Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 62

Frjáls verslun - 01.07.2003, Page 62
Hér glittir í Kristínu Matthíasdóttur en hún starfar með móður sinni í Hattabúðinni og Kvenfatabúðinni. Brynjólfur Björnsson, eigandi Brynju. Viðskiptavinir láta daglega í Ijós ánægju sína með staðsetningu verslunarinnar. tilheyrir Þinni verslun sem er keðja verslana í einkaeigu kaupmanna. Verslanir innan vébanda Þinnar verslunar kaupa inn í sameiningu, auglýsa og kynna verslanirnar saman. Friðrik Ármann segir að lykillinn að blómlegu lífi sé góð vara og þjónusta og að vera vel vakandi yfir vöruverði og tilboðum. Hann bendir á að Melabúðin hafi verið valin fyrirtæki ársins hjá VR nýlega og endurspegli það ánægju starfsfólks sem aftur endurspegli ánægju viðskiptavina. Markaðssvæði Melabúðarinnar hefur stækkað og nær nú yfir allan Vesturbæinn og Seltjarnarnesið. Þó að stórar verslanir hafi verið opnaðar í hverfinu hefur það ekki haft nein áhrif á Melabúðina. Friðrik segir að tryggð viðskiptavina sé mikil, kjarni þeirra eigi djúpar rætur í Vesturbænum og þetta fólk komi í Melabúðina. „Viðskiptavinir okkar koma alls staðar að en fyrst og fremst eru Vesturbæingar okkur tryggir, þeir koma hingað og það hafa foreldrar þeirra, afar og ömmur líka gert. Við hefðum ekki þessa viðskiptavini ef gæði og þjón- usta væru ekki í góðu lagi,“ segir Friðrik Ármann. Þeir bræður eru aldir upp fyrir austan læk en eru Vesturbæingar af hug og hjarta og búa að sjálfsögðu í Vesturbænum í dag. H5 Hattabúð Reykjavíkur 64 ára Hattabúð Reykjavíkur var stofnuð á Laugavegi 10 árið 1939 af Filippíu Blöndal ásamt tveimur öðrum. Filippía tók við rekstrinum síðar og rak verslunina til 1981. Verslunin flutti árið 1973 að Laugavegi 2 og hefur verið þar síðan. Gunnþór- unn Einarsdóttir, sem nú á og rekur verslunina ásamt dóttur sinni Knstínu Matthíasdóttur, kom með kvenfatnað inn í reksturinn árið 1971 og störfuðu þær Gunnþórunn og Fil- ippía saman í Hattabúð Reykjavíkur og Kvenfatabúðinni, sem er deild innan sama fyrirtækis, fram til 1981. Kristín segir að mikið hafi breyst frá þvi að Hattabúð Reykjavíkur hóf starfsemi sína, hattar hafi farið úr og í tísku en verslunin sé enn við lýði og svo verði vonandi áfram. Hatta- gerðin lagðist niður eftir að Filippía hætti og eru því innfluttir hattar til sölu í versluninni. Hún segir að viðskiptavinirnir séu á öllum aldri en mikið sé um að ungar stúlkur hafi áhuga á að fá sér hatt, það sé einna helst verðið sem aftri þeim. Verð á höttum er á bilinu 2.500-10.000 krónur. ffl Brynja 84 ára lsta verslunin í þessum hópi var stofnuð árið 1919 af Guð- mundi Jónssyni smið sem hafði slasast við vinnu sína í Völundi og því ákveðið að stofna verslun í bakhúsi við Lauga- veg 24. Það var verslunin Brynja. Árið 1929 flutti Brynja í húsið númer 29 við Laugaveg og þar hefur hún verið síðan. Ekki hafa verið sömu eigendur í Brynju frá upphafi. Árið 1937 seldi Guðmundur verslunina til Björns Guðmundssonar og fleiri aðila. Móðir Björns og Guðmundur voru hálfsystkini og má því segja að þar hafi fjölskyldumeðlimur komið inn. Björn Guðmundsson eignaðist Brynju árið 1953 og varð eini eigandi fyrirtækisins og nokkrum árum síðar kom Brynjólfur til starfa með föður sínum. Brynjólfur hafði starfað í Brynju i um 30 ár þegar hann eignaðist verslunina við andlát föður síns 1993. Afkomendur eða aðrir ættingjar Brynjólfs hafa ekki starfað við fyrirtækið að undanskilinni einni dóttur hans sem hefur aðstoðað hann við bókhaldið. Húsnæði verslunarinnar Brynju er í eigu Brynjólfs og systur hans. Brynja var járnvöru- og byggingavöruverslun strax frá upphafi. Miklar breytingar hafa orðið á þessum markaði og segir Brynjólfur að vöruliðum hafi fjölgað í samræmi við eftir- spurnina og er reynt að koma til móts við kröfur og óskir við- skiptavina. Að auki hefur verslunin alla tíð verið með vélar fyrir verkstæði og áhugamenn um trésmíðar. í dag er Brynja einajárn- og byggingavöruverslunin í miðborginni en um það leyti sem Björn keypti hana voru 5-6 svipaðar verslanir þar. Hann segir að daglega láti viðskiptavinir í ljós ánægju með að hafa Brynju ennþá á Laugaveginum. SH 62

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.