Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 26

Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 26
FRÉTTASKÝRING FJOLMIÐLARI Olga og óróleiki er á fjölmiólamarkaði. Eigendur hafa afskipti affréttaflutningi, þœttir eru lagðir nibur, starfsfólki sagt upþ störfum og réttindi skert. Erfiðleikarnir eru gríðarlegir og allt getur gerst. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Fjölmiðlamarkaðurinrt einkennist af óöryggi og djúpstæðum íjárhagserfiðleikurn. Fyrir utan Ríkisútvarpið eru það einkum tveir Ijrilmiðlar, Norðurljós og DV, sem eiga við gríðarlegan Ijárhagsvanda að stríða og eru að endurskipuleggja Jjármál sín. Skjár Einn virðist hins vegar á uppleið, tapið aðeins 7 milljónir fyrstu sex mánuði ársins, og er jafnvel búist við að árið verði gert upp með hagnaði. Neyslumynstur almennings er að breytast. Morgunblaðið, sem á síðustu öld var risinn óhagg- anlegi á markaðinum, hefur lækkað heldur flugið skv. nýjustu lesendakönnun og DV hefur sigið niður á við. Þó að Morgun- blaðið hafi sýnt 49,4 milljóna króna hagnað á síðasta ári á það í samkeppni við Fréttablaðið, sem dreift er ókeypis og hefur nýlegt gjaldþrot að baki. Morgunblaðið hefúr m.a. brugðist við minnkandi lestri með mánudagsútgáfu og fylgidreifingu. Þá er unnið að nýjungum á sunnudagsútgáfu blaðsins. Mogginn vinnur m.a. að því að ná betur til yngri lesenda. Tilfinninganæmir og hugsa um prinsipp Mannabreytingar og uppsagnir hafa átt sér stað hjá Norðurljósum og DV síðustu mánuði. Olgan hefur verið mest áberandi hjá Norðurljósum og þar eru líka mestu fjárhagsvandræðin. Stöðugildum hefur fækkað og nú síðast var fréttamönnunum Árna Snævarr og Snorra Má Skúlasyni sagt upp störfum. Gerðir höfðu verið samningar við fréttamennina þar sem þeir fengu greitt fyrir ýmis réttindi og fríðindi sem þeir létu af höndum, vinnutíminn lengdur úr 15 dögum í 19-21 dag á mánuði og þeim hótað upp- sögn ella. Sparnaðurinn nemur 100 milljónum króna. Ekki bættí heldur úr skák þegar Sigurjón Sighvatsson, einn eigenda, reyndi að hafa afskiptí af fréttaflutningi Stöðvar 2 um laxveiðar fjármálaráðherra í boði Kaupþings-Búnaðarbanka. Afskiptin ollu miklu umróti meðal fréttamanna á Stöð 2, „vinnustað þar sem tilfinninganæmt fólk hefur valist til starfa, sem hugsar um prinsipp daginn út og inn“, eins og einn viðmælandi orðaði það, og þá ekki síður það sem á eftír fylgdi, leit stjórnenda að þeim sem lak fréttinni. Það má því segja að erfiðleikarnir séu af marg- víslegum toga og ailt auki á óróleikann innanhúss. Fjárhagsvandi Norðurljósa er gríðarlegur og svo hefur verið um langt skeið. Sigurður G. segir þó ekki um neitt nýtt að ræða. Staðan hafi verið kynnt á starfsmannafundi í vor. „Við vorum með öll okkar lán og skuldbindingar í skilum um síðustu ára- mót. Þegar við gerðum rekstraráætíun fyrir 2003 og framtíðar- spá fyrir 2004 og 2005 vissum við að við myndum lenda í vanskilum með greiðslur af sambankaláni og skuldabréfum lífeyrissjóða í júní ef við fengjum ekki nýtt fjármagn og næðum ekki að endurskipuleggja lánin. Við tílkynntum lánardrottnum okkai' þetta og báðum um frest. Allir lánardrottnar hafa sýnt fullan skilning. Stærsti hópurinn hefur lagt fram tillögur um hvernig megi endurskipuleggja vaxtaberandi skuldbindingar félagsins þannig að félagið geti staðið undir þeim,“ segir hann og telur stöðuna í dag miklu betri en i fyrra. „Núna hefur enginn sent okkur stefnu eða gjaldfellingabréf og það er ekki neitt sem sýnir óróleika hjá lánardrottnum okkar. Þeir vita að það er best að leysa úr þessu með friði og spekt.“ Erlendir fjárfestar? Heildarskuldir Norðurljósa nema um níu milljörðum króna, þar af eru vaxtaberandi skuldir félagsins 6,1 milljarður og hafa lækkað um milljarð frá því í fyrra vegna sölu Norðurljósa á hlut í Tali. Vaxtaberandi skuldir þyrftu að lækka um 2-2,5 milljarða króna til viðbótar til að félagið gæti staðið undir greiðslubyrðinni. Sigurður segir að tapið í ár verði í sam- ræmi við áætlun, eða um 500 milljónir króna. 1 vor var breska fjármálafyrirtækið Smith&Williamson og breska lögfræði- stofan, Lovells, fengnar til að fara yfir fjárhagsstöðuna og eiga Mannabreytingar Eftirfarandi frétta- og dagskrárgerðarmenn hafa ýmist sagt starfi sínu lausu eða verið sagt upp störfum: Þorsteinn Joð hættur með Viltu vinna milljón? á Stöð 2. Bryndís Hólm fréttakona Margrét Stefánsdóttir fréttakona Hulda Gunnarsdóttir fréttakona Ólöf Rún Skúladóttir fréttakona Snorri Sturluson íþróttafréttamaður Snorri Már Skúlason dagskrárgerðarmaður Árni Snævarr fréttamaður Telma L. Tómasson fréttakona Guðrún Gunnarsdóttir dagskrárgerðarkona, nú á Rás 2 Egill Helgason - hættur á Skjá Einum. Dóra Takefusa hætt á Stöð 2, áður Skjá Einum. Uppsagnir á DV í vor: Kolbrún Bergþórsdóttir hætt á DV og komin á Fréttablaðið. Nýir: Jónas R. Jónsson, umboðsmaður íslenska hestsins, tekur við Viltu vinna milljón? Sigmundur Ernir Rúnarsson byrjar á Skjá Einum í haust. Stöð 2 leigir rekstur Útvarps Sögu til stjórnendanna, þeirra Ingva Hrafns Jónssonar, Hallgríms Thorsteinsson, Sigurðar G. Tómassonar og Arnþrúðar Karlsdóttur. Listinn er ekki tæmandi. 26

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.