Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 18

Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 18
STRAUMSÆVINTÝRI BJÖRGÓLFS Hver er þessi Straumur? Fjárfestingarfélagi Straumur hefur verið áberandi undan- farin ár. Félagið, sem hét áður Hlutabréfasjóðurinn og var í vörslu Islandsbanka, var stofnað 1986. Nafni félagsins var breytt árið 2001. Landsbankinn kom inn í Straum í mars sl. þegar bankinn keypti 20,3% hlut af íslandsbanka sem kominn var með um 40% hlut í félaginu. Tengdust þessi viðskipti því að Islenski hugbúnaðarsjóðurinn var tekinn inn í Straum. Straumur keypti hinn 18. júní sl. 57,1% hlut í Framtaki flárfest- ingarbanka, en sá banki varð til í vor með sameiningu EFA (Eignarhaldsfélagi Alþýðubankans) og Þróunarfélagi íslands. Straumur er því Straumur, íslenski hugbúnaðar- sjóðurinn, EFA og Þróunarfélagið í einum pakka. Eigið fé Straums eftir allar þessar hrókeringar er 14,5 milljarðar króna. Það er mikið afl. Ef Landsbankinn og Straumur yrðu sameinaðir yrði til banki með samanlagt eigið fé upp á 32 milljarða króna. Framkvæmdastjóri Straums er Þórður Már Jóhannesson. Fjórir sitja í stjórn Straums: Olafur B. Thors, stjórnarformaður, Kristín Guðmundsdóttir, frkvstj. hjá Lands- símanum, Kristinn Björnsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs, og Andri Sveinsson, bankaráðsmaður í Landsbankanum. H3 STJÓRN STRAUMS Ólafur B. Thors, stjórnarformaður. Kristín Guðmunds- dóttir, frkvstj. hjá Landssímanum. Kristinn Björnsson, fráfarandi forstjóri Skeljungs. Andri Sveinsson, bankaráðsmaður í Landsbankanum. inn í Straum. Senjorinn reyndist miklu ákafari keppnismaður en þá hafði grunað - og reiðubúnari 111 að beita sér. Engu er líkara en Islandsbankamenn hafi vanmetið Björgólf og talið sem svo að hann ætlaði að taka því rólega í Landsbankanum. Enda hafði hann raunar sagt í blöðunum daginn fyrir stórsókn sína í Straumi að þeir feðgar hefðu skipt með sér verkum, hann drægi sig úr Pharmaco og ætlaði að einbeita sér að Landsbankanum; áhættufjárfestingar væru fyrir yngri menn. Stríðið um Straum endaði með „óljósu jafntefli" Landsbank- ans og Islandsbanka. Þótt Bjarna hafi tekist að veija Straum má spyija sig að því hvort hann geti varist skyndisókn á sjálfan íslandsbanka ef það væri inni í kortunum hjá Björgólfi. Eignar- haldið á Islandsbanka er frekar veikt þar sem nokkrir lífeyris- sjóðir eru stærstu hluthafarnir og mynda blokk um bankann. Bjami svaraði fyrir sig að bragði Þegar Björgólfur hóf stórsókn sína í Straumi svaraði Bjarni Armannsson, forstjóri íslands- banka, fyrir sig að bragði og jafn- aði metin. Islandsbanki, lífeyris- sjóðirnir og aðrir hluthafar í Straumi, sem fylkja sér um Islandsbanka í þessu máli, ráða tæplega 40% hlut í Straumi eftir átökin. Þar af er Islandsbanki með um 25% eignarhlut. Landsbankinn, Samson og Sindri Sindra- son, fyrrum forstjóri Pharmaco og samheiji Björgólfs um ára- bil, eiga um 37% í Straumi. Þótt Björgólfur og þeir Landsbakamenn héldu áfram að kaupa í Straumi, sem þeir gera tæplegast, og færu yfir 40% markið og gerðu yfirtökutilboð, þá hefði það lítið að segja, ís- landsbankamenn myndu hafna yfirtökunni. Til þess að breyta samþykktum félagsins þarf tvo þriðju atkvæða, 67%, og hvorug fylkingin kemst nálægt þvi marki. I stjórn Sraums eru fjórir stjórnarmenn og það þarf 60% atkvæða tíl að ná þar þriðja mann- inum í meirihluta. Hvers vegna slórsókn Björgólfs? Menn eru enn að velta því fyrir sér hvers vegna Björgólfur hóf þessa stórsókn í Straumi tíl þess eins að ná jafntefli. Hann segir íyfirlýsingu sinni að Landsbankinn og Samson hafi ekki ætlað sér að yfirtaka Straum heldur hafi þessi félög viljað komast í aðstöðu til að auka virði fjárfestinga Straums og „losa um flókin eignatengsl í félögum og auka arðsemi þeirra“. Af þessu má ráða að Björgólfur hafi talið sig vera 3-1 undir í Straumi gegn Islandsbanka og þurft að ná 2-2 jafntefli í stjórninni og hafa Eimskipafélagið Helstu eignir Burðaráss í öðrum félögum: 1 Flugleiðir ............(28,0%) ... 2,9 milljarðar. 2 íslandsbanki .......... (4,9%) ... 2,3 milljarðar. 3 Sjóvá-Almennar... (10,2%) ... 1,6 milljarðar. 4 SH.....................(19,6%) ... 1,6 milljarðar. 5 Marel...............(31,6%) ... 1,4 milljarðar. 6 SÍF....................(16,6%) ... 992 milljónir. 7 Steinhólar ............(25,0%) ... 900 milljónir. 8 Og Fjarskipti ......... (6,3%) ... 514 milljónir. Samtals eign í þessum 8 félögum: 12,2 milljarðar 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.