Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 55
mannahelgi mátti sjá krakka og
unglinga - jafnvel fullorðna lika -
dansa bréfberadansinn eða „fun-
ky chicken" eins og sumir kalla
það, hreyfingarnar sem Eiður
Smári notar í auglýsingunum
þegar hann fagnar.
..eins og þú sért að dreifa
pósti....eins og þú sért að dreifa,"
segir Sveppi með svipaðri áherslu
og allt annað sem hann segir.
Frasarnir eru reyndar margir
hverjir frábærir:
Tfikkíð „...Hlauptu hlunkur...“
SflGflN BflK VID HERFERÐINfl -
Hárgreiðsla „...neineineinei....
kruflur eru tímalausar.... er eggið
að kenna hænunni..."
Mataræði „..eigum við að segja
1-500 og málið er dautt..."
Hópurinn sem gerði auglýsinguna. Samúel Bjarki Pétursson, leikstjóri hjá Spark, Ragnar
Árnason, Copy Writer/hugmyndasmiður auglýsingastofunni Gott fólk, Jóhannes Egilsson
verkefnastjóri NLC, Gunnar Páll Ólafsson, leikstjóri hjá Spark, Gary Wake, Creative
Director hjá Góðu Fólki, Einar Bjarnason, kynningastjóri NLC, og Pálmi Guðmundsson,
markaðsstjóri NLC. Mynd: Geir Ólafsson
Kveðjan „...svona er lifið...svona er lífið maður...“
Hjálhestaspyrnan „össssss"
„þetta er náttúrlega bara rugl.“
„...þetta er kannski fallegt mark, en þetta telur alveg jafn
mikið og öll hin mörkin og ekki þennan tón við mig...“
„hefðir þú meiðst í þessari hjólhestaspyrnu þá hefðir þú
getað endað eins og einhver feitabolla í KR eins og þú varst..
Auglýsingar í heímildarmyndaformi Það hefúr færst í vöxt að
nota stuttmyndir sem auglýsingar og þá gjarnan gerðar
nokkrar í einu, líkt og kynningin íýrir enska boltann hjá Sýn. En
hvers vegna var leitað út fýrir fýrirtækið til að gera auglýs-
ingarnar í stað þess að nota einfaldlega fólk innanhúss sem vel
á að vera fært um sllkt?
„Það að nota aðra en okkar fólk gerir það að verkum að
önnur sýn fæst á verkið og það verður að mínu mati ferskara en
annars,“ segir Pálmi. „Hér tókst ákaflega vel til og okkur tókst
að sýna Eið Smára í öðru hlutverki en venjulega, Sveppi brill-
erar og enski boltinn fer ekki fram hjá neinum."
Næringarfræðintjurinn, blaðafulltrúinn, þjálfarinn... Hlutverk
Sveppa eru mörg í myndunum sem eru að nokkru leyti teknar
þannig að þær séu fréttaskot eða lieimildarmyndir. Hann
kemur fram sem næringarráðgjafi - sem borðar sjálfur allt það
óhollasta og besta sem hann veit en gefur Eið Smára sellerí,
hann ráðleggur um útlit og hárgreiðslu og finnst krullur vera
tímalausar - af því hann er sjálfur krullhærður - og kennir snill-
ingnum að sparka rétt. Öll þessi hlutverk handlangar hann með
snilld og af eðlislægri einlægni sem sannfærir áhorfandann um
að einmitt svona fari þetta fram. Á meðan stendur Eiður Smári,
viðfangsefnið, kómískur á svip og hugsar með sér: „Byrjar hann
enn,“ en tekur þó þátt í öllu og hlýðir þjálfaranum sínum í einu
og öllu eins og góðum íþróttamanni sæmir. SH
Myndir af tökustað.
Mynd: Gary Wake
Við tökur á Kveðjunni.
Mynd: Gary Wake
55