Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2003, Síða 86

Frjáls verslun - 01.07.2003, Síða 86
VÍNPISTILL SIGMflRS B. ASTRÖLSK VÍN Fyrir nokkrum árum átti ég þess kost að taka þátt í smökkun á áströlskum vín- tegundum í London. Það eru líklegast um 10 ár síðan, ástralskt vín var þá ekki orðið eins vinsælt og þekkt og síðar varð. Þessi vínkynning og smökkun var síðdegis á fimmtudegi. Efdr vínsmökkunina var okkur nokkrum boðið til kvöldverðar í sendiráði Astrala. Það er tvennt sem mér er minnis- stætt frá þessum degi. Annað er að við upp- götvuðum nýjan vínheim, nýjar víntegundir sem voru í háum gæðaflokki og með sterk séreinkenni á frábæru verði. Hitt var að þarna hitti ég vínbóndann Peter Lehmann. Ég segi vínbóndann því hann minnti mig á íslenskan bónda; góðlátlegur karl, hreinn og beinn, laus við aflt snobb og tilgerð. Peter Lehmann, baróninn frá Barossa Upp úr 1900 fóru þýskir innflytjend- ur að streyma til Barossa og fóru þeir að rækta þýskættaða vínviði, - aðallega Riesling. í Barossasýslu er til nokkuð af 100 ára gömlum vínviði og nokkrir vínviðir sem eru 150 ára gamlir. Það má því segja að á ástralskan mælikvarða sé löng víngerðarhefð í Barossa. I dag eru til sex kynslóðir vín- ræktenda og á svæðinu eru nú 500 aðilar sem framleiða vínþrúg- ur og 53 víngerðarhús eða vin- framleiðendur. Barossa-vínið eru kröftugt og ávaxtaríkt. Syrah þrúgan, sem Ástralir nefna Shir- az, dalhar einkar vel í Barossa- Baróninn af Barossa ÁStralía Vínin frá Ástraliu gjörbreyttu vín- heiminum. Fram að níunda áratugnum má segja að vínheimurinn hafi verið Frakkland og Italía. Vissulega koma áhugaverð vín frá Bandaríkjunum og Spáni en vægi þeirra var lítið. Vín hefur þó verið framleitt í Ástralíu í 200 ár. Ástralir hafa þó lengst af verið bjór- svelgir. Framan af var léttvínsneysla þar lítil. Eftir heimstyrjöldina síðari flutti mikill Jjöldi fólks frá Mið- og Suður-Evrópu til Ástraliu. Þetta fólk flutti einnig með sér ákveðinn lífsstíl, þar sem vín var snar þáttur í daglegri neyslu þess. Ástralir fóru því að framleiða meira af víni en áður hafði tíðkast. Byggð voru vingerðarhús þar sem nýjasta tækni frá Evrópu og Bandaríkjunum var sameinuð. Nýjar tegundir vínviðar voru fluttar inn til Ástralíu og kynbættai'. Ástralir ákváðu að fara sínar eigin leiðir í víngerðinni, ekki herma eftir evrópskum hefðum. í ljós kom að víða í Ástraliu eru frábær skflyrði til vínræktar. Á níunda áratugnum fór svo ástralska vínið að streyma inn á markaðinn. Gæði þess voru mikil og það sem ekki var síður mikilvægt, þá var það einstaklega ódýrt. Segja má að það hafi orðið sprengja í vínheiminum. Ástralskar vintegundir urðu fljótt óhemju vinsælar, einkum í Skandinaviu og í Englandi og síðar í Bandaríkjunum og Asíu. Víngerð Ástrala er í stöðugri framför. Eitt af einkennum ástralska viniðnaðarins er að flögur stór týrirtæki framleiða 70% alls víns sem framleitt er í landinu. Búast má við að minni fram- leiðendur muni á næstu árum láta meira frá sér heyra og enn flölbreyttari flóra ástralsks víns muni koma á markaðinn. Barossa Barossa Valley í Suður-Ástralíu er miðstöð vínfram- leiðslu landsins. Evrópskir innflytjendur settust þar að upp úr 1830 og hófu þeir nánast strax að framleiða vín til eigin nota. dalnum og er Shiraz vínið þaðan með því besta í heiminum. Peter Lehmann Peter Lehmann er sonur sveitarinnar ef svo má að orði komast. Fjöl- skylda hans hefur búið í Barossa í fimm ættliði. Peter fæddist 1930 og er prestssonur. Eins og margir íbúar Barossa er Peter af þýskum ættum. Ungur fékk hann áhuga á vín- gerð og aðeins 17 ára gamafl var hann farinn að starfa í grein- inni. Hann þótti fljótt efnilegur og meðal starfa hans var að kaupa vínþrúgur af bændunum. Hann þótti naskur á gæði og átti auðvelt með að semja við bændurna. Árið 1979 stofnaði hann svo sitt eigið íýrirtæki með dyggri aðstoð góðra vina og þá ekki síst bændanna, sem hann hafði árum saman keypt vín- þrúgur af. Bændurnir treystu honum og vissu að hann var góð- ur fagmaður. Fyrirtækið framleiðir nú um eina milljón kassa af víni á ári, eða um 12 milljónir flaskna. Til þess að gera allt þetta vín þarf 15.000 tonn af vínþrúgum. Vinsældir vínsins frá Peter Lehmann aukast stöðugt og er nú selt til 16 landa. Honum hefur tekist, umfram allt, að gera úrvalsvín á góðu verði, - það er galdurinn. GOtt Úrval Víngerðaríýrirtæki Peter Lehmann framleiðir einnig vín úr þrúgum frá öðrum héruðum en Barossa. Þægilegt hvítvín á góðu verði er Peter Lehmann Clancy's á kr. 1.440. Frá Barossa kemur hins vegar Peter Lehmann Chardonnay á kr. 1.490. Þetta er ávaxtaríkur Chardonnay með mildu eikarbragði og þægilegu bragði af melónu og epli; einnig kemur fram smjörbragð. Ljómandi vín með kjöti lýrir þá sem kjósa hvítvín með mat. Þetta er einnig rétta vínið með góðum mygluostum. Peter Lehmann Semillon er aldeilis ljómandi vín, frískandi en þurrt eftirbragð. Af víninu er ljúft Þarna hitti ég vínbóndann Peter Lehmann. Hann er sonur sveitar- innar. Eg segi vínbóndann því hann minnti mig á íslenskan bónda; góðlátlegur karl, hreinn og beinn, laus við allt snobb og tilgerð. Eftir Sigmar B. Hauksson 86
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.