Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 87
Mynd: Geir Ólafsson
^inin frá Peter Lehmann eru góðir fulltrúar áströlsku vínanna.
sítrusbragð og bragð af grænum eplum. Ljómandi vin sem for-
drykkur og raunar ágætt eitt sér.
Peter Lehmann hefur lagt höfuðáherslu á framleiðslu rauð-
víns. Vörumerki rauðvíns hans eru sterk séreinkenni.
Peter Lehmann Cabernet Sauvignon, kr. 1.560. Þetta
vín hefur náð miklum vinsældum, enda einstaklega vel gerður
Cabernet, bragðmikiU með miklu berjabragði - sólber og blá-
ber; einnig gott kryddbragð, örlítíð af svörtum pipar, vanillu og
jafiivel negul. Gott vín með kjötí. Við prófuðum það með graflaxi
og það var bingó. Það eru mjög góð kaup í þessu víni, gott verð
miðað við gæði.
Peter Lehmann Shiraz á kr. 1.490 er ekta ástralskur
bolti. Undirritaður hefur að jafnaði verið veikur fyrir frönsku
Rhone vínunum. Áströlsku Shiraz vínin eru bara svo allt öðru-
yísi, meiri sól og jörð. Þetta vín er matarmikið og gríðarlega
öflugt. Mér finnst það jafnvel heldur mikil bragðsprengja með
mat. En bíðum nú við, - það er frábært með góðri piparsteik,
hreindýri og sjófuglum. Það sló hins vegar algjörlega í gegn
með eftírréttinum sem var úr súkkulaði. Shiraz og súkkulaði er
einfaldlega eitthvað sem allir sælkerar verða að prufa.
Peter Lehmann Stonewell Shiraz, kr. 3.490. Þetta er án
efa eitt besta Shiraz vínið í Rikinu, mikið og ríkt berjabragð,
einnig vottar fyrir bragði af dökku súkkulaði, jafnvel kaffi og
kryddi eins og negul og vanillu. Þrúgurnar eru handtíndar af
vínviði sem er allt að 100 ára gamall. Þetta vín er gott að gefa
góðum vinum sem hafa áhuga á vínum.
Peter Lehmann Grenache Shiraz kr. 1.490. Ágætís mat-
arvín, ljómandi með lambi. Þetta vín er blanda úr Grenache og
Shiraz þrúgum. Verðið ágætt, kr. 1.490 - gott laugardagsvín.
Peter Lehmann Mentor, kr. 3.090. Þetta er án efa uppá-
haldsvínið mitt frá meistara Lehmann. Vínið er pressað úr
fjórum þrúgutegundum, Cabernet Sauvignon, Malbec, Shiraz
°g Merlot. Þetta er yndisleg bragðsinfónía, - mikill karakter.
Þetta vín hefur þroskast í tvö ár í eikartunnum og svo tvö ár á
flöskum áður en það er sett á markað. Eitt af einkennum þessa
víns er djúprauður, dökkur litur þess og mikið og langt eftir-
hragð. Þetta er frábært eftirbragð, ekki mjög sýrumikið,
hóflega sætt og ávaxtaríkt, frábært matarvín.
Peter Lehmann Seven Surveys á kr. 1.390. Þetta vín
kafla Ástralir GSM. Það er pressað úr þremur þrúgutegundum,
Grenache, Shiraz og Mourvedre. Vín þetta hefur náð miklum
vinsældum í Ástralíu og í Bretlandi; öflugt vín og skemmtilegt,
sterk áströlsk einkenni. Gott vín með vel krydduðum mat. Peter
Lehmann Clancy's, kr. 1.440 hefur náð miklum vinsældum
í Bandaríkjunum, vínpressan hefur hælt þessu víni í hástert.
Vínið er blanda úr Shiraz, Cabernet, Sauvignon og Merlot. Gott
berja- og ávaxtabragð, einnig er bragð af dökku súkkulaði,
myntu, timian og svörtum pipar. Þetta vin er að mínu matí á afar
góðu verði. Merlot þrúgan gefur víninu þægilegt ávaxtabragð.
Þetta er vín sem flestum fellur í geð, rétta vínið í matarboðið.
Breytlir límar Ástralía er orðin ein athyglisverðasta sælkera-
og vínframleiðsluþjóð heims. Ástralska eldhúsið er afar
athyglisvert. Þar blandast saman hefðbundnar evrópskar hefðir
og áhrif frá Asíu. Úr þessum sterkustu pólum matargerðarlistar
heimsins hafa Ástralir búið til nýjar stefnur í matargerðarlist-
inni, Ástralska eldhúsið, þar sem höfuðáherslan er lögð á holl-
ustu og gott bragð. Hvað varðar víngerð Ástrala, byggja þeir í
dag ekki á gömlum hefðum annarra þjóða. Þeir hafa mótað sína
eigin stefnu, framleiða vín sem flkist ekki víni annarra þjóða, -
það er ástralskt
Peter Lehmann er góður fulltrúi ástralskrar vingerðarlistar.
Víntegundir frá honum hafa sterk séreinkenni, eru vel gerðar,
umfram allt bragðmiklar og því frábærir fulltrúar ástralska
vinheimsins. BIi
Sigmar B. Hauksson bragðaði á eftirtöldum víntegundum
frá Peter Lehmann:
Hvítvín
Peter Lehmann Clancy's kr. 1.440
Peter Lehmann Chardonnay kr 1.490
Peter Lehmann Semillon kr. 1.290
Rauðvín
Peter Lehmann Cabernet Sauvignon kr. 1.560
Peter Lehmann Shiraz kr. 1.490
Peter Lehmann Stonewell Shiraz kr. 3.490
Peter Lehmann „Mentor" kr. 3.090
Peter Lehmann Grenache Shiraz kr 1.490
Peter Lehmann Seven Surveys kr. 1 390
87