Frjáls verslun - 01.07.2003, Síða 82
til að hanna heimilið
IHaustið er tíminn
Stílhreint og
fallegt heimili
Falleg og stílhrein húsgögn fyrir heimili og skrif-
stofur, fjölbreyttar innréttingar og smáhlutir, sem
gefa heimilinu stíl og notalegheit, eru aðalsmerki
verslunarinnar Inn-X í Faxafeni.
að skiptir engu hvort velja á skrifborð eða sófaborð, það
fæst í Inn-X sem nýlega hóf samstarf við danskt fyrir-
tæki, Bo Concept, sem er leiðandi á húsgagnamarkaði í
Danmörku og víða. Hjá fyrirtækinu starfa þekktir hönnuðir
en einnig er leitað út fyrir fyrirtækið eftir góðri hönnun.
„Það er lögð mikil áhersla á það hjá Bo Concept að hlutirnir
spili vel saman og að hægt sé að búa til fallega og heildstæða
mynd með því að raða saman húsgögnum og smáhlutum,"
segir Guðbjartur Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Inn-X. „Hægt er að
velja um áklæði, fætur og fleira og
þannig getur sami sófinn verið í
mörgum útgáfum, allt eftir smekk
hvers og eins. Hið sama gildir um
önnur húsgögn, hægt er að raða þeim
upp á ótal vegu, eftir því hvað passar
inn til viðkomandi."
Bo Concept er stór húsgagnakeðja í
Evrópu og segir Guðbjartur hana ört
vaxandi. „Nú eru um 150 verslanir í
keðjunni en stefnt er að þvl að fjölga
þeim í 300 innan fimm ára,“ segir hann.
Úrval eldhúsinnrettinya Hjá inn-x er
hægt að fá ótrúlega íjölbreytt úrval af
eldhúsinnréttingum frá Ítalíu. „Við
vorum ofurlítið kvíðin fyrst varðandi
samskipti við Ítalíu en reynslan hefur
orðið sú að þetta eru bestu viðskiptaaðilar okkar í dag,“ segir
Guðbjartur. „Ekki aðeins eru innréttingarnar mjög fallegar
og vandaðar, heldur stenst allt eins og stafur á bók sem þeir
segja. Við getum boðið þessar innréttingar á mjög góðu verði,
ekki síst vegna þess að framleiðandi fúlningahurðanna er
gríðarstór og hefur náð geysilegri hagkvæmni í framleiðsl-
unni. Það skiptir engu hvað við pöntum mikið eða lítið, eftir
viku er pöntunin farin frá þeim. Allar innréttingarnar eru úr
rakaheldu efni og mikið er lagt í festingar og aukahluti."
Vinsælasta innréttingin hjá Inn-X er í stíl sveitarómantíkur
en Guðbjartur segir það hafa komið sér nokkuð á óvart.
„Þegar við skoðuðum þessa innréttingu á sínum tíma þótti
okkur hún falleg en óraði ekki fyrir vinsældum hennar. Verðið
á henni er reyndar frábært eins og á öðrum innréttingum og
getur verið að það skipti máli þar sem sambærilegar innrétt-
ingar eru að jafnaði mjög dýrar vegna margra smáatriða sem
taka þarf tillit til í framleiðslunni."
Margir eru með skrifstofuaðstöðu heima hjá sér og vilja
hafa sama stíl á henni og heimilinu. Það gildir þó einu hvort
skrifstofan er heima eða ekki, Inn-X á húsgögn í hana. „Okkar
skrifstofuhúsgögn eru valin í samráði við sjúkraþjálfara," segir
hann. „Kröfurnar hafa aukist mjög og nú þykir sjálfsagt að
geta stillt hæð á borðum og stólum og að vinnuaðstaðan hæfi
þeim einstaklingi sem notar hana. Fólk er farið að eyða stórum
hluta dagsins við skrifborð og þá skiptir miklu máli að hafa
umhverfið þannig að það styðji við viðkomandi svo hann geti
unnið án þess að finna fyrir þreytu eða verkjum."
Það hefur ekki farið mikið fyrir Inn-X en fyrirtækið hefur
vaxið ört undanfarið og er nú í fallegu húsnæði í Faxafeni við
hlið Hagkaups. A heimasíðu Inn-X - www.innx.is er að finna
upplýsingar og myndir af vörum fyrirtækisins og hægt er að
senda fyrirspurnir og pantanir þar. Hjá Inn-X vinna 10 manns
að jafnaði en Guðbjartur segir afgreiðsluna tímafreka. „Við
förum oft heim til fólks til að skoða aðstæður og meta hvað
passar best inn í viðkomandi rými en það borgar sig að vanda
valið því að húsgögn og innréttingar eru ekki eitthvað sem
fólk skiptir út daglega.“ SH
Falleg verslun Inn-X við Faxafen.
82