Morgunn - 01.12.1984, Blaðsíða 69
DATJÐI OG UPPRISA
143
Úr bókinni
„SPÁMAÐUR1NN“
eftir Kahlil Gibran
Mál er nú aö sjryrja um dauðann.
Og hann sagði:
Þú leitar að leyndardómi dauðans.
En hvernig œttir þú að finna hann, ef þú leitar hans ekki
1 ceðaslögum lífsins?
Uglan, sem sér í myrkri, en blindast af dagsbirtunni, rœð-
Ur ekki gátu Ijóssins.
Leitaðu að sál dauðans í likama lífsins, því að líf og dauði
er eitt eins og fljótið og scerinn.
í djújn vona þinna og langana felst hin þögla þekking á
hinu yfirskilvitlega, og eins og frcein, sem dreymir undir
snjónum, dreymir hjarta þitt vorið.
Trúðu á draum þinn, þvi að hann er hlið eilífðarinnar.
Öttinn við dauðann er aðeins ótti smaladrengsins við
konung, sem vill slá hann til riddara.
Rr smálinn ekki glaður i hjarta sínu þrátt fyrir ótta sinn
Vlð að bera merki konungsins?
Og finnur hann þó ekki mest til óttans?
Því að hvað er það að deyja annað en standa nakinn
1 blcenum og hverfa inn í sólskinið?
Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa
kann frá friðlausum öldum lifsins, svo að hann geti risið
úpv i mœtti sinum og ófjötraður leitað á fund guðs síns?
Aðeins sá, sem drekkur af vatni þagnarinnar, þelckir
kinn vólduga söng.
Og þegar þú hefur náð œvitindinum, þá fyrst munt þú
kefja fjcdlgönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama þíns, muntu dansa í fyrsta
sinn.
ÞýÖ.: Gunnar Ddl.