Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2004, Síða 105

Frjáls verslun - 01.09.2004, Síða 105
- allt æfingabrot sem vísindalega eru sannaðar að beri árangur og með þessu kennir hann fólki að takast á við streituna í daglegu lífi. „Flestir ef ekki allir þurfa að takast á við streitu og í mörgum tilfellum er um stöðugt, langvarandi álag að ræða, krónískt álag. Ef maður nær ekki að vinna úr stressinu þá setur maður það einhvers staðar í líkamann - því mjög margir kkama áreiti sitt - setja spennuna einhvers staðar í líkamann og geyma hana þar, t.d. í kjálkana, mjóbak, maga. Allt í einu er maður kominn í vítahring spennu, spennan spennir okkur upp og við nærumst á henni. Við göngum svo fyrir spennuorku allan daginn. Þegar við fáum loksins pásu er oft tilhneiging til að fá sér bjór, glápa á sjón- varp eða eitthvað þvíumlíkt í stað þess að sinna okkur á heil- brigðan hátt, t.d. með þvl að fara í eróbikk, ganga og synda. Allt hefur þetta mjög jákvæð áhrif því að það er læknisfræði- lega sannað að t.d. hreyfing hefur góð áhrif á þunglyndi." 1,2, 3... Margir hafa lært aðferðir að grípa til á stressuðum augnablikum, t.d. með þvi að anda með ákveðnum hætti eða telja í huganum við ákveðnar streituvaldandi aðstæður. Ægir Rafii segir að mannshugurinn sé partur af vandamálinu því að „hann kemur okkur í vandræðin en ekki úr vandræðunum aftur. Við steingleymum öllum aðferðunum þegar á reynir og það á við um þorra fólks. Þegar við lendum í streituvaldandi aðstæðum þá dettum við sjálfvirkt inn í streituna áður en við munum eftir því að telja eða anda eins og okkur hefur verið kennt. Þess vegna virkar oft ekki. Aðferðin sem ég nota er að fara í gegnum líkamann til að líkaminn sjái sjálfur sjálfvirkt um að ráða við streituna án þess að við þurfum að muna eftir neinum aðferðum. Minn líkami ræður t.d. meira sjálfvirkt við streituna," útskýrir hann. í hópnum gerist kraftaverk Ægir Rafn notar öndun og hreyfingar sem eru vísindalega rannsakaðar á vestrænan hátt og hafa gefið góða raun. „Þessar aðferðir minnka streitu og gefa jákvæða raun gagnvart því áreiti sem við verðum fyrir. Það sem gerist er þetta: Við höldum áfram að verða stressuð þegar það er mikið álag en munurinn er sá að smám saman stendur stressið yfir í miklu styttri tíma en áður. Það er eins og smellt sé fingri. Og smám saman lengist bilið þannig að maður hefur alltaf meiri og meiri tíma til að bregð- ast við, stressið verður minna og maður er fljótari að jafna sig eftir það. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem gera þessar æfingar reglulega ná jafnvægi mun fyrr en aðrir.“ - Þarf há ekki að Viðhalda hessu? Jú. Margir spyrja hvort þeir geti ekki gert það heima hjá sér og við því eru tvö svör, bæði já og nei. Fræðilega er hægt að gera það heima hjá sér. En yfir 90 prósent af fólki, sem gerir þetta heima, hættir því smám saman. Þess vegna er gott að vera í hóp, fara á ákveðinn stað og vera með öðru fólki því að þá hjálpar hópur- inn manni til að mæta og sinna sér. Það bæði agar mann og styður þannig að ég mæli með því að þetta sé gert í hóp. Fyrir utan það að þegar hugleitt er í hóp þá gerist eitthvað óútskýr- anlegt sem yfirleilt gerist ekki þegar maður er einn.“ Hálf dösuð á eftir Ægir Rafn segir að hjá flestum byij- endum, og jafnvel lengra komnum, fari hugurinn á flakk í hugleiðslunni. Hann sé hvergi þar sem hann eigi að vera. „Þetta er bara staðreynd og svona er þetta líka hjá þeim sem eru vanir hugleiðslu. Þetta gerist alltaf öðru liverju og maður leyfir því að gerast. Með því að bæta hreyfingu við þessa tegund hugleiðslu þá festum við athygli hugarins við hreyfinguna þannig að hugurinn fer ekki á flakk heldur er upptekinn af því að fylgjast með hreyfingunni." - Er þetfa öá mestmegnis hugleiðsla? „Það má segja að aðalrétturinn í borðhaldinu sé hugleiðsla. En við erum með nokkra forrétti sem eru bæði hreyfing og ákveðin öndun. Það hefur verið vísindalega sannað að öndun hefur ákveðin áhrif á heilabúið og hún gerir það að verkum að við fáum margfalt út úr hreyfihugleiðslunni þegar við förum í hana. Eftirrétturinn er síðan rólegheit, við verðum að leyfa okkur að ná áttum því að þetta er svo kröftugt að við getum við hálf dösuð á eftir. Þannig er borðhaldið." Og hvaða ráð gefur hann þeim sem þjást illa af streitu? Að spyija sjálfa sig í einlægni hvort viðkomandi VILJI gera eitt- hvað og fara síðan af stað og finna sér leið. 33 Borðhaldið Forréttur: Hreyfing og öndun. Aðalréttur: Hugleiðsla. Eftirréttur: Rólegheit. Hlaðið á varnartank í líkamanum Aðferð sú sem hér er lýst hefur að markmiði að nota vamar- kerfi líkamans til að koma í veg fyrir afár slæmar afleiðingar streitu. Það er ekkert sérstakt keifi sem kennt er sem þarf að beita þegar streitu-ástand kemur upp. Aðferðir þessar eru teknar úr ýmsum áttum og eiga það allar sameiginlegt að hafa verið vís- indalega sannaðar að virki. Aðferðin byggist á því að 2-3 sinnum í viku eru gerðar sérstakar æfingar í 40-50 mínútur. Þær ganga m.a út á léttar líkamsæfingar, sérstaka öndun, hreyfihugleiðslu og slökun. Með þessu móti er hlaðið á vamartank í líkamanum sem Mkaminn setur í gang þegar hann verður fyrir áreiti í erli dagsins. Því meir sem gert er af þessu þeim mun öflugri verða vamimar. Einstaklingurinn finnur fyrir streitu við álag. En það stendur styttra yfir. Smám saman þarf líka meira til að valda streitu... og smám saman verður breyting á viðhoifi. Einstakl- ingurinn fer að verða færari að velja hvemig hann bregst við streitu/álagi í stað þess að bregðast ósjálfrátt við strax.S!i 105
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.