Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 26
26 Matur og vín MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2008 Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 12 mánuði (visa/euro) Engin útborgun Sjóntækjafræðingar með réttindi til sjónmælinga og linsumælinga Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Þ að eru erfiðir tímar og því meiri ástæða en áður að vanda vel valið á jólavíninu og huga vel að samspili verðs og gæða. Raunar er það áberandi þegar hillur vínbúðanna eru skoðaðar að það er ekki eins mikið um hágæðavín og fyrir síðustu jól. En líklega er eftirspurnin ekki heldur sú sama. Það er þó hægt að finna nóg af góðu víni. Gott austurrískt vín klikkar aldrei og nú er Weingut Brundlmayer Grüner Veltliner Kamptaler Terrasen 2007 komið með skrúfutappa sem varðveitir ferskleikann enn betur. Kryddað með kíví, límónu og perum, mjög arómatískt, piprað og brakandi ferskt. Ljúffengt. 1.980 krónur. 90/100 Chablis er sömuleiðis hvítvín sem ávallt stendur fyrir sínu og gott er að grípa til með flestu. Kíkjum á eina fernu þaðan, en líkt og annað hvítt Búrg- undarvín er þetta 100% Chardonnay. Þrjár tegundir (Malande, Leflaive og Pin- son) eru frá litlum, vönduðum fjölskyldufyrirtækjum en hin þriðja frá vínsam- laginu Chablisienne sem er einn besti framleiðandi héraðsins. Domaine des Malandes Petit Chablis 2007 er ungt, létt og ferskt með mild- um sítrus, eplum og hressandi sýru í lokin. 2.190 krónur. 88/100 La Chablisienne Chablis 2005 er þykkara, jafnt í ávexti sem áferð, nokkuð míneralískt, vel uppbyggt og þægilegt. 2.199 krónur. 89/100 Domaine Pinson Freres Chablis Premier Cru 2006 er tignarlegt með ferskj- um og apríkósum í nefi, vanillu og eldspýtustokk. Löng og þétt uppbygging með góðri sýru. 3.689 krónur. 91/100 Svo að lokum er þess virði að rifja upp eitt besta hvítvín ársins, Olivier Lef- laive „Les deux Rives Chablis“ 2006, sem er toppklassa-Chablis. Þurr stein- efnakenndur ilmur, brennisteinn, sítrónubörkur og fíkjur. Þétt og langt, straumlínulagað og tignarlegt. 2.450 krónur. 92/100 En þá að rauðvíninu. Líkt og ávallt á Bordeaux-vín sinn örugga sess þegar hátíðarvín er annars vegar. Það er einfaldlega ekkert annað vínhérað í heimi sem framleiðir eins mikið af stórkostlegu víni. Chateau de Barbe Blanche 2005 hefur verið með bestu kaupunum í vínbúð- unum frá því að það kom í hillurnar fyrir rúmu ári. Það er enn 2005-árgang- urinn stórkostlegi sem er í sölu, þéttur og fínn og á enn töluvert inni. 2.830 krónur. 89/100 Chateau Lamothe Vincent 2005 er annar Bordeaux á góðu verði, raunar verður að segjast eins og er að þarna eru frábær kaup miðað við verð. Djúpur og þykkur ávöxtur með mjúkum tannínum og alltumlykjandi eik. Hér er mikið fyrir peninginn – ekta kreppu-Bordeaux! 1.991 króna. 89/100 Brio de Cantenac 2002 er hins vegar Bordeaux í öðrum klassa. Þetta er „annað“ vín Chateau Cantenac Brown, þ.e. vín af þrúgum sem ná ekki flokkun í „stóra“ vínið yfirleitt vegna þess að um er að ræða yngri vínvið. Hér kemur klassinn í gegn, Grand Cru-uppruninn leynir sér ekki, það bætist önnur vídd við vínið. Sedrusviður og kaffi blandast saman við sólberjaávöxtinn sem er far- inn að gefa eftir fyrir dýpri angan og meiri dýpt. 4.499 krónur. 90/100 Cepparello 2003 er vín sem nálgast það að vera stórkostlegt. Sangiovese-vín gerist ekki miklu flottara. Paolo di Marchi, sem heimsótti Ísland í fyrra og leiddi m.a. smökkun á öllum Cepparello-árgöngum frá upphafi, getur verið stoltur af þessu. Það er meira að segja eitthvað jólalegt við það, nefið er krydd- að, þarna eru kanil og möndlur, þroskaður kirsu- og krækiberjaávöxtur og uppbyggingin einstaklega fínleg, ekki síst miðað við að þarna er hitabylgjuárið mikla á ferðinni. 4.870 krónur. 93/100 Ciacci Piccolimini d’Aragona Brunello di Montalcino 2003 er annað dæmi um stórfenglegt Toskana-vín frá þessu sama ári en þó gjörólíkt. Hér er kraft- urinn meiri, dökkt með mikilli eik, leðri og kaffi. 7.897 krónur. 92/100 Peppoli Chianti Classico 2006 er ekki í sama flokki og þessi tvö en engu að síður virkilega gott og vandað Chianti Classico með þurrkuðum berjum, vanillu og mildu kryddi og tannínum. 2.299 krónur. Flott matarvín. 89/100 Ítalirnir allir njóta sín t.d. vel með góðu nautakjöti. Volnay N. Potel 2005 er vín fyrir Búrgúndarfríkin, en eins og allir vita eru fáar þrúgur eins flottar og vel gerður Pinot Noir. Djúpur, lagskiptur berjaá- vöxtur, skógarber, rifsber, dökkt með þungum og miklum tannínum. Með rjúp- unni? 4.270 krónur. 92/100 Frá Rioja á Spáni er svo Finca Monasterio 2005 en þar er í nefi mokkakaffi, vanilla, djúpur rauður og fjólublár ávöxtur. Langt og mjúkt, með ristuðum eik- arkeim og þéttum en mjúkum tannínum. 2.999 krónur. 91/100 Peter Lehmann Stonewell Shiraz 2002 er athyglisvert vín. Stonewell er „stærsta“ vín Lehmans og alltaf mikið um sig. 2002 var hins vegar svalt ár í Ástralíu og stíllinn því örlítið frábrugðinn því sem aðdáendur Stonewell eiga að venjast, aðeins fínlegri og ekki eins yfirþyrmandi með skarpari sýru sem gerir það enn matvænna. Svartur, djúpur ávöxtur með tjöru, myntu og tóbaki, þykkt, feitt og langt. Vín sem þolir alla villibráð og allt meðlæti. 5.298 krónur. 92/100 Austurrískt Wein- gut Brundlmayer 2007 er ljúffengt. Franskt Domaine Pin- son Freres Chablis Premier Cru 2006.  Franskt Chateau La- mothe Vincent 2005 er Bordeaux á góðu verði. Hvít og rauð jól Franskt Chateau de Barbe Blanche 2005. Með bestu kaupunum. Franskt La Chablisienne Chablis 2005, vel upp- byggt og þægilegt Franskt Domaine des Malandes Petit Chablis 2007. Ungt, létt og ferskt Franskt Olivier Lef- laive „Les deux Ri- ves Chablis“ 2006. Ítalskt Peppoli Chi- anti Classico 2006 er flott matarvín. Franskt Volnay N. Po- tel 2005 er vín fyrir Búrgúndarfríkin. Ástralskt Peter Lehmann Stonewell Shiraz 2002 þolir alla villibráð. Franskt Brio de Cantenac 2002. Klass- inn kemur í gegn. Ítalskt Ciacci Piccolim- ini d’Aragona Brunello di Montalcino 2003.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.