Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 20

Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 20
STRAUM ÆVINTÝRI BJÖRGÓLFS íslandsbanki Tíu stærstu hluthafarnir 1 Lffeyrissj. verslunarm. ...10,0% 2 Lífeyrissj. Framsýn........ 8,3% 3 Fjárfestingarf. Straumur... 6,4% 4 Lífeyrissj. Bankastr. 7 ... 5,6% 5 Tryggingamiðstöðin hf...... 5,5% 6 Sjóvá Almennar ............... 5,3% 7 Burðarás ehf. (Eimskip) ... 4,9% 8 íslandsbanki ................. 3,5% 9 Lífeyrissjóður sjómanna ... 2,1% 10 Alnusehf ...................... 1,7% Þótt Bjarna hafi tekist að verja Straum má spyrja sig að því hvort hann geti varist skyndisókn á sjálfan íslandsbanka ef það væri inni í kortunum hjá Björgólfi. Eignar- haldið á íslandsbanka er frekar veikt þar sem nokkrir lífeyris- sjóðir eru stærstu hluthafarnir og mynda blokk um bankann. Snúast fyrstu leikirnir um Flugieiðir? Vegna yfir lýsingar Björgólfs í fjölmiðlum um „að stór hluti ijárfestmga hér á landi þjóni þeim tilgangi að vernda völd og áhrif á kostnað góðrar ávöxtunar og hagkvæmni í rekstri og að hann vilji losa um flókin eignatengsl í félögum og auka arðsemi þeirra,“ telja flestir að fyrstu leikir hans í kringum Eimskipafélagið snúist um Flugleiðir. Að vísu eru eignatengslin á milli Eimskipa- félagsins og Flugleiða ekki svo flókin og hafa verið á vitorði þjóðarinnar um árabil. Fyrrnefnda félagið á 28% hlut í hinu og leiðir það. Eignar- haldið á Eimskipafélaginu er þannig að Sjóvá- Almennar hafa verið þar stærsti hluthafinn um árabil eða þar til Fjárfestingarfélagið Straumur varð í sumar stærsti eigandinn með 15,02% hlut Straumur átti aðeins 6,5% hlut í félaginu í mars sl. og var þá annar stærsti hluthafmn. Sjóvá- Frá völdum til við Umræður um viðskiptablokkir í íslensku atvinnulífi hafa verið ijörlegar vegna stórsóknar Björgólfs og Straums málsins. Eftir að viðskiptablokkunum hefur (jölgað og fleiri sterkir ijárfestar komið til sögunnar og gert sig gildandi hafa áhrif hverrar viðskiptablokkar minnkað. Nýlega skilgreindi Fijáls verslun viðskiptablokkirnar í íslensku viðskiptalífi þessar: Félagarnir í Samson, Kolkrabbinn, Baugsfeðgar, S-hóp- urinn, Samherji og Kaldbakur, Kaupþing-Búnaðarbanki (bræðurnir í Bakkavör), íslandsbanki og lífeyris- sjóðirnir. Auk þess væru ijársterkir aðilar áberandi, eins og Jón Helgi Guðmundsson í Byko, Kenneth Peterson, Þor- steinn Vilhelmsson, Tryggingamiðstöðin, Jón Olafsson, systkinin Sigurður Gísli, Jón, Iilja og Ingibjörg, börn Pálma heitins Jónssonar í Hagkaup, og áfram mætti telja. En viðskiptablokk er ekki sjálfkrafa dauð þótt hún sé ekki lengur ein í aðalhlutverkinu í viðskiptalífinu. Það er ánægjulegt að viðskiptablokkunum hafi ijölgað og að fleiri sterkir og líflegir ljárfestar, sem nenna að vinna og vafstra í viðskiptum, séu komnir til sögunnar og kallaðir inn á leiksviðið þegar gera þarf eitthvað afgerandi í viðskiptalífinu og ijármagns er þörf. Blokkirnar vinna meira saman Með fleiri viðskiptabiokkum og ijársterkum ijárfestum aukast líkurnar á að blokkirnar vinni saman að verkefnum. Það er kjarni málsins og það hefur raunar gerst. Þær vilja ekki hafa öll eggin í sömu körfu - og ekki til eilífðarnóns. Hvernig geta blokkirnar innleyst hagnað af ijárfestingum sínum ef þær kaupa eingöngu bréf og selja aldrei nein á móti? Færa sig aldrei til á milli Jjárfest- inga? Félagarnir í Samson, þ.e. Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson, vinna t.d. eftir þeirri formúlu sem þeir settu upp í Rússlandi; að koma inn í fyrirtæki, umbreyta þeim og Völdin hafa riðlast, skilin á milli blokkanna eru orðin óljósari og í ýmsum tilvikum tvinnast þær saman á hinum ólíkleg- ustu stöðum. Fyrir fimmtán árum var réttnefni að tala um valdablokkir, en núna viðskiptablokkir. Frá völdum til við- skipta, það er breytingin. 20

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.