Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Side 39

Frjáls verslun - 01.07.2003, Side 39
www.honnun.is Umhverfismálefni Hönnun hf. veitir faglega þjónustu á sviði umhverfisráðgjafar og hefur frá setningu laga um mat á umhverfisáhrifum verið í farar- broddi þeirra ráðgjafarfyrirtækja sem unnió hafa skýrslur vegna mats á umhverfisáhrifum. Lögð hefur verið sérstök áhersla á hlut- laust mat við gæðaeftirlit. m.a. með því að leggja fram allar skýrslur sem unnar eru í tengslum við tiltekið matsverkefni. Ráðgjöf Hönnunar hf., á sviði umhverfismála, skiptist í stórum dráttum í fimm efnisflokka: Mat á umhverfisáhrifum, umhverfis- úttektir, umhverfisvöktun, starfsleyfisgerð og umhverfisfræðslu. Mat á umhverfisáhrifum er í eðli sínu þverfaglegt og byggir á rann- sóknum ýmissa ólíkra áhrifaþátta. Reynt er að finna lausnir sem miða að því að draga úr hugsanlegum umhverfisáhrifum fram- kvæmda. Þessar lausnir eru oft þungamiðjan í matsvinnunni. Hönnun hf. hefur tekið að sér fjölbreytt verkefni við mat á Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri Hönnunar hf. umhverfisáhrifum og má þar m.a. nefna hafnargerð, háspennulínur, kísilgúrvinnslu, landfyllingar, námuvinnslu, samgöngumannvirki, snjó- flóðavarnir, sorpförgun, stóriðju og vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir. IMýting umhuerfisvöktunar Umhverfisvöktun gegnir margvíslegum tilgangi fyrir rekstraraðila. Má þar nefna eftirlit með daglegum rekstri til að fylgjast t.d. með nýtingu hráefna og orku, eftirlit með því hvernig lögum og reglugerðum er framfylgt, upplýsingagjöf fyrir grænt bókhald starfsleyfisskyldra fyrir- tækja, svör við fyrirspurnum og gagnrýni einstaklinga, stofnana, félagahópa og fjölmiðla og rökstuðningur vegna hugsanlegra vaxtar- möguleika fyrirtækis. Rannsóknir Frá árinu 1993 hefur Hönnun hf. starfrækt eigin rannsóknarstofu á sviði jarðtækni, berg- og steinsteypu og hefur umfang rannsókn- anna aukist jafnt og þétt. Rannsóknarstofan flutti árið 2090 í rúmgott og nýinnréttað húsnæði að Síðumúla 3 og er hún sú stærsta sinnar tegundar i einkaeign á íslandi. Stofan er viðurkennd af umhverfisráðuneytinu til að annast gæðamat steypuefna og steypu og til að gefa umsögn um rekstrarhæfi steypustöðva. Á rannsóknarstofu Hönnunar hf. vinna sérhæfðir starfsmenn við hlið sérfræðinga í steinsteypu, jarðfræði og jarðtækni og getur Hönnun hf. því tekið að sér allt rannsóknar- og ráðgjafaferlið við verkefni.BH Starfsstöðvar Hönnunar hf. eru víða um land. Skrifstofur fyrirtækisins eru sem hér segir: Staður Heímilisfang Sími Netfang Reykjavík Grensásvegi 1 510 4000 reykjavik@honnun.is Akranes Garðabraut 2A 430 4050 akranes@honnun.is Akureyri Skipagötu 9 462 4050 akureyri@honnun.is Egilsstaðir Miðvangi 2-4 470 4050 egilsstadir@honnun.is Reyðarfjörður Austurvegi 20 470 4000 reydarfjordur@honnun.is Hvolsvöllur □Idubakka 1 487 8060 hvolsvollur@honnun.is Kirkjubæjarklaustur Klausturvegi 15 487 4840 klaustur@honnun.is Selfoss Eyravegi 29 480 4200 selfoss@honnun.is Fyrirtæki sem Hönnun hf. á aðild að eru: Tækniþing ehf. á Húsa- vík, Loftmyndir ehf. í Reykjavik og ENEX hf. í Reykjavík. 39

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.