Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2004, Síða 59

Frjáls verslun - 01.09.2004, Síða 59
fara í dreifikerfi í loftinu. Við höfum lagt áherslu á og viljað ná samvinnu um slíka úrlausn en nú er ADSL-kerfi Símans í uppbyggingu og Fjölvarpið fyiir Faxaflóasvæðið hjá Norður- ljósum í vinnslu. Svo er Orkuveita Reykjavíkur með ljós- leiðaravæðingu sem er fyrirferðarmikið verkefni sem tekur talsverðan tíma að byggja upp þannig að það náist til allra varpsmerki gegnum loftið og síðan er það alltaf spurningin hversu lengi er hægt að uppfæra koparvírana til að flytja sjónvarpsmerki. Þegar Síminn átti í viðræðum við íslenska útvarpsfélagið í vetur um uppbyggingu stafræns dreifikerfis með ADSL- tækni veltu eigendur og stjórnendur íslenska útvarps- félagsins því fyrir sér að fara í samstarf við Símann. Þeim var ekkert að vanþúnaði að gera það en það var mat þeirra að uppbygging ADSL-kerfisins yrði of hæg. Þess vegna lögðu þeir til að Síminn byggði upp stafrænt dreifikerfi með íslenska útvarpsfélaginu á örbylgjunni en ynni samhliða að breytingum yfir í ADSL. Síminn hefur unnið að uppbygg- ingu Breiðvarpsins í níu ár og hefur 5-6 þúsund áskrifendur. Síminn bauð íslenska útvarpsfélaginu að koma inn í þetta kerfi og taka þátt í þróun þess en vildi á sama tíma vera í samkeppni um dreifingu erlendra gervihnattarása. Það var mat íslenska útvarpsfélagsins að ljósleiðaravæðing Símans ætti svo langt í land að félagið gæti ekki notast við ljósleið- ara sem sína aðaldreifileið og yrði of dýr líka. Þegar rætt var við Símann í fyrra átti íslenska útvarpsfélagið í mikilli vamarbaráttu og töldu stjórnendur þar að ríkið, aðaleigandi Símans, vildi helst koma Norðurljósum fyrir kattarnef. Yið bættist að Síminn var að reyna að hafa örbylgjurásir af Norðurljósum í sérstöku samstarfi við RÚV og Skjá einn, að mati sömu stjórnenda. íslenska útvarpsfélagið ákvað því að byggja upp sitt eigið stafræna dreifikerfi og þróa sjón- varpsdreifingu um kopar í gegnum IP-fjarskipti sem höfðu þá þegar komið upp búnaði til slíks á Reykjavíkursvæðinu. frh. á nœstu síðu Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra: Finna skynsemisleið Eg tel að það hafi ekki orðið nein mistök í þessu máli. Fyrir- tækin em í bullandi samkeppni og hafa ekki ennþá fundið leið til að fara þá braut sem er hagstæðust bæði fyrir fyrirtækin og neytendur. Ég hef rætt við forsvarsmenn fjarskiptafyrir- tækjanna og sjónvarpsfyrirtækjanna og spurt hvort ekki séu möguleikar á því að þessir aðilar nái saman um skikkanlega lausn þannig að við nýtum öll þessi kerfi okkar í þágu neytenda og hröðum uppbyggingu stafræna kerfisins. Því hefur ekki verið neitað en fálega tekið. Ég er svo mikill bjartsýnismaður að ég hef trú á því að menn, sem höndla með rekstur og eignir sem þarf að hafa sem mest út úr, finni þá skynsemisleið sem ég hef lagt til þó að þeir berjist nú á víglínunni," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. notenda á orkusvæði Orkuveitunnar. Verið er að ljósleiðara- væða Akranes og Seltjamamesið. Með ljósleiðaravæðing- unni verður auðveld dreifing á sjónvarpi, intemeti, síma og gagnvirk gagnamiðlun af ýrnsum toga,“ segir Markús Öm. • Af hverju er svona mikið að gerast í þessum málum núna? •■Tækninni fleygir fram og nýir möguleikar opnast. Síminn þarf að tryggja stöðu sína á markaði með sína gífurlegu fjár- festingu í koparsímalínum og tengingu við flestöll heimili í landinu. Nú er að koma ný tækni sem gerir kleift að miðla sjónvarpi með ADSDtækni. Tæknin rekur menn áfram,“ svarar hann og telur að tækninýjungin ein og sér dugi ekki. Þ'ólk borgi ekki fyrir að tengjast nýju dreifikerfi nema það hafi aðlaðandi efni þangað að sækja. Þess vegna séu fjarskipta- fyrirtæki eins og Síminn að kaupa dagskrárfyrirtæki eins og Skjá einn. Sama gildi um Norðurljós. „Þannig á þessi sam- keppni eftir að þróast. Svo setur maður spumingarmerki við það hversu lífvænlegt það verður fýrir marga aðila að heyja glímu á þessum litla markaði.“ FV Allir lögðust á árar... Sturla skipaði starfshóp undir forystu Jafets Ólafssonar, forstjóra Verðbréfastofunnar, í fyira og átti hann að koma með tillögur um framtíðarfyrirkomulag sjónvarps og útvarps, hvemig haga ætti innleiðingu stafræns sjónvarps þannig að það væri sem einfaldast og mest til hagsbóta fyrir neytendur. í framhaldi af tillögum starfshópsins efndi ráðuneytis- stjóri samgönguráðuneytis til fundar með fulltrúum sjónvarps- og fjarskiptafyrirtækjanna. ,AHir vom góðir vinir og lögðust á árar um að sameinast um þetta,“ segir Sturla Böðvarsson. Forstjóri Póst- og tjarskipta- stofnunar var svo settur í verkefnið og var málið taHð á góðri leið í höfn þegar Norðurljósum var úthlutað 16 örbylgjurásum af 21 og aflt fór í loft upp miHi fyrirtækjanna. Og vodafone hafa síðan keypt Norðurljós en fyrirtækið er sem kunnugt er sprottið úr þremur fyrirtækjum, TaH, Íslandssíma og HaUó. Þá hefur Og Vodafone undirritað vHjayfirlýsingu um að kaupa aHt hlutafé í linu.Neti og eignast þar með ljósleiðarann sem verið er að leggja um landið. Þá hefur Síminn keypt stóran hlut t Skjá einum. [0 59
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.