Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 78
iHaustið er tíminn 01 að ráiía starfsmann
Við finnum
þann eina rétta
/
STRA MRI hefur yfir að ráða reynslu ogþekkingu á
starfsmannamarkaði og getur fundið rétta starfs-
manninn og rétta starfið.
Guðný Harðardóttir
annar eigenda og
framkvæmdastjóri
U4 m v-.y
STRA MRI
Ef við getum sparað fyrirtækjum og stofnunum birtingar-
kostnað auglýsinga, hraðað ráðningarferlinu, minnkað
áreiti vegna fyrirspurna frá þeim umsækjendum sem ekki
eiga erindi í viðkomandi auglýst starf og um leið hraðað tekju-
streymi inn til félagsins, af hveiju í ósköpunum ættum við þá að
vera að auglýsa laus störf til umsóknar, og það á tímum sem
þessum?" segir Guðný Harðardóttir, annar eigenda og fram-
kvæmdastjóri ráðningarþjónustunnar STRÁ MRI, þar sem hún
situr og hallar sér makindalega aftur á bak í þægilegum stól á
fallegri skrifstofu sinni með stórkostlegu útsýni jdir Esjuna og
sundin blá.
„Okkar sfyrkur byggist meðal annars á gríðarlega öflugum
gagnabanka, sem auðveldar okkur leitina við að finna þann eina
rétta. Ef vinnuveitanda vantar starfsmann með ákveðna reynslu
og/eða sérhæfingu hefjum við leitina með því að fletta upp í
okkar eigin gagnabanka og þess vegna auglýsum ef til vill
minna en margir aðrir,“ heldur hún áfram. „Þannig spörum við
vinnuveitendum bæði fé og fyrirhöfn og allir hafa hag af. Við
búum jafnframt að verulegri reynslu á sviði ráðningarmála,
höfum haft milligöngu um yfir 5000 ráðningar fyrir mörg helstu
fyrirtæki landsins á síðustu tveimur áratugum.“
Ráðningarþjónustan STRÁ var stofnuð árið 1994 en stofn-
endur hennar höfðu þá starfað lengi á þessum vettvangi og
komu með mikla þekkingu og reynslu inn í fyrirtækið. Frá upp-
hafi hafa vönduð vinnubrögð og trúnaður við viðskiptavini, sem
og umsækjendur, verið aðalsmerki fyrirtækisins og á það sinn
þátt í að þegar alþjóðlega umboðsskrifstofan MRI WORLD-
WIDE (Management Recruitment International) var að leita
eftir samstarfsaðila hér á landi, varð STRÁ fyrir valinu. Nokkrir
aðrir höfðu sótt um aðild en fengu ekki, en MRI er stærsta og
elsta ráðningarstofa í heimi, stoihuð í Cleveland, Ohio, 1957.
„Við erum hreykin af því að vera í þessu samstarfi, sem um
leið gerir það að verkum að við höfum mun meiri möguleika á
að ráða fólk til starfa erlendis, sem og fá hingað erlent starfs-
fólk,“ segir Guðný. „Eitt af því sem fylgir þessu samstarfi er
persónuleikaprófið SelecSys, sem finna má á heimasíðu okkar,
www.stra.is. Hér er um að ræða geysiöflugt persónuleikapróf
frá samstarfsaðilum okkar, MRI, en þetta próf er viðurkennt um
allan heim. Við höfum farið þá leiðina að hafa prófið án gjalds og
getur hver og einn tekið þátt í því og að fengnum niðurstöðum
séð hveijir og hvernig hans styrkleikar nytust í viðeigandi
starfsumhverfi."
„Hjá STRA MRI eru einnig á skrá fjöldi einstaklinga sem eru
í starfi, en vilja ef til vill skipta ef þeim býðst heppilegra starf,“
segir Guðný. „Einnig bjóðum við sérfræðingum og stjórn-
endum skráningu í Sérþjónustu okkar, en við leitum gjarnan í
þá skrá þegar finna þarf aðila til sérhæfðari starfa, sem og
stjórnunarstarfa. Bestu störfin eru almennt ekki auglýst,
fremur unnin í kjrrþey."
„Okkar markmið er að gæta hagsmuna og samræma óskir
beggja, þ.e. umsækjenda og vinnuveitanda, þannig aðeins verður
ráðningin farsæl. Það er okkar að finna rétta starfmanninn í
rétta starfið," segir Guðný. Aðspurð um minnisstæð atvik í ráðn-
ingarmálum segir Guðný sér einkar minnisstætt atvik er gerðist
fyrir óralöngu: „Umsækjandi, 68 ára gömul kona, hafði komið í
viðtal. Þetta var stórglæsileg og skemmtileg kona, sem hafði
verið á eftirlaunum í eitt ár og var að eigin sögn orðin leið á
„aðgerðaleysinu“, enda unnið mikið og vel öll árin áður. Þó hafði
hún ekki setið auðum höndum þetta eftirlaunaár, heldur bæði
aflað sér einkaflugmannsréttinda og æft fallhlífarstökk! Vegna
kennitölu reyndist erfiðara um vik en ella að finna henni hent-
ugt starf, en nokkru síðar hringdi þessi ágæta kona með þær
fréttir að nú þyrftum við ekki lengur að hafa áhyggjur af henni,
hún hefði einfaldlega sjálf fundið sér nýtt starf. Atvik sem þessi
er skemmtilegt að ri§a upp í erli dagsins. Það er alltaf gaman að
athafnasömu og jákvæðu fólki sem lætur ekki deigan síga.“
I dag starfa fimm starfsmenn hjá STRÁ MRI, þó að stundum
hafi þeir verið fleiri. „í upphafi, þegar lógóið okkar var teiknað,“
segir Guðný með kímnisbros á vör, „voru stráin höfð fimm, því
að ég og fyrirtækið ætluðum aldrei að verða stærst, einungis
best á okkar sviði.“ B3
Starfsfólk STRÁ MRI.