Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 56
130
MORGUNN
hefi ég, satt að segja, óttast lífiö meir en dauðann, Því
að kröfur lífsins finnast mér œ hátálaðri, eftir þvi sem
mér miðar meir áfram á veginum, og þó virðist mér svo,
sem aðeins örfáir af öllum þeim múg og margmenni, sem
á veginum er, hafi hugmynd, enn sem komið er, um þœr
kröfur, eins og þœr eru. Ég sé þá hópa sig kappsamlega
kring um dauðann, þegar hann ber að höndum; þetta
mcettu þeir gjöra, ef þeir hópuðu sig enn kappsamlegar
kring um hinar stóru spurningar lífsins, ef þeir hópuðu
sig til að grafa eftir guRkornum sanhleikans, frelsisins,
friðarins, hópuðu sig til að kanna ófarnar leiðir og leiða
fram ónotuð gœði og leggja þannig grundvöllinn undir
nýtt líf.
SJÖ LlKAMAR
Allur vandinn er lífið, öll ábyrgð og aliur kraftur býr í
lífinu, dauðinn, sem við köllum svo, er aðeins merki á
végamótum þessa heims og annars.
Nú skulum við hugsa þetta betur og nánar; við höfum
fleiri klæði til skiptanna — við höfum líka fleiri líkami,
einn verður að dufti, en allir hinir lifa.
Þið vitið að jarðnesk augu okkar skynja ekki nema
örfáar sveifluhreyfingar. Þar af leiðir, að við getum ekki
séð aðra hluti en þá, sem senda frá sér eða endurkasta
fáar sveifluhreyfingar, sem við köiium ijós. Og athugið:
við sjáum ekki allar bylgjur efnisheimsins, ekki sjónvarps-
eða útvarpsbylgjur, rafmagn, vinda eða alla sólargeislana.
C. W. Leadbeater segir: Skilningai’vit hins andlega líkama
skynja heldur ekki nema ákveðinn sveiflufjölda, er berst
til vor frá smágjörvari efnistegundum.
Við höfum 7 þætti, eða réttara sagt 7 líkami. Þeir eru
hver inni í öðrum, en þó vel sýnilegir, fyrir mér.
Sá fyrsti, er sá jarðneski, sem við þekkjum og sjáum,
orkusvið hans og heilsublik hans — ég segi að við þekkj-
úm hann og sjáum, en það er hin mesta vitleysa, það eru
ótal þættir i hinum jarðneska líkama sem við þekkjum