Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 57
Stórt hús...
eða
...lítið hús?
Það er oft ekki meiri fyrirhöfn að selja stóra eign en litla, en upphæðin, sem fasteignasalanum er greidd, sölulaunin, er miklu
haerri fyrir stóru eignina þar sem greitt er í prósentum en ekki með fastri upphæð.
þar sem lítið samræmi er
milli verðs og þess hvernig
gengur að selja eignina. Víða
erlendis er þessi prósenta
hærri en vinna fasteignasala
er önnur og þeir fara yfirleitt
með kaupendum að skoða
eignir og leggja mikla vinnu í
að aðstoða seljendur við að
gera eignirnar söluhæfar. Það
er nokkuð sem ekki þekkist
hér á landi þar sem fólk
skoðar öðruvísi og er jafnvel
að skoða eignir sem það
hefur ekki ætlað sér að
kaupa. Inni í sölulaunum er
fólgið að hafa eignina á skrá,
láta í té upplýsingar um hana
og svo ganga frá sölu ef af
verður. Seljandi greiðir yfir-
leitt auglýsingar sérstaklega - þó ekki allar því stundum aug-
lýsir fasteignasali á sinn kostnað að einhverju leyti. Skoðunar-
áald fellur að öllu jöfnu niður ef eign selst hjá viðkomandi
fasteignasala en skoðunargjald hefur reyndar verið að falla út
sem kostnaðarliður enda fólk oft með eignir í einkasölu. Þá er
tekið sérstakt gjald, sem seljandi greiðir ef eign selst ekki,
hann hættir við eða eignin selst hjá öðrum fasteignasala.
Kaupendagjald „Fyrir nokkru ákvað Félag fasteignasala að
styðja félagsmenn í að taka upp nýtt gjald og sem kaupendur
greiða," segir Sigurður. „Það er til að standa straum af
kostnaði við pappírsumsýslu kaupenda, þ.e. pappíra sem þarf
að sinna í kring um greiðslumat og viðbótarlán.“
Nokkuð er undir hælinn
lagt hvort fasteignasali kynni
kaupendum þetta nægjanlega
og þó svo þess sé getið í smáa
letrinu á kauptilboðinu - sem
svo sannarlega er smátt -
kemur þetta kaupendum oít á
óvart. Gjaldið er skilgreint
þannig að kaupandi greiði allt
að 25 þúsund krónum + vsk.,
þannig að heildarupphæðin
fer yfir 30 þúsund krónur hjá
þeim sem nýta sér þessa gjald-
skrá til fullnustu.
„Við höfum farið þá leiðina
að láta kaupendur, sem taka ný
húsbréfalán og eða viðbótar-
lán, greiða fullt gjald iýrir þessa
þjónustu sem er umtalsverð,"
segir Sigurður. „Við teljum
okkur veita mjög góða þjónustu og okkar sölumenn eiga að
segja fólki frá þessu gjaldi svo að það komi ekki á óvart.“
Ekhi fullnýtt Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali á
fasteignasölunni Austurbæ, segir þetta nýja gjald ekki eiga að
koma á óvart þar sem bæði sölumenn fasteigna eigi að kynna
það kaupendum og svo sé þess getið í smáa letrinu aftan á
kauptilboði.
„Við erum með fast gjald, 15 þúsund krónur, fyrir þessa
þjónustu,“ segir hann. „Ég ætla ekkert að tjá mig um hvort
það er hátt eða lágt miðað við aðra en það er sú upphæð sem
við teljum raunhæfa í þessu sambandi. í því gjaldi felast
snúningar milli stofnana en þeir eru mismiklir." SO
Seljandi greiðir:
Sölulaun: 1,7 - 2,5% af söluverði
eignarinnar + vsk.
Ljósritun, stimpilgjöld og
þinglýsingargjöld.
Kaupandi greiðir:
Umsýslugjald sem getur verið á bilinu
0-25 þúsund krónur auk vsk.
Ljósritun, stimpilgjöld og
þinglýsingargjöld.
1.764 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta ársfjórðungi 2003. Meðal-
upphæð á hvern kaupsamning var 14,8 milljónir króna en heildarupphæð veltunnar nam 26,1
milljarði króna. Þetta er samdráttur (fækkun kaupsamninga) sem nemur 7,5% frá 4. ársfjórð-
ungi 2002, en aukning (fjölgun kaupsamninga) sem nemur 18,1% frá 1. ársfjórðungi 2002.
57