Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 40
145
Rússinn Roman
Abramovich, hinn nýi
eigandi Chelsea. Olía
og ál hafa gert hann
ríkan. Eignir hans eru
metnar á 400 milljarða
króna þannig að þeir
19 milljarðar króna,
sem hann hefur lagt í
Chelsea, eru aðeins um
5% af eignum hans.
Hvað gerir auðkýfingur, sem vill ekki láta bera á sér í fjöl-
miðlum? Hann kaupir varla eitt afþekktustu fótbolta-
félögum heims, Chelsea - en það gerði Rússinn Roman
Abramovich samt og uppskar ofuráhuga breskra fjöl-
miðla. Hann er sagður eiga 400 milljarða króna. En
breska pressan hefur líka haft áhuga á umsvifum Baugs
og Jón Asgeir er ekki síður en Roman Abramovich orðinn
þekkt andlit meðal lesenda viðskiptasíðnanna í Bretlandi.
Texti: Sigrún Davíðsdóttir Myndir: Ymsir
Hann kemur tjarska látlaust fyrir þessi ungi maður. Enginn
sláttur eða læti í honum og mér finnst hann býsna líkur
Björgólfi Thor Björgólfssyni í ásýnd og framkomu. Þessir
jafnaldrar eiga það sameiginlegt að hafa gripið tækifærin sem
urðu til þegar Sovétríkin leystust upp sællar minningar.
BjörgólfurThor beindi umsvifunum til íslands eftir að hafa selt
rússnesku bjórverksmiðjuna, en Roman Abramovich hefiir
hoggið eftir öðrum máttarstólpum í heimahögunum. Auðsupp-
sprettan, sem hefur gert Abramovich að öðrum auðugasta
manni Rússlands, er olíufélagið Sipneft og Russian Aluminium.
Hann er borgarstjóri í Chukotka og í þeirri ínúítabyggð er
hann með geislabaug fyrir að hafa veitt fé í skóla og annað
þarfaþing, en aðrir, meðal annars breskir ijölmiðlar, hafa verið
ögn tortryggnir á skjótfenginn gróða hans og umsvif. Fyrir-
tæki tengd honum voru í rannsókn heima og heiman, en rann-
sóknin hefur verið stöðvuð að sögn breskra blaða.
Olíufélagíð Sibneft Hinn 36 ára borgarstjóri komst á unga
aldri undir handarjaðar auðkýfingsins Boris Berezovksy, sem
nú er landflótta í London, ásakaður um allt frá pólitísku morði
til ljársvika af öllu tagi. Þegar Rússland var nánast komið á kné
1995 var stórfelld einkavæðing í gangi, þar sem Berezovsky
skipulagði kaupin á olíufélaginu Sibneft fyrir 100 milljónir
Bandaríkjadala - félagið er nú metið á 12,5 milljarða Bandaríkja-
dala. Leiðir þeirra skildu - þeir ku ekki talast við lengur. En
Abramovich var fikur orðinn fleygur og fær í viðskiptafifinu
með eignarhlut í Sibneft.
Hann hefur laðast að London eins og fleiri auðugir landar hans. I munaðarverslunum eins og
Harrods og glæsibúðum á Bond-stræti má iðulega sjá glaðar, rússneskar konur á öllum aldri
í hamingjusamlegum kaupferðum, sem vísast eru einkavæðingarfjármagnaðar.
40