Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2004, Page 54

Frjáls verslun - 01.09.2004, Page 54
bæði þessi verkefni með ágætum enda sé hún þeim kostum búin sem þarf í starfið. „Tinna hefur mjög góða yfirsýn og er fljót að komast að kjarna mála. Hún hefur gott viðskipta- vit og hefur sýnt ótvíræða hæfileika þar sem sýsl með peninga og hagkvæmni í úrlausn verkefna er annars vegar,“ segir gamall kunningi Tinnu og minnir einnig á að til að styrkja stöðu sína á vett- vangi stjórnunar og ijármála hafi hún hafið MBA- nám við Háskólann í Reykjavík haustið 2003 og stundað það með vinnu. Mun Tinna útskrifast með MBA-gráðu í júní á næsta ári. Tinna hefur áunnið sér traust á viðskiptasviðinu sem endurspeglast meðal annars í setu hennar sem varamanns í Utflutningsráði. Þá hélt hún um taumana á hádegisverðar- fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga Deloitte í október. Þar var fullt út úr dyrum og góður rómur gerður að fram- sögu hennar urn þema fundarins, listina í viðskiptum. Úr líffræði í leiklist Tinna Gunnlaugsdóttir er fædd í Reykjavík 18. júní 1954, er í tvíburamerkinu. Hún er dóttir Herdísar Þorvaldsdóttur leikkonu og Gunnlaugs Þórðarsonar hæstaréttarlögmanns, sem er látinn. Tinna er yngst fjögurra systkina en þekktast þeirra er Hrafn Gunn- laugsson kvikmyndaleikstjóri. Eftir stúdentspróf frá Mennta- skólanum í Reykjavík lagðist Tinna í ferðalög í eitt ár, en hóf síðan nám í líffræði við Háskóla íslands. Hún lék mikið sem barn og unglingur en eftir stúdentspróf virtist stefnan tekin á allt annað en leiklist. En eftir að hún fór í leiklistarskóla SAL varð ekki aftur snúið og plön um frekara háskólanám sett á hilluna. Tinna útskrifaðist frá Leiklistarskóla íslands árið 1978, starfaði iýrst hjá Leikfélagi Reykjavíkur en fékk fastráðningu hjá Þjóðleikhúsinu árið 1982 þar sem hún hefur leikið hátt í fimmtíu hlutverk. Auk starfa hjá Þjóðleikhúsinu hefur hún unnið fýrir Alþýðuleikhúsið, Loftkastalann og Leikfélag Islands. Þá hefur Tinna leikið í ijölmörgum íslenskum kvik- myndum, í útvarpi og sjónvarpi og sótt námskeið í leiklist, handritsgerð og menningarstjórnun erlendis. Hún hefur unnið sem aðstoðarleikstjóri og leikstjóri á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum. Tinna hefur einnig látið að sér kveða í hagsmunamálum leikara og listarinnar almennt en hún hefur átt sæti í stjórn Félags íslenska leikara og var formaður Leikarafélags íslands um tíma. Tinna varð forseti Bandalags íslenskra listamanna 1998 en lét af því starfi á dögunum. Á þeim vettvangi aflaði hún sér einnig traust erlendis og var í forsvari fyrir Norræn listabandalög um tíma og varaforseti ECA, Evrópuráðs listamanna. Þá er ónefnd seta í þjóðleik- húsráði og leikritavalsnefnd Þjóðleikhússins. Tinna hefur hlotið íjölda viðurkenninga fyrir leik sinn heima og erlendis. Hún er handhafi Edduverðlaunanna 1999 fýrir leik sinn í kvikmyndinni Ungfrúin góða og húsið og var tilnefnd til Grímunnar í íýrra. Tinna hefur einnig fengist við handritaskrif og leikstjóm og sjónvarps- mynd hennar „Mynd fyrir afa“, sem sýnd var á RÚV að kvöldi jóladags í fýrra, hefur nú verið tilnefnd til Edduverðalaunanna. Tinna hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2002 fýrir störf í þágu menningar og lista. Tinna er gift Agli Ólafs- syni, tónlistarmanni og leikara, og eiga þau þrjú börn: Ólaf, leikara og búningahönnuð með meim, Gunnlaug, ballettdansara við Konunglegu ópemna í Stokkhólmi, og Ellen Erlu, nemanda í Fjölbrautaskólanum við Armúla. Dlll en traust 'l'inna kemur fýrir sem tíguleg kona og virkar sjálfsömgg. Hún er sterk en um leið fíngerð og ekki mikið lýrir að bera tilfinningar sínar á torg - nema á leiksviðinu. „Tinna er ekki allra en hún reynist vinum sínum afskap- lega vel. Hún lætur ekki endilega uppi hvað henni finnst eða hvemig henni líður og sumum finnst hún dul og seintekin. Margir líta á það sem galla en það sýnir óneitanlega styrk að geta haldið sínu út af fyrir sig í þessu þjóðfélagi þar sem hver er með nefið í annars koppi. Tinna gefur ekki öllum kost á að narta í sig þó hún sé opinber persóna," segir kona sem þekkir Tinnu ágætlega. En þeir sem þekkja Tinnu segja að hún sé mikill vinur vina sinna og hafi leiftrandi kímnigáfu sem studd er sterkri nærvem. Tinna er fædd inn í leiklistina og hefur eflaust notið reynslu móður sinnar á þeim vettvangi. Viðmælendur FV em sammála urn að hún hafi fengið það besta frá báðum foreldmm. Henni er lýst sem næmum fagurkera og þykir flink í höndunum sem endurspeglast m.a. í fögmm flíkum sem hún hannar og saumar. Þá þykir hún greind, sérlega rökföst og skynsöm. Tinna kemur ekki á óvart í áhugamálum eða öðm sem hún sýslar við utan vinnu. Hún segir enda sjálf að leik- listin sé hennar ástríða. Wliklar væntinga Það em eðlilega töluverðar væntingar til Tinnu í starfi þjóðleikhússtjóra. í leikhúsinu starfa reglulega vel á annað hundrað manns en vegna umfangsmikilla verk- efna getur heildarflöldi starfsmanna farið í 400-500. í viðtali við Morgunblaðið í október sagði Tinna að Þjóðleikhúsið ætti að þjóna fólkinu bæði með því „að skemmta því, mennta það og upplýsa, ögra því og í einu orði sagt vera framúrskarandi í öllu listrænu tilliti". Þetta væm þær væntingar sem gerðar væm til Þjóðleikhússins og það væri ábyrgðarhlutur að standa undir öllum þeim væntingum. Af viðmælendum Frjálsrar verslunar að ráða bendir flest til þess að það muni ekki vetjast fýrir Tinnu Gunnlaugs- dóttur að axla þessa ábyi'gð, hún hafi þann styrk sem þarf í starfið.H3 „Það fer ekki mikið fyrir Tinnu í daglegu amstri, en hún nær sínu fram með hægð og festu. Hún er heiðarleg og hreinskilin í samskiptum og það dylst fáum að þama er á ferð sterkur persónuleiki," segir Stefán Baldursson, fráfarandi þjóðleikhússtjóri. „Tinna hefur mjög góða yfirsýn og er fljót að komast að kjama mála. Hún hefur gott viðskiptavit."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.