Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 46
BRÉF TIL BLAÐSINS
flf hálfu N&O var tjónabótakrafa félagsins á því byggð að bæði hin faglega endurskoðunar-
vinna starfsmanna PwC, sem þeir hefðu ýmist verið ráðnir og/eða kjörnir til að annast,
hefði ekki uppfyllt kröfur sem gerðar eru til slíkrar vinnu í samningum aðila og að lögum.
grundvöll þeirra reikninga sem starfsmaðurinn lét þá ekki hafa
afstemmingar á. Starfsmenn PwC luku gerð og endurskoðun
ársreiknings N&O öll viðkomandi ár án þess að afstemmingar
nokkurra lykilreikninga bókhaldsins lægju fyrir og án þess að
tilkynna stjórn eða framkvæmdastjórn félagsins þar um. Svika-
mylla starfsmannsins hefði hrunið til grunna ef einhver þessara
óafstemmdu lykilreikninga hefði verið kannaður.
I stað þess að kanna reikningana, aðvara eða vekja athygli
stjórnar N&O með munnlegum eða skriflegum hætti á þeim
annmörkum sem þeir höfðu séð á bókhaldi félagsins við endur-
skoðunarstörf sín gáfu starfsmenn PwC, endurskoðanda
félagsins, stjórn N&O árlega skriflega skýrslu um að þeir hefðu
kannað virkni og stöðu innra eftirlits fyrirtækisins og að það
hefði verið í góðu lagi, öll árin. Endurskoðandi félagsins áritaði
ársreikninga félagsins án athugasemda öll þau ár sem hér um
ræðir auk þess sem hann undirritaði og sendi sljórn N&O bréf
til innfærslu í endurskoðunarbók félagsins án athugasemda eða
ábendinga um nokkuð sem betur mætti fara. Hann sat alla aðal-
fundi félagsins á hér umræddu tímabili og gerði hluthöfum
þess, sljórn og framkvæmdastjórn aldrei aðra grein fyrir bók-
haldi félagsins á þeim fundum en þá að bókhald félagsins og
meðferð eigna þess væri í góðu lagi.
FJARDRÁTTUR IFYRIKTÆKJUM
Tjónabótahrafa Nathans & Olsens Af háifu N&o var tjóna
bótakrafa félagsins á því byggð að bæði hin faglega endurskoð-
unarvinna starfsmanna PwC, sem þeir hefðu ýmist verið ráðnir
og/eða kjörnir til að annast, hefði ekki uppfyllt kröfur sem
gerðar eru til slíkrar vinnu í samningum aðila og að lögum. Jafn-
framt lægi fyrir að bréf starfsmanna PwC til stjórnarinnar um
niðurstöðu könnunar á innra eftirliti félagsins og athugasemda-
lausum áritunum á ársreikninga þess hefðu villt um fyrir sljórn
og hluthöfum áfrýjanda en nú lægi fyrir að þær kannanir hefðu
annaðhvort einfaldlega ekki verið
framkvæmdar eða verið
ófullnægjandi. Þessi van-
ræksla PwC hafi leitt til
fjárhagslegs tjóns N&O.
Dómur Hæstaréttar
Hæstiréttur féllst í
grundvallaratriðum á
Vitnað var í grein Stef-
áns vegna vanga-
veltna um það hvort
stjórn Símans höfði
mál gegn Ríkisendur-
skoðun vegna fjárdráttar
aðalgjaldkera Símans.
rök Nathans & Olsens hf. og dæmdi endurskoðunarfyrirtækið
PricewaterhouseCoopers ehf. og starfsmann þess ábyrga fyrir
hluta af hinu ijárhagslegu tjóni félagsins vegna ijárdráttarins,
„tjónið hafi orðið meira en þurft hefði að vera, hefðu þeir staðið
öðruvísi að verki“. Hæstíréttur nefnir sérstaklega að endur-
skoðendurnir hafi vanrækt að tílkynna stjórninni um þá ann-
marka á bókhaldi félagsins sem þeir vissu um.
Astæða þess að Hæstíréttur dæmdi PwC aðeins til greiðslu
hluta (jóns N&O byggist á því að Hæstiréttur telur að fyrirtækið
beri sjálft hluta sakar. Sú eigin sök N&O byggist á því að fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins hafi verið kunnugt um að afstemm-
ingar milliuppgjöra lágu ekki alltaf fyrir við gerð þeirra. Fram-
kvæmdastjórn N&O hefði átt að kanna þá annmarka nánar en
gert var, enda þótt hin árlega endurskoðun og skýrslugjöf PwC
til félagsins hefði ætíð verið athugasemdalaus.
Sá lærdómur sem stjórnendur fyrirtækja og endurskoðendur geta
dregið at þessum dómi Hæstaréttar er að:
1) Endurskoðunarstarf hins kjörna löggilta endurskoðanda
félags er unnið í þágu félagsins sjálfs, hluthafa þess og
stjórnar.
2) Endurskoðandinn ber ábyrgð á því að það starf sé unnið í
samræmi við lög og reglur um það verkefni.
3) Endurskoðandinn verður að koma athugasemdum sínum
og ábendingum á framfæri við stjórn félags.
4) Innra eftirlit verður að vera til í fyrirtækjum, það verður að
vera virkt og sjálfstætt
5) Ef kjörinn endurskoðandi fyrirtækis tekur að sér önnur
verkefni fyrir fyrirtækið en endurskoðun reikninga þess er
nauðsynlegt að greina þau verkefni með skýrum hættí frá
endurskoðunarverkefni endurskoðandans.
6) Endurskoðandi hlutafélags er skyldur að bæta hlutafélagi
það tjón sem hann hefur valdið félaginu í störfum sínum
samkvæmt ákvæðum 134. greinar hlutafélagalaga. H3
Frá ritstjóra
Stefán Svavarsson, lektor og löggiltur
endurskoðandi, skrifaði reglulega á
árunum 1999 og 2000 um endurskoðun
í Frjálsa verslun. í 2. tbl. árið 2000 fjall-
aði hann um dóm Hæstaréttar yfir endur-
skoðanda Nathans & Olsens sem gert
var að greiða 4 milljónir í skaðabætur
vegna 25 milljóna króna tjóns fyrir-
tækisins sem hlaust af fjárdrætti gjald-
kera þess félags.
46