til vill ætti spurningin ekki að snúast um
dauða Kolkrabbans heldur hvort nýr risakolkrabbi sé að fæðast
og taka við hlutverki hans. 53
Jón G. Hauksson
Stofiiuð 1939
Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 65. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrímur Egilsson
ÚTGEFANDI: Heimur hf.
V heimur
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA:
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is
ÁSKRmARVERÐ: kr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr.
DREIFING: Heimur hf., sími 512 7575
PRENTVTNNSLA: Gutenberghf.
UÓSMYNDIR: © Heimur hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
6