Morgunn


Morgunn - 01.06.1991, Page 30

Morgunn - 01.06.1991, Page 30
Leitin að sálufélaga MORGUNN skilnings, næstum eftirvæntingar, virtist hafa áhrif á full- orðið fólk á öUum aldri og trúarbrögðum. Hjá hinni venjulegu manneskju sem hafði áður gert sig ánægða með væntingar um öruggt og þægilegt hjónaband var nú komin þrá eftir einhverju meiru. Miðlar og ráðgjafar af öUu tagi voru að kaffærast, ekki í hinum hefðbundnu spurningum um ævistarf, rómantík og heUsu, heldur um „hvenær mun ég finna sálufélaga minn?" Sumt af þessu varðaði ranghugmyndir um hjónabandið og hina háu skilnaðartíðni, en svona almennt þá var þetta merki um vaxandi trúnað á austræna endurholdgun sem lofaði áframhaldandi lífi í heimi á ystu nöf. Vegna vonbrigðanna í Víetnam var komin löngun eftir fegurð og fullkomnun, nýjum hetjum, þar sem dagar and- hetjunnar enduðu jafn skyndilega og þeir höfðu hafist. Hin auðvelda viðurkenning á endurholdgun, sérstaklega á meðal unga fólksins, oUi næstum því byltingu í vestrænni hugsun. Ég sá börn rölta til einhvers gjörókunnugs og segja: „Ég kann vel við þig, ég hef þekkt þig áður." Og eftir að þeim hafði verið heilsað með hlátri, þá tUtóku þau oft hvar og hvenær það hafði átt sér stað. Það var sama hverju þeir fuUorðnu trúðu, unga fólkið var tilbúið að hafna því. Dag nokkurn er ég settist niður með vini mínum, Alberto Sarno í Sarnos DeU óperu kaffihúsinu í Holly wood, þá sagði hann faUegri stúlku að ég væri að skrifa um sálufélaga. Kirsten Schroeder, stúlka uppalin í KaUforníu en fædd í Minnesota, lyfti ljósum augabrúnunum. „Sálufélaga, hvað er nú það?" „Trúirðu á endurholdgun?" spurði ég. Hún yppti grönnum öxlum sínum og svaraði: „Og hvað er nú það svo?" Margir sem lært hafa um sjáandann Edgar Cayce, lásu að ást við fyrstu sýn, skyndileg tilfinning kunnugleika við ókunnugan, væri flöktandi minning frá rökkvaðri fortíð, loforð um ást sem næði út yfir jarðneskan skUning. 28

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.