Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 14
88
MORGUNN
upp. Meðal annars segir sá er innstur hafði legið í tjald-
inu: „Ég vildi ég ætti það, sem mig dreymdi í dag“. „Hvað
var það og hvað dreymdi þig?“ segir sá er gufuna hafði
séð. Hinn segir: „Ég þóttist ganga hér út um völlinn.
Kom ég þá að húsi einu miklu og fallegu. Þar var fjöldi
manna saman kominn og sungu menn þar og spiluðu með
kæti mikilli og gleði. Ég var lengi nokkuð inni í húsi þessu,
en þegar ég fór út gekk ég enn lengi um létta völlu og
fagra. Kom ég þá að á einni mikilli. Ég leitaðist lengi við
að komast yfir hana en gat ekki. Þá sá ég hvar kom ógur-
lega stór risi. Hann hafði tré geysimikið í hendinni og lagði
hann það yfir ána. Fór ég þá yfir ána á trénu og gekk enn
lengi. Kom ég þá að haugi einum miklum. Haugurinn var
opinn og gekk ég inn í hann. Þar fann ég ekkert annað
en tunnu eina stóra fulla með peninga. Þar var ég lengi og
var ég að skoða peningana því slíka hrúgu hafði ég aldrei
fyrr séð. Síðan fór ég út og gekk hinn sama veg og áður
fóf ég. Kom ég þá að ánni og kom þá líka risinn með
tré og lagði það á ána. Ég fór yfir um eins og áður á
trénu og heim hingað í tjaldið“. Maðurinn sem elt hafði
gufuna fór nú að verða kátur með sjálfum sér og segir:
„Komdu, lagsmaður, við skulum sækja snöggvast pen-
ingana.“ Maðurinn fór að hlæja og hugsaði að hann væri
ekki með öllum mjalla, en fór þó. Ganga þeir nú sama veg
og gufan hafði farið. Koma þeir þá að þúfunni og grófu
hana upp. Þar fundu þeir kút fullan af peningum. Fóru
þeir síðan heim aftur til lagsmanna sinna og sögðu þeim
upp alla söguna um drauminn og gufuna.“ (Jón Árnason,
1954, 342-43).4
Nákvæmlega samsvarandi saga þekkist í þjóðsagnasafni
Grimmsbræðra. Þar segir frá Gunthram konungi, sem
svaf úti í skógi. Fylgdarmaður hans vakti og sá eins og
orm skríða úr munni konungs. Ormurinn skreið að lækn-
um. Hirðmaðurinn lagði sverð sitt yfir og fór ormurinn
yfir á því. Síðan þaut hann upp á fjall þar í grennd, kom
aftur eftir nokkra stund og hvarf ofan í konung. Þegar