Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Side 66

Frjáls verslun - 01.07.2003, Side 66
iHaustið er tíminn frrir nV g'eraugu Létt sem loft ÞeirKjartan Kristjánsson ogPétur Christiansen sjón- tœkjajrœdingar hafa sl. 10 ár haft heimsins léttustu umgjardir á boöstólum, en þeir reka gleraugnaversl- anirnar Optical Studio, sem er i Smáralind ogLeijsstöð, Gleraugnaverslun Keflavíkur, Gleraugnaverslun Suður- lands og Gleraugnaverslunina í Mjódd í Reykjavík. Eins og í liverju öðru ævintýri mætti byrja sögu Poul-Jorn Lindberg með því að segja: Einu sinni var... ...lítill drengur sem bjó í Árósum, minnstu borg heims, og eins og allir aðrir drengir á hans aldri, hugleiddi hann hvað hann vildi verða þegar hann yrði stór. Draumurinn var að verða múrari sem byggði kastala og risastóra herragarða en móðir hans, skynsöm kona og hagsýn, var á öðru máli. Sonurinn skyldi ekki eyða lífinu í að klífa stillansa og hálfkláraðar byggingar og hætta með því lífi og limum. „Þú skalt verða sjónfræðingur, í því fagi liggur framtíðin," sagði hún með áherslu og sonurinn, sem var þægilegt barn og hlýðið, gerði eins og mamma sagði. Hann flutti til kóngsins Kaupmannahafnar í leit að frægð og frama eftir námið og kynntist konu sinni, Hönnu, sem hann átti með tvö börn, þau Henrik og Pernillu. Þar sem Poul-Jorn var félagslyndur maður tók hann virkan þátt í félagslífi borgarinnar skemmtilegu og kynntist mörgum. Hann hafði gaman af því að hugsa og velta hlutunum fyrir sér og ein áleitin spurning kom sífellt upp í huga hans: Mannfólkið er sitt með hverju mótinu og engir tveir eru eins. Hvers vegna eru þá gleraugu nær öll steypt í sama mótið? Og af hverju eru þau svona þung og þykk þegar ljóst er að nef manna og eyru eru ekki gerð fyrir þessi þyngsli? Spurningin rak hann áfram við að rannsaka ýmsar tegundir víra og mörg kvöldin og helgarnar fóru í rannsóknarvinnu. Þeir sem hann talaði við máttu eiga von á því að í stað kveðju eða þess að taka undir það sem sagt var, ræki hann nýjustu afurðina framan í viðmælanda sinn og heimtaði álit. Honum fannst ekkert merkilegra en þessar uppgötvanir sínar og hafði ráðið sér aðstoðarmann sem á stundum hefur senni- 66 Poul-Jorn Lindberg - upphafs- maður Lindbergumgjarðanna. lega haldið húsbónda sinn fara offari. Smátt og smátt kom fram ákveðin mynd og ný umgjörð fæddist. Poul-Jorn heyrði um málm sem væri engu líkur - titaníum - og hann ákvað að verða sér út um hann. Það reyndist þó ekki auðvelt því títaníum var aðeins framleitt í rörum og blöðum fyrir eldflaugaiðnaðinn. Það stoppaði ekki Poul-Jorn sem fór til Ameríku og kom aftur með titaníumvír sem framleið- andi hafði tekið að sér að útvega. Títaníum er mjög sérstakur málmur og lifir nær sjálfstæðu lifi. Það er erfitt að móta hann því hann færist undan og lætur ekki að stjórn. Með aðstoð hönnuðarins Hans Dissing tókst Poul-Jorn að búa til tæki sem nota mætti við vinnuna og eftir um það bil árs vinnu tókst þeim í sameiningu að búa til h | fyrstu AIR titaníumumgjörðina. L 11 n 2* Á meðan á þessu stóð sá Hanna, kona Poul- Jorn, um heimili, börn og tjármálin og mátti hafa sig alla við að svara fyrirspurnum, bægja frá skuldheimtumönnum og útvega fé til tilraunanna. Börnin stækkuðu og sonurinn, Henrik Iindberg, ákvað að hann hefði engan áhuga á því sem faðir hans væri að gera og vildi læra arkitektúr. Smátt og smátt jókst þó áhugi hans á umgjarðasmíðinni og þegar saman kom gott auga hans fyrir hönnun og frábærar hug- myndir Poul-Jorns, urðu til margar góðar umgjarðir. Því miður voru sjóntækjafræðingarnir, sem þeir sýndu umgjarðirnar, ekki upprithir yfir hugmyndinni og töldu umaarðirnar of ólíkar öUu öðru til að fólk vildi þær. Allir nema einn, sem tók þær í sölu og umtalið fór eins og eldur í sinu um borgina. „Það er eitthvað stórmerkilegt við þessar umgjarðir," sagði fólk og listamaðurinn Per Arnoldi ákvað að kanna málið. Hann féll fyrir því sem hann sá og bauð Poul-Jorn í sjónvarpsþátt sem hét: ,Af hveiju Ktur það svona út?“ árið 1987. Frá þeirri stundu hafa umgjarðir Lindbergs farið sigurför um heiminn og hvar sem þær hafa verið kynntar hafa þær slegið í gegn. Nú vinna hjá fyrirtækinu rúmlega 350 manns og viðskipta- vinir um allan heim eru yfir 7000. Umgjarðirnar eru svo léttar að þær vega aðeins frá 1,7 og upp í 3 grömm. Það er næstum því ómögulegt að skemma þær og þess vegna henta þær börnum ákaflega vel. Þar á ofan fylgir þeim 3 ára ábyrgð en það er einstakt í þessum geira. Áfallegri heimasíðu Iindberg: www.lindberg.com er að finna frekari upplýsingar um þessar frábæru umgjarðir en þess má ef til vill geta að Undbergumgjarðirnar eru, ásamt Legókubbum, stolt danskrar hönnunar og hugvits. 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.