Frjáls verslun - 01.09.2004, Side 57
Rannveig Rist, stjórnarformaður
Símans.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans.
Magnús Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri íslenska sjónvarpsfélagsins.
Og vodafone og Skarphéðin Berg Steinarsson, stjórnarfor-
mann Norðurljósa og fulltrúa Baugs sem átti 31,9 prósent í
Norðurljósum fyrir kaupin. Forstjóri Baugs er, sem kunnugt
er, Jón Asgeir Jóhannesson.
Nokkru áður en umbyltingin varð hjá Norðurljósum hafði
Og vodafone keypt allt hlutafé í IP fjarskiptum og Marg-
miðlun. Síðastnefndu kaupin sýndu að allar fyrirætlanir um
sameiginlegt dreifikerfi fyrirtækjanna voru sprungnar í loft
upp. Kaupin voru liður í ADSL-væðingunni en sjónvarps-
fyrirtækin hafa fylgst með þróuninni á þessu sviði. Síminn
hefur þegar tekið ákvörðun um að fara í fjárfestingu fyrir
ADSL-sjónvarpsdreifmgu og m.a. keypt meirihluta hluta-
ijár í Skjá einum til að tryggja sér efni til dreifingar. Engin
ákvörðun hefiir þó verið tekin um það hvemig dreifingar-
málum Skjás eins verður háttað en Síminn hefur talað um
ADSL-dreifingu sem spennandi lausn þvi að þar með fæst
gagnvirkt sjónvarp. Myndfykill yrði þá settur í samband við
ADSL-símalínuna og við sjónvarpið á heimilum og þar með
geta boðin gengið í báðar áttir.
Norðurljós hafa tekið ákvörðun um að fara í loftdreif-
ingu sem hefðbundna stafræna lausn. Sumir telja hana
tímabundna því að Norðurljós neyðist til að skipta um lausn
áður en langt um líður. Verkefnið er kallað Digital ísland og
verður því hmndið úr vör nú í nóvember. Verður þá skipt
um myndlykla á 60 þúsund heimilum á höfuðborgarsvæð-
inu, íbúunum að kostnaðarlausu. Með stafrænni dreifingu
fást betri gæði og nýting á tíðnunum sem Norðurljós senda
út á. Þegar rætt er við menn kemur í ljós að sumir telja þetta
gamaldags kerfi miðað við það besta sem boðið er upp á
í dag þar sem sjónvarpsáhorfandinn verður að notast við
GSM-síma til að hafa samband við myndþjóna. Áhorfandinn
sest við sjónvarpið, velur sér efni í dagskrárvísinum og
sendir Norðurljósum SMS til að láta vita af því hvað hann
vill horfa á. Forsvarsmenn Norðurljósa hafa hafnað þessari
gagnrýni algjörlega.
Arðbærustu swæðln „teppaiögð" Þegar rætt er við for-
svarsmenn blokkanna tveggja fer ekki á milli mála að stríðið
er í algleymi. Skjás eins megin benda menn á að Norðurljós
hafi gríðarlegt tíma- og samkeppnisforskot því að þeir einir
hafi leyfi. Með því að vera fyrstir geti þeir teppalagt öll arð-
bærustu svæðin, eins og Faxaflóasvæðið, og reist þröskuld
þannig að það verði erfiðara fyrir hina að komast inn á
markaðinn. í stafrænu sjónvarpi, af svipaðri gerð og Norður-
57