Morgunn


Morgunn - 01.06.1991, Page 6

Morgunn - 01.06.1991, Page 6
RITSTIÓRARABB MORGUNN hætta á upplausn. Það eru ekki allir færir um að greina hismið frá kjarnanum í fljótu bragði, sem kann að bjóða heim hættu á ruglingi og vantrú. Og þá verður stutt í fráhvarfið. Með svona hraðri og æsiiegri markaðssetningu, sem þetta er óneitanlega farið að bera keim af, því hér skiptir miklu máli að ná hlustun eða lestri, ekki satt, og því miður þá er það ekki alltaf það skynsamlegasta sem er vænlegast til þess að ná þeim markmiðum, þá finnst mér að hér muni fyrst og fremst vera og verða fleyttur rjóminn ofan af. Minna verði hugað að hugsanlegum neikvæðum afleiðingum boðunar- innar, sem eru t.d. þeir sem misskilja, misnota eða öðlast aðrar vonir út úr umfjölluninni en til var ætlast. Hvert eiga þeir að leita? Varla inn á útvarpsstöðvarnar eða ritstjórnir tímaritanna og blaðanna. Ábyrgð blaðamanna og þáttastjórnenda er því veruleg í þessum málum í dag og þeir verða í raun aldrei nógsamlega hvattir til þess að nota skynsemina, gæta hófsemi og vera hæfilega gagnrýnir á það efni sembýðst hér aðlútandi, ekki bara fleyta því takmarkalaust yfir fólk í nafni óhefts frjáls- ræðis og jafnréttis. Það getur stundum verkað eins og ef ósyndum manni væri varpað út í botnlausa tj örn og einfald- lega sagt að nú væri búið að kynna honum vatnið og koma honum af stað, hér eftir yrði hann að læra af reynslunni. Við megum heldur ekki gleyma því að við erum hingað komin á þessa jörð til þess að Úfa lífinu við þær aðstæður og lærdóm sem hún býður upp á. Og það þýðir ekki að við eigum að líða áfram í einhverjum ljúfsárum draumi og gleypa gagnrýnilaust við öllu sem að okkur er rétt undir formerkjum nýaldarhugsunar og andlegrar vakningar. Gætum þess að hafa báða fætur á jörðinni. Reynum sjálf að vinna í okkar eigin ranni'f’ stað þess að vera sífellt að hugsa um það hvernig við getum sem fyrst fengið alla aðra til þess að Úta sömu augum á lífið og tilveruna. Ef við byrjum á okkur sjálfum og inm á heimilum okkar þá getum við myndað n.k. andlega ölduhreyfingu sent fer stækkandi, skapar hreyfingu hjá þeim sem í nágrenni okkar eru, sem enn hrinda af stað annarri hringgáru og síðan koll 4

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.