Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 90
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte & Touche. „í endurskoðendastétt var t.d.
brosað að því markmiði okkar að koma á fjölskyldustefnu og eðlilegum vinnutíma því að
endurskoðendur eru þekktir fyrir mikla vinnu og að eiga sér ekkert fjölskyldulíf, en okkur
hefur tekist þetta." Mynd: Geir Ólafsson
Margrét Sanders,
Deloitte & Touche
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Við erum tveir fram-
kvæmdastjórarnir hjá
Deloitte & Touche. Ég
sé um daglegan rekstur og
stjórnun á fyrirtækinu, þar
með talin ijármál, starfs-
mannamál, markaðsmál og
upplýsingatækni og reyndar
allt annað sem til fellur í dag-
legum rekstri. Deloitte &
Touche er hluti af alþjóðlegu
fyrirtæki og því í erlendum
samskiptum. Ég er í miklum
samskiptum við útlönd, m.a.
vegna þess að við erum að
innleiða ýmislegt sem
kemur að utan. Hinn fram-
kvæmdastjórinn í fyrirtæk-
inu heitir Þorvarður
Gunnarsson og er
„Managing Partner". fíann
90
er löggiltur endurskoðandi
og vinnur við endurskoðun
og ráðgjöf auk þess sem
hann sér um allt sem lýtur að
faglegum atriðum í rekstr-
inum. Ég er sú eina sem er í
fullu starfi sem stjórnandi í
fyrirtækinu," segir Margrét
Sanders, framkvæmdastjóri
hjá Deloitte & Touche.
Margrét hefur starfað hjá
Deloitte & Touche frá 1999
að hún lauk framhaldsnámi í
Norður-Karolínu í Bandaríkj-
unum. Hún er upprunalega
íþróttakennari að mennt og
lika með kennarapróf upp á
vasann. Auk annarra starfa
starfaði hún sem kennari í
nokkur ár en ákvað að fara í
frekara nám og flutti með ijöl-
skylduna til Bandaríkjanna.
Þar tók hún próf í viðskipta-
fræði í Norður-Karolínu og
bætti svo við sig MBA-prófi í
stjórnun. Tæplega 200
manns starfa hjá Deloitte &
Touche og á starfsstöðvum
þess hér á landi, þar af eru
tæplega 150 á höfuðborgar-
svæðinu. Mikill meirihluti
starfsmanna er háskóla-
menntaður, eða um 80%.
„Deloitte & Touche er
gríðarlega stórt fyrirtæki í
130 löndum. Ég sá strax í
fyrsta viðtali hve Deloitte &
Touche er framsækið fyrir-
tæki. Það var komið langt
með að tileinka sér og inn-
leiða allt það nýjasta í stjórn-
unarfræðum og það heillaði
mig mikið,“ segir hún og
telur það mikinn kost að hafa
komið inn í fyrirtækið eftir
sameiningu fyrirtækja í
FÚLK
Deloitte & Touche. Þarna
hafi verið nýtt fyrirtæki á
gömlum meiði og kúltúrinn
ekki fastheldinn heldur opinn
fyrir ýmsum nýjungum. „I
endurskoðendastétt var t.d.
brosað að því markmiði
okkar að koma á fjölskyldu-
stefnu og eðlilegum vinnu-
tíma því að endurskoðendur
eru þekktir fyrir mikla vinnu
og að eiga sér ekkert íjöl-
skyldulíf, en okkur hefur
tekist þetta,“ segir hún.
Margrét er fædd í Sjálf-
stæðishúsinu á Isafirði en var
ung að árum þegar Ijöl-
skyldan flutti frá ísafirði til
Njarðvíkur þar sem faðir
hennar gerðist síðar bæjar-
stjóri. Margrét hefur þó
miklar taugar vestur enda
vann hún þar mikið á sumrin
sem unglingur. Hún býr enn
í Njarðvík og keyrir til
Reykjavíkur á hverjum degi.
„Þó að það sé sæmilegur
spölur þarna á milli þá er
ágætt fyrir mig sem stjórn-
anda að hafa Reykjanesbraut-
ina til að hugsa og skipu-
leggja daginn," segir hún.
Margrét er gift Sigurði
Guðnasyni og á tvö börn og
eitt fósturbarn. Hún hefur
stundað keppnisíþróttir í
gegnum tíðina en fer nú í
líkamsrækt og er alltaf á
leiðinni í golfið. Hún hefur
sinnt félagsmálunum af krafti
og m.a. verið lengi viðloðandi
nefndastörf fyrir Njarðvík og
Reykjanesbæ. Margrét er
alin upp á stóru heimili, þau
eru sex systkinin, þar af eru
bræðurnir fjórir. Mikil póli-
tísk umræða var á heimilinu
og líkir hún tímanum milli
fimm og sjö á daginn við fund
því að þá voru miklar póli-
tískar umræður. Hún hefur
brennandi áhuga á pólitík og
á vini í öllum flokkum en vill
þó ekki fara út í neina flokks-
pólitíska sálma.SH