Morgunblaðið - 21.12.2008, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008
www.skalholtsutgafan.is
FÆST Í KIRKJUHÚSINU OG ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM
Sigurbjörn Einarsson biskup er eitt mesta sálmaskáld
íslensku þjóðarinnar á síðari tímum.
Bókin geymir heildarsafn sálma hans og ljóða.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur
gag@mbl.is
HÁSKÓLI Íslands getur ekki tekið inn þá ríflega 1.600
umsækjendur sem sóttu um háskólanám á vorönn nema
skólinn fái til þess fjárveitingu. Háskólanum hefur verið
gert að skera niður um milljarð í nýju fjárlagafrumvarpi
miðað við það sem fjármálaráðherra kynnti í október.
Háskólinn lengdi umsóknarfrest og bauð fólki að sækja
um nám í fleiri deildum en áður við áramót og segir Kristín
Ingólfsdóttir háskólarektor að ekki hafi átt að afgreiða um-
sóknirnar fyrr en ljóst væri um fjárveitingar til skólans.
Þegar umsóknarfrestinum lauk á mánudaginn höfðu rúm-
lega 1.600 sótt um. Það eru um þrettán prósent af heildar-
nemendafjölda skólans.
Kristín segir að skólinn verði að skera niður eins og aðr-
ir í þessu árferði. „En niðurskurðurinn er talsvert meiri en
við áttum von á og hlutfallslega meiri en hjá öðrum háskól-
um,“ segir hún.
„Þetta er gríðarlega sársaukafullt fyrir skólann. Við
munum gera það sem við getum því við viljum mæta okkar
samfélagslegu ábyrgð.“
Kristín er í viðræðum til þess að fá bættan þann viðbót-
arkostnað sem hlýst af inntöku nýrra nemenda. „Við vilj-
um ekki gefa upp hversu margir komast inn fyrr en við vit-
um endanlega hver fjárveiting okkar verður.“
Kristín vísar því á bug að þetta sé þrýstiaðgerð. „En það
segir sig sjálft að við getum ekki bæði tekið við kröfu um
milljarð í niðurskurð og tekið við 1.600 nýjum nemendum í
skólann. Við þurfum að hugsa um gæði námsins því engum
er greiði gerður með því að minnka kröfurnar. Að lokum
værum við að gera samfélaginu grikk með því.“
Dæmi eru um að skólinn hafi þegar sent greiðsluseðla til
þeirra sem sóttu um nám. Þeir hafa verið ógiltir.
Kristín segir að háskólaráð taki afstöðu til inntöku á
fundi á morgun, mánudag, og í kjölfarið verði tilkynningar
sendar út til umsækjenda. Biðlað var til allra háskóla að
gera það sem hægt væri til að taka við nemendum við ára-
mót. „Í fyrra voru umsóknir um tvö hundruð,“ segir Krist-
ín. Eftirspurnin hefur margfaldast milli ára enda hart í ári.
Fá ekki inni án fjár
Háskóli Íslands er í viðræðum við yfirvöld um fjárveitingu til að geta tekið
nýja nemendur í skólann Hafði sent út greiðsluseðla sem eru nú ógildir
Í HNOTSKURN
»Rúmlega 1.600 umsækj-endur vildu hefja nám í
Háskóla Íslands eftir áramót
og nemur sá fjöldi um 13% af
heildarnemendafjöldanum.
»Háskólarektor segir ekkihægt að taka við nýjum
nemendum nema yfirvöld veiti
fé.
»Skólanum hefur verið gertað skera niður um milljarð
milli fjárlagafrumvarpa fyrir
árið 2009 og bjóst rektor ekki
við svo mikilli skerðingu.
ÞAÐ voru þó nokkuð margir sem nýttu sér tæki-
færið til að hvíla sig á jólastressinu með því að
bregða sér á skíði í Bláfjöllum í gær.
Allar lyftur í Kóngsgili voru opnar, sem og
þrjár lyftur í Suðurgili, og er þetta fyrsta helgin
í vetur sem skíðasvæðið er opið.
