Frjáls verslun - 01.07.2003, Blaðsíða 89
»Þegar maður hefur prófað eitthvað nýtt áttar maður sig á því hvar þekking manns liggur og hvar vinnuhjartað slær," segir
Ingþór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Pennans. Mynd: Geir Olafsson
Ingþór Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Pennanum
Eftir Vigdisi Stcfánsdóttur
Leikmyndirnar breytast í
sífellu. Nýtt útlit, nýjar
vörur og ný ímynd,“
segir Ingþór Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri verslun-
arsviðs Pennans, en hann
stýrir verslunum Pennans
sem í dag eru 13 talsins.
„Þetta er mjög ijölbreytilegt
starf einmitt vegna þess hve
vertíðirnar eru rnargar,"
Þætir hann við. „Nú er skóla-
vertíð á fullu og strax að
henni lokinni skiptum við
um leikmynd og stílum inn á
bækur í Eymundsson og
Máli og menningu en í Penn-
anum er allt kapp lagt á
rekstrarvörur fýrir fýrirtæki.
Eftir það er komið að jólaver-
tíð og í kjölfar hennar eru
áramót og þar á eftir nýtt
bókhaldsár hjá fyrirtækjum.
Þá kemur inn enn ein leik-
myndin í búðirnar en í janúar
er einnig nýtt skólaár að hefj-
ast og aftur kemur skólaver-
tíð þó ekki sé hún eins stór
og sú fyrri. Á milli þessarar
skólavertíðar og ferminga
og útskrifta erum við í mikilli
skipulagsvinnu en vorið og
sumarið bjóða upp á hefð-
bundnar sumarvörur og allt
til lestrar fyrir ferða-
mannninn."
Á löngum ferli hjá Penn-
anum hefur Ingþór sinnt
ýmsum störfum. „Eg byijaði
iýrst á lager Pennans árið
1989, sinnti starfi deildar-
stjóra, sölustjóra, verslunar-
stjóra og því má segja að ég
hafi kynnst öllum hliðum
starfsins og sé öllum hnútum
kunnugur," segir hann. „Eg
tók mér einnig tveggja ára
hlé frá Pennanum og prófaði
önnur störf svona til tilbreyt-
ingar. Var um tíma verslunar-
stjóri hjá Hljómco og vann
við markaðsetningu á vél-
smiðju en þegar maður hefur
prófað eitthvað nýtt áttar
maður sig á því hvar þekking
manns liggur og hvar vinnu-
hjartað slær. Ég sneri aftur til
Pennans og var verslunar-
stjóri á Akureyri eftir að
Penninn keypti Bókval.“
Á Akureyri tók Ingþór
virkan þátt í félagsstörfum
og starfsemi bæjarins með
formennsku i miðbæjarsam-
tökum Akureyrar og þátt-
töku í Round table.
„Við stóðum fyrir ýmsu í
miðbæjarsamtökunum,"
segir hann. Jólabænum,
menningarnótt og Ijölskyldu-
hátíð um verslunarmanna-
helgina svo eitthvað sé nefnt.
Líka því að göngugatan var
opnuð fyrir umferð og hefur
það haft góð áhrif á verslun í
miðbænum. Því er nefnilega
þannig varið hér á íslandi að
göngugötur eru góð hug-
mynd rétt á meðan sólin skin
og yfir blásumarið en í
vetrarveðri hefur enginn
áhuga á göngugötumenn-
ingu.“
Áhugamál Ingþórs bein-
ast mikið að heimili og Ijöl-
skyldu. Hann á þijú börn á
aldrinum 7, 8 og 13 og hann
og eiginkona hans, Ingibjörg
Hauksdóttir kennari, hafa
síðustu mánuði verið að
byggja hús eftir flutninga frá
Akureyri.
„Önnur áhugamál mín
snerta að mestu íþróttir af
ýmsu tagi. Þar með talið For-
múlan, snjósleðar, fóbolti og
veiðar en ég hef gaman af því
að prófa ýmislegt þó svo ég
festi mig ekki sérstaklega við
neitt. Hins vegar fer frítíminn
að mestu í ijölskylduna eins
og gefur að skilja." 33
89