Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 64
iHaustið er tíminn ® ^æra
lliltu vita meira?
Mímir hefur lengi boðið upp á námskeið afýmsum
toga og lagt sérstaka áherslu á símenntun.
Mímir - símenntun sinnir flölbreyttu námskeiðahaldi og
fræðslustarfi. í meginatriðum má skipta starfseminni í
tvo hluta, annars vegar tómstundanámskeið og hins
vegar margbreytileg námskeið í samstarfi við atvinnulífið,
stéttarfélög, atvinnurekendur og vinnumiðlanir," segir Hulda
Olafsdóttir sem hóf störf sem framkvæmdastjóri hjá Mími -
símenntun í sumar.
Hulda segir mikla auðlind búa í starfs-
mönnum fyrirtækja og stjórnendur gera
sér í auknum mæli grein fyrir því.
„Þessari auðlind þarf að hlúa að og
með því að stuðla að símenntun starfs-
manna eru stjórnendur ekki aðeins að fá
hæfara starfsfólk heldur einnig ánægðari
einstaklinga. Yið höftim í samstarfi við
stéttarfélögin verið með fjölda námskeiða
sem atvinnulifið þarihast og m.a. átt gott
samstarf við Eflingu - stéttarfélag um
ýmis námstilboð. Þar má nefna sem
dæmi Landnemaskólann og Grunn-
menntaskólann," segir Hulda.
„Landnemaskólinn er 120 stunda nám
í íslensku ætlað „nýjum íslendingum" en
Grunnmenntaskólinn er 300 stunda nám ætlað fólki með
stutta skólagöngu sem vill bæta við þekkingu sína. Þetta nám
er að stórum hluta greitt af fræðslusjóði Eflingar. Á síðasta ári
fórum við svo af stað með nýtt verkefni; námsráðgjöf á vinnu-
stöðum. Það hlaut góðar undirtektir og mikill áhugi er hjá
starfsmönnum að kynna sér námsleiðir og möguleika á
styrkjum til að Jjármagna námið. Námsráðgjöf á vinnustað
mun halda áfram í vetur og hafa vinnustaðir, sem þekkja verk-
efnið, þegar beðið um áframhaldandi þjónustu.
Sjálfsstyrking 09 samskipti Mímir hefur til margra ára
boðið upp á námskeið í sjálfsstyrkingu og samskiptum. Þessi
námskeið hafa notið mikilla vinsælda og þótt skila góðum
árangri. Áhersla er á að efla sjálfstraust og skoða þá þætti sem
áhrif hafa á eigin líðan og samskipti við aðra. Farið er í grund-
vallaratriði samskiptatækni og bent á mikilvægi þess að setja
sér markmið.
„Við bjóðum einnig upp á námskeið í námstækni og tíma-
stjórnun, þjónustu, um kulnun í starfi og töluvert hefur verið
um að við skipuleggjum sérhæfð námskeið fyrir einstaka
starfsmanna- eða vinnustaðahópa, sem dæmi má nefha starfs-
fólk í mötuneytum, ræstingu, áhaldahúsum o.fl.“
Tómstundanámskeið Á hverju hausti og vori býður Mímir
upp á fjölmörg námskeið. Gríðarleg ásókn hefur verið í þau,
ekki síst tungumálanámskeiðin og menningarnámskeiðin. í
tungumálakennslunni er hægt að fá einstaklingsþjálfun sem
margir nýta sér, td. áður en farið er á alþjóðaráðstefnur eða við
undirbúning ýmiss konar samskipta og samstarfs erlendis.
Einnig eru hópar fyrir byijendur og lengra komna auk sér-
hæfðari námskeiða, svo sem í viðskiptaensku og viðskipta-
spænsku.
,Á menningarsviðinu höfum við valið að fjalla um Don
Kíkóta sem hefur verið valin ein af bestu bókum allra tíma og er
ein sú söluhæsta í heiminum,“ segir Hulda. „Guðbergur Bergs-
son rithöfundur mun annast þetta námskeið sem haldið verður
í samstarfi við Borgarleikhúsið en það hefur ákveðið að setja
upp sýningu um Don Kikóta eftir áramót. Ég hef trú á að
margir muni nýta sér það einstaka tækifæri að hlýða á fyrir-
„Á menningarsviðinu höfum við valið að fjalla um Don
Kíkóta sem hefur verið valin ein af bestu bókum allra tíma
og er ein sú söluhæsta í heiminum," segir Hulda Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri hjá Mími - símenntun.
lestra Guðbergs en hann hefur nýlokið þýðingu sinni á sögunni
um Don Kikota og kemur seinna bindi hennar út í haust.“
Allar hliðar mannlífsins Auk tungumála- og menningarnám-
skeiða hefur Mímir á hverri önn námskeið í myndlist, mat-
reiðslu auk Ijiilda annarra hagnýtra þátta og afþreyingar. Þar má
nefna námskeið sem kallað hefur verið „Iistin að vera dama“,
sem Helga Braga Jónsdóttir annast.
Jafnframt stendur til boða námskeið fyrir börn í myndlist og
leiklist auk tungumálanámskeiða. Það gildir það sama fyrir
börnin og fullorðna, þeim er getuskipt í hópa eða boðið upp á
einstaklingsnámskeið þar sem það á við.
,Að lokum vil ég nefna námskeiðið ,Á tímamótum" fyrir alla
þá, sem vilja búa sig undir þær breytingar sem fylgja starfs-
lokum. Að ýmsu þarf að hyggja, svo sem lífeyrisréttindum,
félagsþjónustu sveitarfélaga og húsnæðismálum. Einnig er
mikilvægt að huga að tómstundum, áhugamálum og ferða-
möguleikum," segir Hulda að lokum. ŒJ
64