Færið var líka eins og best verður á kosið,
sannkallaður púðursnjór sem gott skíða- og
brettafólk kann vel að meta. Það var því ekki eft-
ir neinu að bíða að skella einfaldlega á sig skíð-
unum, bruna síðan niður brekkurnar og njóta
útiverunnar til hins ýtrasta.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á skíðum
skemmti
ég mér
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ENN ER óvissa um hvenær fundum Alþingis verður
frestað fram yfir áramót. Þingfundir hafa staðið frá
morgni til kvölds og jafnvel fram á nætur og það átti
einnig við í gær, laugardag. Stærstu málin sem liggja
fyrir eru fjárlög fyrir árið 2009 og fjáraukalög fyrir þetta
ár sem er að líða. Þegar Morgunblaðið fór í prentun um
hádegisbilið í gær var beðið eftir áliti fjárlaganefndar á
báðum frumvörpunum áður en þau gætu komið til þriðju
umræðu og í framhaldi til lokaatkvæðagreiðslu. Hugs-
anlega gæti þurft að koma til útbýtingarfundar í dag en
Alþingi er sjaldan kallað saman á sunnudögum. Þá er
ljóst að boða þarf þingfund á mánudag en vonast er til að
ekki þurfi að funda á Þorláksmessu.
Brenglað siðferðismat?
Stjórnarandstaðan gagnrýnir flaustursleg vinnubrögð
í efnahagsmálum og þykir aðgerðir ríkisstjórnarinnar
einkennast af rangri forgangsröðun, jafnvel brengluðu
siðferðismati. Gengið sé nærri þeim sem komi til með að
eiga erfiðast uppdráttar í þrengingum, s.s. öldruðum, ör-
yrkjum, barnafólki, bændum og skuldugum húsnæð-
iseigendum. Stjórnarliðar segja hins vegar forgangsröð-
unina rétta og tryggja hag þeirra sem lakast standa.
Beðið eftir niðurstöðum
fjárlaganefndar þingsins
Morgunblaðið/Ómar
Önnum kafinn Mikið hefur mætt á Gunnari Svav-
arssyni, formanni fjárlaganefndar, undanfarið.
Enn óvissa um hvenær
Alþingi lýkur störfum
EINHVERJUM af þeim fyr-
irtækjum sem auglýst hafa í DV
hefur borist tilkynning um að þau
lendi á válista, sendi þau ekki frá
sér yfirlýsingu um að þau séu
hætt að auglýsa í blaðinu. Til-
kynningin er frá aðilum eða sam-
tökum sem ekki láta nafns síns
getið.
„Þetta var á faxinu þegar ég
mætti í morgun og ég get ekki
túlkað þetta öðruvísi en sem hótun
um að ég eigi að skrá mig á þessa
síðu,“ segir Ólafur Adolfsson, eig-
andi Apóteks Vesturlands. Hann
hafi farið inn á vefsíðuna sem vís-
að sé á, en hvergi komi fram
hverjir standi að uppátækinu.
Í faxinu sem Ólafi barst segir:
„Ágæti DV-auglýsandi, þú þarft
að bregðast skjótt við! Fyrirtæki
þitt hefur birst í DV-auglýsingu
nýlega. Þess vegna er nú verið að
skrá þig á DV-válista yfir fyrir-
tæki sem neytendur eru hvattir til
að sniðganga.“
Ólafur hefur ekki ákveðið hvort
hann kærir þetta til lögreglu. „En
ef nafn mitt birtist á slíkum lista
að mér forspurðum þá skoða ég
málið. Mér er illa við að mér sér
hótað, sama í hverju það felst.“
annaei@mbl.is
„Lít á þetta
sem hótun“
Auglýsendum DV
hótað með válista?
SÓLBAKUR EA1 hefur fiskað fyr-
ir um 920 milljónir kr. á árinu og
standa 5.000 tonn af afla á bak við
þá upphæð. „Þetta er klárlega met
hjá ísfisktogara,“ segir Haraldur
Jónsson, rekstrarstjóri Sólbaks, og
kveður ólíklegt að aftur verði fiskað
fyrir aðra eins upphæð í íslenskum
krónum, en afli Sólbaks fer að
mestu á erlenda markaði. „Ég get
ekki séð að markaðsaðstæður á
næstunni verði þannig. Við höfum
bæði verið að selja á mjög góðu
gengi og eins hefur gengið af-
skaplega vel að veiða þennan fisk.“
annaei@mbl.is
Metverð-
mæti afla
á árinu
920 milljóna afli