Frjáls verslun - 01.09.2004, Page 41
„Fyrirtæki í eigu Kögunar eiga
áfram í innbyrðis samkeppni
hvort við annað úti á
markaðnum en hafa jafnframt
skýr árangursmarkmið."
Tvær arðbærar samstæður En
hveijir voru núningsfletirnir og hver
voru atriðin sem samstaða náðist ekki
um? í sinni einföldustu mynd má segja
að málið hafi snúist um hvort almennt
væri þörf á breyttum áherslum í rekstri
Opinna Kerfa Group hf. og hvort skerpa
ætti fókus eða vera áfram í blönduðum
rekstri, það er bæði sölu á vélbúnaði og
smíði á flóknum hugbúnaðarlausnum.
A þetta höfðu menn mismunandi sýn og
niðurstaðan varð sú að Frosti Bergsson,
aðaleigandi Opinna Kerfa Group hf.,
gerði Kögun tilboð um að hans hlutur
yrði keyptur.
„Frosti hefur unnið mikið þrekvirki
við að byggja upp þetta glæsilega fyrir-
tæki. Ég skil vel afstöðu hans þegar
sú staða kemur upp að stærsti hlut-
hafinn hefur aðrar áherslur. Við þessu
er ekkert að segja, en verk hans á
undanförnum árum eru jafnglæsileg
fyrir því og hann verður áfram meðal
stærstu hluthafa," segir Gunnlaugur M.
Sigmundsson.
Hann telur að fyrir margra hluta sakir
hafi nú verið réttur tími til að ráðast í
umrædda yfirtöku. í fyrsta lagi telur hann
að stjómendum Opinna Kerfa Group
hf. hafi þegar tekist að snúa rekstri
erlendu fyrirtækjanna til betri afkomu
og sá árangur sjáist betur á næsta ári. I
öðm lagi telur Gunnlaugur að með því að
skerpa fókus Opinna Kerfa Group hf. og
faera ákveðnar einingar til og yfir í sam-
stæðu Kögunar verði til tvær mjög arð-
bærar fyrirtækjasamstæður undir sama
eignarhaldi og með veltu sem komi fyrir-
tækinu í röð 10 veltumestu fyrirtækja landsins. Þá nefnir
Gunnlaugur að Straumur ijárfestingabanki, sem er stór
hluthafi í Kögun, hafi staðið vel við bakið á félaginu í þessum
viðskiptum. „Án þess að hafa svo öflugan bakhjarl í hlut-
hafahópnum er yfirtaka lítils félags á mun stærra félagi varla
möguleg. Framlag Straums hafi ekki einskorðast við útvegun
ijármagns heldur lagði bankinn til yfirgripsmikla þekkingu á
þeirri tækni sem til þarf við svona viðskipti.“
41