Frjáls verslun - 01.09.2004, Page 76
Að kaupa íbúð í
Fasteignaverð í London mælist í
stjamfræðilegum tölum.
Efdr Sigrúnu Daviðsdóttur í London
Háar tölur í fasteignaauglýsingum í London minna
meira á stjömufræði en jarðleg visindi. Eftir stígandi
fasteignaverð í 9 ár er það viðvarandi spuming hvort
markaðurinn bresti nú ekki bráðum. Fyrir ári bjuggust allir við
því. En þá kom í ljós að fram í september 2003 hafði fasteigna-
verð í Bretlandi methækkað um heil 18 prós-
ent, en heldur minna í London. Nú gæti spáin
verið að rætast.
Framan af árinu var hækkunin 1,5 prósent
á mánuði á íbúðaverði í London. Hún er núna
um 0,1-0,2 prósent á mánuði, sem sumir
segja að stafi þó einungis af því að fólk bíði
með kaup í von um fallandi verð. Þeir svart-
sýnu segja að fasteignaverð í London muni falla um Jjórðung
á næstu tveimur ámm, þeir bjartsýnu segja að verðið muni
aðeins standa í stað um hríð.
A síðasta tímabili óðahækkana á níunda áratugnum slógu
húseigendur áþreifanlega mynt út á hækkanir. Sá sem skuldaði
20 þúsund pund í húseign, sem var allt í einu metin á 100 þúsund
pund, gat tekið lán í fasteigninni upp á um 60 þúsund - það er
algengast að 80 prósent verðsins fáist að láni. Mikið af þessum
lánum fór í eyðslu og gaman og á því döfnuðu til dæmis veitinga-
hús og ferðaskrifstofur. Þegar verðið hrundi margfölduðust
samdráttareinkennin og það hrikti í efnahags-
kerfinu.
Afleiðingin var líka að margir skulduðu
á endanum meira en fasteignin var metin á.
Þeir sem réðu \dð afborganimar gátu yppt
öxlum, en þeir sem neyddust til að selja sátu
uppi með sárt enni og skuldir. Þetta gerðist
ekki aðeins hér í Englandi upp úr 1990 heldur
Með íslenskum augum er
afar erfitt að skilja að 100
fermetra 2-3 herbergja
íbúð í Chelsea geti kostað
130 milljónir króna og
það án gullkrana.